Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 44

Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 44
124 vitur — væri honum ekki kunnugt um, að það var ástin — ástin hennar — sem krafði þess, að hún veldi þetta hlutskifti? Hafði þá ást hennar verið einskis virði? Hefði guði þótt vænna um hana, hefði hún gifst einhverjum maurapúkanum, sem bað hennar — og þó hún hefði aldrei lært að elska neinn þeirra — haft viðbjóð á þeim öllum — ætli guði hefði fundist það betra? — En hvernig stæði á því, að guði hefði fundist svo mikið til föður hennar koma? Pað fanst henni alls ekki, og aldrei hefði henni þótt verulega vænt um hann. Hann hefði verið svo kaldur, aldrei beðið, heldur skipað hranalega. Og oft hefði hann barið hana, á meðan hún var ung, og það oft án þess hún hefði nokkuð til unnið. Pað hefði verið auðséð á öllu, að honum hefði aldrei þótt vænt um hana, og þá hefði ekki verið heimtandi af henni, að henni þætti vænt um hann. Hann hefði líka verið vondur við móður hennar. Hún hefði heyrt hann stríða henni, þangað til hún grét, og stundum hefði hann slegið til hennar, ef honum fanst hún gefa bágstöddum ofmikið. En um móður sína hefði henni altaf þótt vænt, og dánardægurs hennar hefði hún altaf minst sem stærsta mótlætisins, sem henni hefði mætt. Væri ekki guði kunnugt um þetta? Og hvernig gæti hann dæmt hana svona hart — hegnt henni svona þunglega? Væri þá guð eins og maðurinn ? Mætti kaupa hann góðan með gjöfum ? Hefði hann tekið á móti jörðunum, sem faðir hennar gaf kirkjunni, sem fult gjald fyrir afbrot hans? Ef svo væri — hví gæti þá ekki sú gjöf bætt afbrot hennar. Hún var þó hold af hans holdi, og blóð af hans blóði. Væri það ekki nóg fyrir guð, að hún þyrfti aö lifa við eymd og volæði, vegna þess að allur auðurinn, sem henni bar, gekk upp í skuldir föður hennar? Væri það ekki nóg — hví þyrfti guð einnig að fórnfæra börnunum hennar? — Væri þessi aðferð guðs nokkuð annað en óréttlæti? — Og hvernig gæti hún búist við að finna réttlæti i heiminum, ef æðsti stjórnari hans væri óréttlátur? — — »...........I dag er yður frelsari fæddur! og hann er fæddur til að blása oss í brjóst anda endurfæðingarinnar, anda réttlætisins og helgunarinnar, anda fjörsins og framkvæmdarinnar, anda þekkingarinnar og anda kærleikans! . .. . Ef vér erum undir- okaðir af hinum ytri lífskjörum, sem bágt er að synja fyrir, þá ríður oss því meira á, að höndla hið innra frelsi og afla okkur þeirra gæða, sem glæða sálarinnar sanna líf.........!«
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.