Öldin - 01.11.1894, Síða 16

Öldin - 01.11.1894, Síða 16
176 ÖLDIN. hin nýja trú þannig orsök í þeirri í'ullkomn- un, sem Japanítar liafa náð í þessnm grein- um. Þó sýnir saga þessi, að prestarnir voru ekki æfinlega þessir mannvinir, en líktust stéttarbræðrum sínum sumum, er miðalda sögur Norðurlanda segja manni frá, enda ekki ónáttúrlegt þó þeir eins og aðrir hag- nýttu sér á stundum trúgirni og fáfræði fólksins. Á stjórnarárum Engi keisara (901—922) er getið um að þeir hafi verið sérlega drambsamir. Musterin voru í hönd- um auðugra manna, trúardeilur og deilur út af musteriseigninni voru tiðar og hafði þá klerkalýðurinn stöðuher í klaustrunum, er þeir svo brúkuðu bæði til sóknar og vamar. Svo frekir voru prestar á þessu tímabili, að tilnefndi keisarinn fyrir ábóta í einhverju klaustrinu, mann, sem prestun- um í því umdæmi ekki féll vel í geð, fylktu þeir liði og riðu alvopnaðir upp að höll keisarans, til að ógna honum. Ilik- uðu þeir þá enda eklci við að bregða vopn- unum og olli það keisaranum mikill vand- ræða, því hann sá engan veg til að yfir- buga stærilæti þeirra, nö taka fyrir stjórn- ieysis athæfið. Því til sönnunar er þess getið, að einu sinni hafi Shirakawa keisari sagt: “í ríki mínu er ein þrenning, sem ekki hlýðir skipunum mínum: straumurinn í ánni Kamo, teningarnir í spili og Buddha prestarnir”. “Það er eftirtektavert”, segir þessi, ‘Japan saga’, “að Japanítar kunnu að búa til gler og sápu á 8. öld. Borgin Nara með musterum sínum komstætíð hjáorustunum, brennunum og eyðileggingunni, er á viss- um tímum lagði keisara setrin fornu í rúst- ir. Þeir sem heimsækja þá gömlu borg nú geta þess vegna fengið að sjá hluti, áhöld og listaverk í dagiegu brúki, sem gerðir voru fyrir mcir en þúsund árum síðan”. „Samfara þessum framförum í iðnaði og listum var framfdr í menntun lýðsins. Tenclii keisari varð fyrstur manna til að skipa embættismenn, er höföu umsjón al- mennrar uppfræðslu, og samkvæmt um- bótalögum (Taihoryo), er samin voru á hans stjórnarárum, var háskóli stofnaður í borginni Kyoto og að auki alþýðuskólar í ýmsum stöðum í liéruðunum’(. Þýðingarmestu áhrifin, sem þessi nýja menntun hafði í för með sér, var, ef tií vill, breyting sú er kom á stjórnarskipun- ina og ástand þjóðfélagsins í öllu landinu. Höfundur þeirra breytinga var Taikwa keisari, en fullkomnuð varð hún þó ekki fyiT en Naka-no-oye keisari tók við, en kend er hún við hinn upprunalega liöf- undognefnd “Taikwareformation”. Stjórn- ar fyrirkomulaginu öllu var umhverft, hér- aðshöfðingjamir, sem áður réðu mest mál- um.vorusviftir völdunum,en þartil kjörnir menn tóku við taumunum. Með þeim lögum var og stjórninni skift í deildir, 8 alls, og þeim svo aftur í smærri, er þrír mismunandi ráðgjafa fiokkar stýrðu, inn- anríkis ráðgjafar og liægri og vinstri ráð- gjafar. Hinar átta aðal deildir stjórnar- innar voru: (1.) skjala eða ritsafns doild- in, (2.) liátíða-reglu (seremoniu) deildin, (3.) framkvæmdar deildin, (4.) innanríkis deildin, (5.) hermáladeildin, (6.) dóms- máladeildin, (7.) fjármáladeildin, (8.) deild keisara liússtjórnarinnar. Manntal var tekið um þctta lcyti og tilraun gcrð að lilú að jarðyrkju og búnaði með því að út- vega því fólki ábýlisjarðir, sem ekkert land átti og aðrar ráðstafanir gerðar til að jafna búendum niður á landið, á líkan hátt og hvervetna viðgcngst í þröngbýli. Læst- ar hirzlur voru festar upp á ýmsum stöðum um landið og fólki tilkynnt að í þær skyldi það láta bréf til stjórnarinnar, þegar ein- hver hefði eitthvert mál að kæra. Það var og ákveðið, að þegar einhver þyrfti sérlega bráðrar úrlausnar, í einhverju kæru máli eða kvörtun, skyldi hann hringja bjöllu í ákveðnum opinberum húsum. Þcss- um byltingum fylgdi, að erfðarétturinn tii ráð. jafa embættis eða annarar mikils- verðrar stöðu var úr gildi numinn, en þeir

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.