Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Page 74

Eimreiðin - 01.05.1907, Page 74
154 hjá sjálfstæðismönnunum, væri það, að þær hefðu með fullkomnu áhugaleysi um örlög þjóðarinnar sýnt og sannað, að þær væru þess ekki verðar að fá pólitisk réttindi. Pví slíkra réttinda er enginn sá verður, sem ekki sýnir neinn áhuga á landsmálum, og á það ekki fremur við konurnar en þá karlmenn, sem enn hafa ekki fengið kosningarrétt sökum takmörkunar hans — og náttúr- lega suma þeirra líka, sem þegar hafa fengið þennan rétt. I þeirri sjálfstæðisbaráttu Islendinga, sem nú stendur fyrir dyrum, kemur eldri flokkaskipun vonandi ekki til greina. I henni standa annaðhvort allir íslendingar. einhuga, eða skiftast í sjálf- stæðismenn og innlimunarmenn. Hvort heldur, verður reynslan að sýna. En fari svo, að menn skiftist, hvar ætlar þá kvenþjóðin að skipa sér? Ætlar hún að verða með sjálfstæði eða innlimun — eða aðeins að »fljóta sofandi að feigðarósi«? Svarið er góður prófsteinn. V. G. íslenzk hringsjá. R. HAMMER: STATIONSSKIBENES TILSYN MED FISKERIERNE UNDER ISLAND og Færoerne. Udgivet af Marineministeriet. Khöfn 1906. Þessi skýrsla um fiskiveiðar við ísland er mjög fróðleg. Segir fyrst frá opnum bátum. Átti ísland um 70 mótorbáta árið 1905. Síðan er sagt frá, hvernig Norð- menn fara kringum lögin fyrir norðan og austan og borga einstökum mönnum fé fyrir að þykjast vera eigendur að síldarnótum þeirra. Er prentað sýnishorn af norsk- íslenzku kaupbréfi, sem ekki verður haft á. En nú er farið að veiða síldina í rúm- sjó, og þá þarf síður að beita refjum. Danir frá Friðrikshöfn eru nú hættir að veiða kola við ísland, en maður frá Skagen hefur þó í nokkur ár fiskað kola, á mótorbáti, á Önundarfirði, á sumrin. Sumarið 1905 fékk hann 53,600 kola á 87 dögum og var ágóðinn, að frádregnum kostnaði, um 1700 kr. Árið 1903 voru 12 hvalveiðastöðvar á íslandi, og 36 hvalveiðaskip veiddu 1351 hvali. Með skipunum eru ekki talin 8 gufuskip, sem eru höfð til að draga hvalina að hvalveiðastöðinni. Hvalirnir voru frá 7000 til 500 króna virði, hver um sig. Á Fáskrúðsfirði er þýzk hvalveiðastöð, og verður yfirmaður hennar — sem er íslenzkur borgari — að kaupa hvalina af hinum 2 hvalveiðaskipum, sem eiga þar heima, því þau hafa þýzkt flagg, en öll önnur hvalveiðaskip danskt. Árið 1905 voru um 180 frönsk seglskip á fiskiveiðum við ísland og voru 20 til 25 manns á hverju skipi. Flest þeirra, nl. 74 árið 1902, voru frá Dunkerque (Dún-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.