Eimreiðin - 01.05.1907, Page 80
i6o
uðum, þar sem þeir búa einir sér, eru þeir smámsaman að líkjast öðrum landsbúum
meir og meir.
í »Pall Mall Gazette« í Lundúnum stóð 30. nóv. 1906 grein um fánamálið ís-
lenzka.
í »Berliner Tageblatt« (2. sept. 1906) er grein um Danmörku og »hjálendur«
hennar, og segir í henni, að hættulegt geti verið fyrir Dani að neita kröfum ís-
lendinga.
í »Hamburger Nachrichten« (ág. 1906) eru greinar um íslandsför eimskipsins
»Oceana«. Segir höf., að margir Reykvíkingar tali þýzku, þó þeir beri hana illa
fram. Kvenfólkið sé forkunnar frítt, með ljómandi augu, og syngi mjög vel. Eink-
um þótti honum mikið varið í »Ólafur liljurós« (Ólafur reið með björgum fram).
y. st.
Sextánmælt.
I. HRET.
Hretin dynja. Húsin stynja.
Hylur mjöllin allan völlinn.
Stormsins hljómar hási rómur.
Hvítnar gler af daggar frera.
Himinn bláan hylja gráir
hríðarblakkir kólgubakkar.
Fuglar smáir finna' ei stráin.
Feigðar-vottúr kalt við glottir.
II. BLÍÐA.
Kemur sumar, kætast gumar.
Klakaólar slítur sólin.
Vermist mundin. Vaknar lundin.
Vonist fæðist. Tápið glæðist.
Kyrrist lögur. Kvæði fögur
kvaka þrestir, vorsins gestir.
Lifnar hjörðin. Litka börðin
laufin smáu og blómin gljáu.
XIII.