Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 28

Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 28
io8 að börnin myndu deyja, höfðu gagntekið huga hans og gert hann viðkvæman. »Æ guð má vita hvort þau lifa eða ekk?« Guðlaug bar svuntuhornið upp að augunum. »Ætli það væri ekki reynandi, að vitja læknisins?« »Jú eitthvað verður maður að reyna.« Börnin vöknuðu aftur, grétu og kveinkuðu sér; kvörtuðu um hita og andþrengsli. Foreldrarnir reyndu að hughreysta þau, og vekja traust þeirra á guði — á guði, sem væri græðari allra meina; biðja hann að vera hjá þeim, þá myndi hann koma, ef þau bæðu hann þess, og hjálpa þeim, og guði myndi þykja vænt um þau, sem góð börn! — En enga fró höfðu þau það sem eftir var næturinnar. — Fyrir birtingu var Grímur ferðbúinn. Pað var ritjuveður, en fært vel. Pað hafði hlaðið niður gaddi talsverðum, svo þæfingur myndi reynast aðra eins leið og út að Brekku, þar sem héraðs- læknirinn bjó. En læknirinn myndi geta riðið alla leið, það var Grími ljóst. Grímur kvaddi börnin og bað fyrir þeim. — En þegar hann mintist við Guðlaugu, gat hann ekki ráðið við tárin, sem komu fram í augun, og hoppuðu eins og frosnar glitrandi perlur niður kinnarnar, bráðnuðu inn í skeggið og sátu á hélugráu hárbrodd- unum, eins og daggperlur á blaðlausum viðarrunni. — Svo hélt hann af stað, en Guðlaug varð eftir í bænum, alein, hjá börnunum veikum. — II. Grímur og Guðlaug vóru búin að vera gift í io ár. Grímur var af fátæku fólki kominn, og hafði því ekki haft mikið til þess að reisa með búskapinn. Guðlaug var aftur á móti af ríkum ættum komin, og hafði auðurinn gengið í beinan karllegg um marga mannsaldra. En hún var einbirni og stóð til að erfa allan Hofsauðinn að karlinum látnum. Urðu því margir til að renna hýrum augum heim að Hofi og til meyjunnar gjafvaxta, sem baðaði í auðæfum eins og kóngsdóttir. Og margur varð að staulast frá Hofi, með hrygginn hlykkjóttan, er hafði þó þangað gengið með faðminn fullan af framtíðarvonum. — En Porsteinn gamli kunni illa þessu háttalagi dóttur sinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.