Öldin - 01.11.1894, Blaðsíða 28

Öldin - 01.11.1894, Blaðsíða 28
188 ÖLDIN. beygja kné fyrir henni og scgja: Ileilaga mær, ég stríði ekki þór til dýrðar, lieldur frelsaranum, syni þínum. 0g þ'i mun sankta María svara brosandi: Sá sem stríðir sakir sonar míns, hann striðir einn- ig fyrir mínar sakir, því að ég er móðir.” “Konungur þinn er trúarvillumaður,” sagði þá Regína reiðuglcg, því ekkert féll henni miður en mótsagnir móti þeirri trú, þar scm liimnadrotningin María er eitt mik- ið máttaratriði. “Konungur þinn er harð- stjóri og samvizkulaus maður, seni leitt hefir reiði allra dýrðlinga yfir höfuð sitt. Veiztu það, Emma, að ég hata konunginn þinn ?" “Og ég elska hann,” sagði Emma svo lágt að varla heyrðist. “Já,” sagði Regína, “ég hata hann eins og dauðann, syndina og glötunina. Væri ég karlmaður með hraustri liönd og héldi á sverði, skyldi mitt æfimark vera að eyða herskörum hans og verkum. Gott áttu Emma, sem ekki þekkir ófriðinn, þú veizt lítið um hvað Gústaf Aðólf heflr gert oss aumum kaþólskum þjóðum. En ég hefl séð það, og land mitt og trúminkrefj- ast hefnda. Það koma stundir yfir mig að ég gæti tekið lif hans.” “Og þegar jungfrú Regína bregður upp sinni hvítu hendi með hvassa hnífnum móti lífi konungsins, þá berar konungur- inn brjóst sitt þar sem hans hrausta hjarta slær inni fyiir, og hann lítur til hennar með tign og rósemi í augum og mælir: þú hin smáa, bjarta hönd, sem saumar mynd guðs móður, sting mig með hnífnum ef þú orkar, hér er hjarta mitt fyrir, hér slær það fyrir frelsi veraldarinnar og henn- ar Ijósi. Og þá mun höndin hníga niður liægt og scint og daggarðurinn detta áður en nokkurn varir úr henni, og þá mun guðs móðir á dúkinum brosa, því hún vissi vel að svo mundi fara, því fyrir henni sjálfri fór á sömu leið. Því að Gústaf kon- ung má enginn deyða, cnginn hata; guðs engill gengur við hlið lionum og snýr rciði mannanna í elsku.” Regína gle’ymdi vinnu sinni og leit framan í Emmu síuum stóru, dökku, votu augum. í orðum hinnar var svo mikið ó- vænt og henni þó svo kært að hcyra; en hún þagði; loksins mælti hún : “Konung- urinn á töfragrip.” “Já,” :agði Emma, “töfragrip ber hann, en það cr ekki eirhringurinn, seni mennirnir tala um, það er hans hugstóra mannelsku hjarta, sem afneitar öllu sakir hins góða á jörðunni. Þcgar hann var barnungur maður og hafði enga frægð eða afrck unnið, átti einungis sitt gullbjarta hár og háu hvanna og sin mildu, bláu augu, þá bar hann engin töfraþing, og þó gekk blessun og elska og hamingja við hlið honum. Allir englar á liimnum og allir menn á jarðriki unnu lionum.” Það tindruðu tár í augum Regínu. “Hcflr þú séð hann meðan hann var ungur ?” “Ilvort ég hefi séð hann ! Já.” “Og þú hefir clskað hann eins og all- ir aðrir ?” “Meira, jungfrú, en allir aðrir.” “Og þú annst honum enn þá ?” “Já ég ann lionum — mikið—einsog þér gerið. En þér viljið deyða hann en ég vil deyja fyrir hann.” Rcgína hljóp upp, brast í grát, þreif Emmu í faðm sér og kysti hana. “Trú því ekki að ég vilji dcyða liann — ég, ó heilaga María, ég sem vildi þúsund sinn- um láta líf mitt í hans stað. En veiztu það, Emma, að það cr kvöl sem þú getur ekki skilið, sundurliðandi kvöl, þegar mað- ur clskar mann, stórhefju ímynd alls hins æðsta og fegursta í lífinu, og svo kemur vor heilaga trú og býður oss að hata þenn- an mann, deyða hann, ofsækja hann og elta að dyrum grafarinnar. Þú veizt elcki, þú ert sæl, þú þarft ekki annað cn að elska og blessa, þú veizt ekki hvað það er, að hrekjast milli ástar og haturs eins og skip

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.