Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 64

Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 64
144 við kenning kirkjunnar sjálfrar. Hvert »kver« verður að flytja skoðun kirkju sinnar, en eigi aðeins skoðun einstakra manna. í þessu kveri séra Valdimars Briems er einstaka trúaratriði slept, sem kirkjan á íslandi leggur áherslu á. Nefna mætti ýmislegt fleira, sem gengur í sömu átt. Þessu gæti höf. auðvitað breytt, ef hann vildi láta löggilda kverið í ríkiskirkjunni á íslandi. En varla verður þó ijóðakver þetta góð kenslu- bók, þegar á alt er litið. En á hinn bóginn á höf. þakkir skilið fyrir þessi kristilegu fræðiljóð sín. Bæði ungir og gamlir menn læra þau að meira eða minna leyti, þó þau ef til vill verði aldrei löggild kenslubók í kristnum fræðum. Búningur ljóðanna (rímið) er fagur, léttur og lipur, eins og búast má við hjá öðru eins listaskáldi og séra Valdimar Briem er. Allur ytri frágangur kversins er í bezta lagi. H. P. R. A. TORREY: KRISTUR, BIBLÍAN OG VANTRÚIN. Þýtt úr ensku. Útgefandi Arthur Gook, trúboði. Akureyri 1906. Bók þessi er tíu fyrirlestrar og efni hennar er trúvörn. Höf. er alkunnur mælskumaður og mesti trúmaður. Að efni til er bókin í þremur köflum. í fyrsta kaflanum (bls. 9—61) færir höf. tíu ástæður fyrir því, »að hann trúi að ritningin sé orð guðs«. Fyrsta ástæðan er vitnisburður Jesú Krists um ritninguna. Síðan tekur hann fram aðrar ástæður og að síðustu talar hann um vitnisburð heilags anda. Ástæður þessar hafa mis- munandi sönnunargildi. En vitnisburður Jesú Krists um gamla testamentið er auðvitað þýðingarmikill fyrir alla, sem trúa á guðdóm hans. í öðrum kaflanum (bls. 62—103) talar höf. um upprisuna. Hann sýnir fram á, að frásagnir guðspjallamanna um upprisu Jesú Krists séu í alla staði áreiðanlegar. í þessum kafla er margt mjög vel sagt. Síðasti kaflinn (bls. 104—126) er um vantrúna: Orsakir hennar, afleiðingar og lækning. í þessum kafla er farið of fljótt yfir sögu. Hann er og að ýmsu öðru leyti lakari en fyrri kaflarnir. Verð bókar þessarar er afarlágt, aðeins 25 aurar. Hún er í alla staði þess verð, að alþýða manna kaupi hana og lesi. Bæði þýðingin og ytri frágangur bókarinnar er í allgóðu lagi. H. P. NYTT KIRKJUBLAÐ. hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristilega menning. Ritstjórar: Jón Helgason. Þórhallur Bjarnarson. I. árg. Rvík 1906. f’essi árgangur er 24 tölublöð (284 blaðsíður) að stærð. Efni hans er allmargbreytt: Allar tegundir kirkjumála, trúvörn, mannúðarmál, al- þýðumentun, ljóðmæli, ritdómar, kirkjufréttir o. s. frv. Flest af því, sem í blaðinu stendur, er eftir ritstjórana sjálfa, en lítið eftir aðra íslenzka höfunda. Dálítið er þýtt úr öðrum málum. Allur ytri frágangur blaðsins er mjög vandaður, að því er prentun og pappír snertir. Á einstaka stað er málinu ofurlítið ábótavant. En hvergi eru þó mikil brögð að því. »Nýtt kirkjublað« er beint framhald »Kirkjublaðsins« og »Verði ljóss«, bæði að því er ytri búning og tilbreytni efnisins snertir. Mun- urinn er aðeins fólginn í því, að nú vinna báðir ritstjórarnir I einingu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.