Óðinn - 01.07.1922, Blaðsíða 3

Óðinn - 01.07.1922, Blaðsíða 3
ÓÐINN 51 Kjarval. Margir eru þeir, sem við listir fást hjer á íslandi — en færri eru listamennirnir en fúskararnir enn sem komið er. Jóhannes Sveinsson Hjarval er einn af þeim fáu útvöldu í þeim fjölmenna hóp; hann er fæddur lista- maður. Ungur fór hann að gefa sig að málaralist og sýndi þá þegar nokkra hæfi- leika, svo ýmsir af okkar góðu mönnum, sem sáu mynd- ir hans, t. d. Þorsteinn Er- lingsson og Einar Benedikts- son, rjeðu honum eindregið til að halda áfram og reyna að fá tilsögn. Naut hann þá nokkurrar kenslu hjer heima um tíma, en sigldi síðan til Haupmannahafnar og var veitt inntaka á listaháskól- ann þar. Lauk hann þar námi og tók burtfararpróf. Hefur hann síðan ferðast víða til að kynnast málaralistinni enn betur og dvaldi meðal annars í Rómaborg og Flór- ens árið 1920. Hefur Ítalíu- för hans haft mikil áhrif á hann og þroskað hann mjög. Hjarval er einkennilegur lista- maður og hinn stórfenglegasti meðal íslenskra málara; hann er maðurinn sem fer sínar eigin götur, oft langt frá þjóðbrautinni; hann er óhræddur við annara dóma og að skreyta sig með fjöðrum annara er fjarri hans skapi. Hann er skáldið meðal íslenkra málara, draumspakur og djúpvitur. Myndir hans koma mönnum til að hugsa. Eitt af því, sem maður tekur fyrst eftir við að athuga myndir hans, er hve ótrúlega fjölbreyttar þær eru, bæði að efni og gerð. Manni finst undur að þær skuli vera eftir sama manninn. A annan veg er það oft hjá öðrum málurum, þar er oft ein myndin annari lík að gerð, þótt efni (matería) myndarinnar sje sama, þær^eru í rauninni endurtekning hver af annari. Hjarval málar aldrei sömu myndirnar eins upp aftur og aftur, — hann stælir ekki sjálfan sig — en er altaf að glíma við eitthvað nýtt, því þrá hans til að skapa er sívakandi. Kjarval teiknar afburðavel og er hinn mesti snill- ingur í meðferð litanna. Þótt hann sje ungur enn, hefur hann leyst af hendi svo mörg góð verk, að óhætt er að skipa honum á bekk með okkar besta listamanni Einari jónssyni myndhöggvara. Líkist hann honum einnig í því, að hann er sívinnandi og hefur óbilandi starfsþrek. Enda sætir það undrum hve miklu Kjarval hefur þegar afkastað. Mikilli mót- spyrnu og mörgum erfiðleikum hefur Hjarval mætt á sinni listamannsbraut. En sá misskilningur, sem hann hefur orðið fyrir, er nú óðum að þverra. Það er erfitt á margan hátt að vera listamaður hjer á Islandi og sjerstaklega fyrir þá, sem ryðja nýjar brautir. Vil jeg aðeins benda á, að einkennilegt er að sumir af okkar listamönnum skuli verða að sækja viðurkenningu til annara þjóða, áður en þeir hljóta hana hjer heima. Sýnir það átakanlega, hve óþroskaðir Islendingar eru í hinum fögru listum. Og hjer fer auðvitað sem annarstaðar, að afburða- maðurinn á erfiðaðara upp- dráttar en meðalmennirnir. En Kjarval hefur sigrað þá örðugleika, sem hingað til hafa mætt honum. Jóhannes Kjarval hefur fengið listamannsgáfuna í vöggugjöf og hugur hans hefur mótast af hrikaleik íslenskrar náttúru og þjóðsögum. Hann hefur þrosk- aða dómgreind og er það hið allra nauðsynlegasta fyrir hvern mann og ekki síst fyrir listamann. Og mark sitt setur hann hátt. Og þeir, sem hafa kynst honum, vita að leit er' að betri dreng og vinfastari, en það hefur verið einkenni allra góðra Islendinga. — Rúmið leyfir ekki að hjer verði minst á nein ein- stök verk hans, þó full ástæða væri til; og myndir hans, sem oft hafa aðalstyrk sinn í litum, myndu ekki njóta sín þótt prentaðar væru. Kjarval er fæddur í Austurskaftafellssýslu og er nú hálffertugur að aldri. Hann er giftur danskri konu,

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.