Sunnanfari - 01.01.1898, Síða 17

Sunnanfari - 01.01.1898, Síða 17
17 því, sem hér er út gefið. Sumir þar hafa fengið snefil af enskum fræðiritum, bæði tímaritum og fleiru, og þá missa menn smekkinn fyrir „Tímariti hókmentafélagsins11 og álika andrikum og skemti- legum hókum. Um ensk bókakaup landa er örðugra að tala. Ensk hlöð lesa auðvitað flestir, sem til þess eru færir. Enskar lygasögur af lélegasta tagi, svo sem lögregluspæjara-sögur og ámóta rusl, er auðvitað helzt til mikið lesið, enda fæst nóg af slíku 4 B cents kverið. Af bókum, sem verulegr fróðleikr er í, er reyndar minua keypt og lesið, en æskilegt væri, eins og víða vill við brenna, en þó er það framar vonum, þegar á alt er litið. Og vitaskuld eru nokkrir meðal landa þar, sem við að læra nýtt mál hefir eigi að eins opnazt aðgangr að höfuðbók- mentum heimsins, heldr og vaknað lyst til að hag- nýta þann aðgang. Því eru þar og til sjálfment- aðir menn, sem lesa sér til gagns og sífelds ment- unarauka. En slikt ið sama er og til hér á landi, þótt eigi sé það mjög títt nema í Þingeyjarsýslu. En blöðin íslenzku, kunna sumir að hugsa; þeim heldr þó íslenzkr almenningr í Vestrheimi uppi, — tveim stórum blöðum — og það er þó nokkur vottr um andlegt líf og áhuga. En við þetta er það að athuga, að inum ís- lenzku blöðum halda Vestr-Islendingar alls ekki uppi, heldr pólitísku flokkarnir í landinu, og sér- staklega stjórnirnar, landsstjórnin (Dominion-stjórn- in) og fylkisstjórnin í Manitoba. „Öldin“, sem ég gaf út um hálft ár 1891—92, er eina ísl. blaðið, sem hefir komið þar út án nokkurs styrks frá enskumælandi mönnum, algerlega á eigin spýtur. Þannig hefir t. d. annað blaðið nú stöðugt um og yfir hálft annað þúsund dollara urn árið frá fylkis- stjórninni í Manitoba, auk margra bitlinga annara og auk þess sem nokkrir af ráðgjöfunum í fylkinu hafa lagt hlutafé i blaðið. Svo þegar kosningar eru í Bandaríkjunum, gefr það ávalt nokkuð af sér. A þennan hátt fá þessi blöð mikinn hlut af því fé, sem það kostar að gefa þau út. Þó hafa menn hér furðað sig á því örlæti útgefendanna, að senda heilmikið af blöðuin upp hingað til lands árlega ^keypis. En það eru stjórnirnar, sem borga þau eiutök, en ekki útgefendruir. Stöku menn borga fyrir blöð, sem þeir láta senda kunningjum sínum hér; en þeir eru sárfáir. Ættu islenzku blöðin vestra að liíá að eins á borguuinni frá löndum, sein kaupa þau, og 4 auglýsingunum, þá gætu þau varla haft hálfa stærð við það, sem þau hafa nú, og njóta þó blöð í Canada þeirra hlunninda að vera flutt burðargjaldslaust með póstum um Canada og Bandaríkin. Eins er með kyrkjublöðin að sinu leyti, að hvor- ugt, þeirra ber sig, þótt bæði sé geypidýr. Hvor- ugt hefir nokkru sinni getað borgað eyrisvirði fyrir það, sem í þau er ritað; og nú er „Dagsbrún“ sál- uð, sem von til var, en „Sameiningin“ hjarir skuld- um vafin, og er það óhætt að fullyrða, að ekki einn af hverjum tíu, sem nú kaupa hana, mundi gera það, ef það væri ekki gert sem önnur ölmusu- gjöf fyrir þrábeiðni, og sér til friðar. Enda er það vitanlegt hverjum, sem kunnugr er, að hún er óvíða lesin af „kaupendunum“, heldr notuð til annara óvirðulegri þarfa. í>á er hyrkjulífið íslenzka vestra. Margir munu búast við að ég minnist nokkuð á það. En ég verð að biðja menn að afsaka, að ég sneiði hjá því að mestu leyti. Eg hefi í öllu því, sem ég hefi sagt í kveld, reynt að segja samvizkulega rétt frá öllu, svo sem ég vissi bezt, og forðast alla hlut- drægni. Ég hefi með vilja forðazt að fara út i þau ágreiningsmál landa alment, sem ég hefi sjálfr tek- ið þátt í þar vestra. En nú er ekkert mál jatnt- megnt flokkamál og ágreiningsmál þar landa á meðal eins og kyrkjumálin. Um þau er ekki auðið að tala neitt verulega, án þess að tala sem flokks- maðr, og er þá hætt við, að manni yrði borin hlut- drægni 4 brýn, hvort sem gild ástæða væri nú til þess eða ekki. Það eitt get ég sagt, sem allir vita, að nógr ófriðr og ill-lyndi og hatr eru þar sýnilega samfara kyrkjumálunum. Hvort heilbrigt og heilsusamlegt trúarlíf sé jafn-ríkt að sinu leyti eins og deilurnar og úlfúðin, um það skal ég hér ósagt láta. Það er víst, að hvað sem annars til kemr, þá er ekki meira en þriðjungr landa vestra í kyrkjufélag- inu lúterska, og ég hygg að meiri hluti allra landa sé ekki ineðlimir neinna safnaða. Ekki þarf mönn- um heldr að vaxa í augum prestaíjöldinn vestr þar: 6—segi og skrifa sex—prestar í 24 kyrkjufélags- söfnuðum. Fáskipað yrði prestunum hér á Islandi, ef vér hefðum eigi fleiri að tiltölu réttri. Eklri skulu menn heldr hugsa, að hver af þessum 6 prestum þjóni 4 söfnuðum, svo að söfuuðirnir hafi allir þjóu’ustu. Meiri hluti safnaðanna heíir jmiist alls euga, ýmist svo gott sem enga þjónustu. Að öðru leyti vil ég, samkvæmt því sem ég áðan sagði, sneiða hjá að tala um starfsemi lút- erska kyrkjufélagsins og þess forsprakka. Því fremr 3

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.