Sunnanfari - 01.01.1898, Síða 41

Sunnanfari - 01.01.1898, Síða 41
41 Skáltlskapur. „Nú sem stendur er mestrar frægðar að vænta fyrir „rómana“. — Yið höfum átt marga góðaljóða- smiði, en þó eingan verulega góðan“. Þannig fórust manni orð við mig fyrir skömmu. Hann er vitur maður og víðsýnn og vildi sýnilega beina hugsun minni í rjetta átt. Það hefur um t.íma verið svo, að þorri manna hefur fylkt sjer þjettast um söguskáldin og dýrkað þau mest. Einkum hefur þetta orðið niðurstaðan þar sem hinn svokallaði „realismus" hefur náð fót- festu. En allur þorri dýrkenda hans hefur lika þjónað honum í blindni og fórnað honum kröftum sínum vegna þess, að mestrar frægðar var að vænta af honum fyrir sögugerð. Þetta er kynlegt að þvi leyti, að það er eins og öll skáld, hjer um bil, sem komið hafa í heim- inn á stjórnarárum þessarar stefnu, hafi verið fædd söguskáld. Þetta getur þó ekki verið rjett. Það er jafn ómögulegt eins og ef eitthvert land fram- leiddi eintóma trjesmiði en eingan járnsmið. Sag- an sýnir líka og sannar, að flestir skáldmæringar eru fæddir ljóðasmiðir, eða hafa fyrst og fremst náttúru til þeirrar listar. Flestir frægustu sögu- höfundar hafa byrjað á ljóðagerð, enda er hún upp- runalegust allra skáldskapargreina, og þá líka um leið eðlilegust og sönnust. Realistarnir hafa haldið því fram í orði og verki, að náttúra einstaklingsins eigi að fara beint. áfram óhindruð. En þegar það var einu sinni orð- ið hljóðbært og viðurkennt, að mestrar frægðar væri að vænta fyrir sögugerð, varð ekki meira úr sjálfstæði listamannanna en þetta: að þeir brutu frumnáttúru íþróttar sinnar á bak aptur og sm^igu hver á eftir öðrum undir það jarðarmen, sem þræl- ar tískunnar ristu. Og afleiðingin varð sú, að hver maður sem hafði einhvern snefil af hugsjónargáfu, dyngdi á bókamarkaðinn á ári hverju jafn-mikilli fyrirferð sögumáls, eins og hann myndi hafa framleitt á allri *fi sinni, ef hann hefði lagt ljóðagerðina fyrir S1g og þjappað saman á hennar máli hugsunum þeim, sem voru einkennilegar fyrir hann. Næsta ar var svo meiri hlutinn gleymdur og grafinn und- nýjum hrúgum liks efnis, og svo koll af kolli. &>ögur átrúnaðargoðanna sjálfra, s?m ráðið hafa stefnunni og borið hafa merkið, hafa jafnvel fallið úr tigninni fyr enn varði. Emil Zola, sagnaskáld, hefur um mörg ár verið talinn oddviti allra „realista11, sem nú eru uppi. Hann byrjaði ungur á ljóðagerð. Eyrsta ritið sem hann gaf út, var kvæðasafn, og þótti lít- ils virði. Svo hætti hann að yrkja og hefur siðan ritað margar sögur og langar. Litlu mennimir sömdu sig á sömu vísu og Zola og reyndu af fremsta megni að teygja sig í spor hans, en tókst misjafnt sem vænta mátti. Nú er það orðin skoðun sumra allra glöggustu bókvitringa (Tolstoy), að það sem helzt sje hægt að telja honum t.il gildis sje það, hve iðinn rithöf- undur hann hefur verið og hversu mikil fyrirferð liggur eptir hann. Ljelegri einkunn verður líklega ekki kosin hjá Sögu gömlu en þessi. Það er þó ill-skárra að leggja eina ljóðabók undir dauðadóm ókominnar tíðar, heldur enn 20 bindi skáldsagna, sem heil mannsævi hefur slitið sjer út við að framleiða og þúsundir manna og jafnvel miljónir hafa eytt ærnum tíma og fjármunum til þess að lesa og borga. Eftir þeirri nasasjón, sem jeg hef af útlendum bókmentum, sýnist mjer því, að vjer Islendingar höfum ekki brýna ástæðu til þess að kvarta og kveina yfir því, að skáldin okkar hafa flest öll sungið og kveðið. Það er ástæða til þess að barma sjer yfir því, hve bókmentir vorar eru snauðar að góðum sögum. En við erum þá líka lausir við afarmegn þess þunnmetis, sem oftast fylgir því litla, sem getur heitið verulega gott í þeirri grein. íslendingar hafa þó aldrei verið svo langt leiddir, að þeir hafi lítilsvirt ljóðagerðina yfirleitt. En sama stefnan, sem borið hefur söguskáldskap- inn i öndvegi — hin svokallaða æðri þekking — hefur troðið alþýðuskáldskapinn undir fótum og ráðið hann af dögum. Sjera Matthías segir í Dagskrá, að „rímið sé nú orðið almenningseign, og að hver sveit og veiði- stöð geti uú seut út sinn Símon Dalaskáld11 — Þetta er annaðhvort vitleysa eða þá skáldskapur; en þá er það einn sá ljelegasti skáldskapur, sem komið hefur frá þeirri hendi. Alþýðuskáld og hagyrðingar voru fyrrum í hverri sveit og veiðistöð, en nú eru þeir það ekki frainar (nema á Akureyri). Þá var það siður, að yrkja um daginn og veginn og hvers konar nýjung- ö

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.