Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 62

Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 62
142 aðeins, eins og Miillenhoff komst að orði, stórkostlegasta kvæði Norður- landa fram á þennan dag, heldur er hún listaverk, sem sem í sinni röð aldrei hefir átt sinn líka, hvað þá heldur að nokkuð hafi tekið henni fram. Ekkert slíkt kvæði hefir hingað til birst í heiminum«. Að því er útgáfuna sjálfa snertir, þá er henni í vorum augum tals- vert ábótavant, þegar miðað er við, hverjum hún er ætluð. Þetta á þó ekki við texta kvæðanna, heldur skýringarnar, sem þeim fylgja. í'ær eru allsendis ónógar fyrir íslenzka alþýðu, og hefðu þurft að vera á alt annan veg. Það eru eintómar orðaskýringar, og þær sumar harla vafa- samar, en mýmargar alveg óþarfar, því oft er þar verið að skýra orð, sem hvert mannsbarn á íslandi skilur. En það, sem mest á reið og mest var þörfin á, það vantar í skýringarnar. En það er stuttar skýr- ingar á efni og hugmyndum kvæðanna og samanburði og tilvísunum milli þeirra innbyrðis, líkt og gert er í nýnorsku þýðingunni af þeim: »Edda- Kvæde« eftir Ivar Mortensson, sem einmitt kom út samtímis. Slíkar skýringar gætu orðið íslenzkum lesendum að miklu liði og viljum vér því ráða mönnum til að fá sér norsku þýðinguna til hliðsjónar og fróð- leiksauka. V. G. BENEDIKT GRÖNDAL ÁTTRÆÐUR 1826—1906 og BENEDIKT GRÖNDAL: ÖRVAR-ODDS DRÁPA. Önnur prentun. Rvík 1906. Það var kominn tími til að íslendingar sýndu skáldinu, ritsnillingnum, listamanninum, fjölfróðasta og ijölhæfasta íslendingi, sem nú er uppi, ein- hvern stakan heiður; en þeir hefðu átt að gera það löngu fyr. Að fá lof og dýrð frá þjóð sinni er mikill stuðningur fyrir rithöfund á bezta skeiði. Það örvar hann til að yrkja og rita betur. Auðvitað gott að fá slíkt á æfikvöldinu, en margfalt betra hefði það verið fyrir þjóðina og fyrir manninn, að fá það áður sólin fór að hníga á lofti. Það er sómi fyrir þjóðina sjálfa að sæma slíka menn, og það er gagn að því fyrir hana og fyrir þá. Oft hef ég heyrt bændur á Snæfellsnesi vera að kveða Örvar-Odds- drápu fyrir munni sér á leiðinni um Berserkjahraun. Þeir kunnu langa kafla úr henni, og vitnuðu í hana á mannfundum eins og Eglu og Njálu. Er tvísýnt, hvort Heljarslóðarorusta er í meira uppáhaldi upp til sveita en Örvar-Ódds drápa. Þjóðin getur ekki sýnt neinu skáldi meiri sóma, en að lesa það og kunna það utanbókar. En listamanninum, sem hefur varið mörgum æfiárum til að teikna »Dýraríki íslands«, hefur hún ekki gert hátt undir höfði. Fjárveitingar þingsins til handa honum hafa bæðt verið litlar og lúalegar. Ekki hefði Gröndal veitt erfitt að fella þing- mennina með Gusisnautum, en hann hefur gefið þeim grið. Hér er ekki tækifæri til að lýsa hinum mörgu hliðum á skáldgáftt Gröndals. Þegar íslendingur vill reyna að færa útlendingi heim sanninn um hljómfegurð íslenzkunnar, þá velur hann kvæðið »Köld ertu móður- mold«. ÍÞegar íslendingur vill sýna, hve fyndinn maður geti verið á. íslenzku, þá fer hann í Gröndal. Og sami maðurinn er vísindamaður. Hann hefur ritað djúphugsað um heimspeki í bundnu og óbundnu máli. Náttúrulýsingar hans eru mikilfenglegar og stórkostlegar, hugmyndaflugið svo ótt og hátt, að lesendurnir eiga stundum óhægt með að fylgjast með. Þá ber að þeim bakkanum, sem flestir þeirra, er bera höfuð hærra en,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.