Norðurljósið - 01.01.1983, Síða 111
norðurljósið
111
stórir og góðir saman. Ekki má gleyma Guðmundi
Þorsteinssyni hér á Akureyri, sem hafði byggt þetta hús við
Kröflu, stjórnaði þeirri byggingu, því að Slippurinn hafði
smíðað þetta hús. Hann var bæði fús til þess og svo góður að
hjálpa okkur, var bæði við að steypa grunninn og eins að sýna
°kkur, hvernig við ættum að taka húsið sundur. Það var sami
ntaðurinn, sem byggði húsið tvisvar. Hann bæði byggði það og
reif það og hann byggði það aftur. Þetta er dálítið skemmtíleg
saga hússins, sem núna er nefnt- ekki Kröfluhús- heldur
Maríubúð til minningar um Maríu heitina, systur mína. Hún
hjálpaði okkur í mörg ár, en gat ekki verið lengur hér. Drottinn
vildi fá hana til sín. Mér finnst það fullkomlega þess vert, að
það beri nafn hennar, því að hennar áhugamál var bygging slíks
skála eins og Maríubúð er.
En komu ekki líka Færeyingar að hjálpa, þegar þið voruð að
rífa Kröfluhúsið?
Jú, það var búið að gera heilmikla áætlun. Við ætluðum ekki
að byrja að byggja fyrr en 24. júní. En svo komu jarðfræðingar
0vænt inn í, þegar búið var að gera áætlunina og spáðu því, að
^4. júní mundi byrja að gjósa við Kröflu. Það þýddi, að við
frýttum allri áætlun og þurftum að vera búnir að rífa húsið 24.
Juní. Þetta breytti líka áætlun Færeyinga. Það ætlaði 15 manna
flokkur að koma, en það var ekki nokkur leið fyrir þá að breyta
SlIrni áætlun. Við breyttum þessu svo seint og þetta var allt svo
Snöggt. En þá brugðust þrír Færeyingar samt vel við og komu
strax og við byrjuðum að rífa. Síðan komu fjórir líka óvænt. Það
voru allt aldraðir menn. Við vorum þá búnir að reisa húsið. En
Þessir menn ásamt þeim íslendingum, sem þarna voru, unnu
geysilegt þrekvirki. Þeir unnu svo mikið á einni viku, að ég
^eld, að því mundi enginn trúa. Þegar þeir fóru eftir viku, hafði
^ist að ganga frá húsinu, svo að drengirnir gengu þar inn til að
tia í því, er þeir komu.
^g gat ekki stansað við svo búið. Nú var ég kominn í svo
°gurlegan byggingaham, að mér fannst, að enn þyrfti að byggja
^ira. Það er nú svona, þegar menn eru orðnir sprettharðir, þá
er erfitt að hægja á sprettinum. Við komumst yfir annað hús,
sem var 16 1/2 metri á lengd. Fengum það keypt hér á
kureyri. En spurningin var: hvort hægt væri að flytja það