Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Qupperneq 14

Eimreiðin - 01.05.1907, Qupperneq 14
94 Peir menn hafa verið fátækir að fé, sem stofnað hafa trúar- brögðin, eða endurbætt þau og komið þeim á fastan fót, að Búdda einum undanskildum, sem var konungsson. En þegar hann gerðist trúarbragðahöfundur, þá afneitaði hann auðlegð sinni og valaatign. Aftur á móti: þegar kirknadeildirnar hafa kostað kapps um að raka saman fé, þá hafa sönn trúmál og sönn siðgæðismál orðið ýmist grasgróin eða fótum troðin. Til þess er sagan sögð, að henni sé gaumur gefinn. Eg er ekki hræddur við breytingar, hvorki í kirkjumálum, né x öðrum efnum. Pó mundi ég kjósa helzt, að prestaskipun héldist í landinu svo sem verið hefir. Prestur í hverju prestakalli, sem hefir lítil laun, vinnur þó nokkuð fyrir búi sínu (meistarinn og lærisveinarnir vóru iðnaðarmenn), er leiðtogi sóknarmanna öðrum þræði — þar höfum vér gott skipulag kirkjumála við að búa. Með því móti verða prestarnir betri menn og prestar um leið, heldur en ef þeir verða fáir og rótfestulausir í landinu. Pó að presturinn sé ekki fyrirtaks ræðugarpur, né andríkur með afburðum, þá vinst það upp með hinu: að hann er hold af almennings holdi og blóð af blóði hans. Með því móti verða prestarnir sanngjarnari og fara síður út í öfgar og ofstæki. Prestarnir þeir munu síðla gerast nærgöngulir neistaflugs-árar (heimatrúboðsmenn). »En til hvers er að tala um slíkt«, munu andvígismenn mínir segja. Prestarnir takast ekki á hendur embætti -— fást alls ekki til þess, nema kjör þeirra séu bætt. Með þvi er átt við launa- hækkun. Peir fella sig ekki við gömlu kjörin og fátæktina. »Stefna tímans« er augljós: einn og tveir segja af sér embættum og ungu skólamennirnir leggja fyrir sig aðra vegi. —Vér verðum að breyta til, segja þeir, ella verða söfnuðirnir prestslausir, hver um annan þveran. Prestslaust land! — ég get felt mig vel við það, ef eigi er hægt að hafa þá prestaskipun i landinu, sem verið hefir að gagni, er enn og mundi verða, ef hún héldist. Prestarnir sjálfir vilja losna við mannfélagsmálin og formæl- endur prestafækkunarinnar og launahækkunarinnar vilja losa þá við öll störf, nema boðun trúarinnar og túlkun siðgæðanna. Pegar um það eitt er að ræða, að koma þeim orðum út
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.