Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Side 26

Eimreiðin - 01.04.1919, Side 26
90 FRÁ KÖTLUGOSINU [EIMREIÐIN smágerðan og olli hann mestu um myrkríð. Pegar morgna tók, þótti vænlega horfa, að eigi hélst myrkrið, heldur birti af degi. En því kviðum við einna mest að myrkur mundi verða af öskufalli. En stormkaldi var þá kominn af austri og bægði hann öskumökknum vestur. t*egar bjart var orðið, sáum við að vatnsflóðið mundi runnið af að mestu, en eftir sátu hrannir miklar og hrikalegar jökul- borgir. Fórum við nú að vitja um bæinn og hafði vatnið farið alt í kring um hann um nóltina. Nú var vatnið hlaupið, en eftir sat við húsið á stéttinni mittishá jakahrönn. Þegar við höfðum fengið okkur hressingu i Skálmabæ eftir þessa einkennilegu andvökunótt, bjuggumst við af stað heimleiðis. Létum við eftir hestana og fórum gang- andi. Fórum við saman suður að Skálm. Reyndist hún vatnslítil og óðum við hana. Hélt síðan hver heim til sín sem hraðast. Urðu menn fegnir mjög komu okkar, og þótti sem við værum úr helju heimtir. Lýk eg svo frásögu minni um Kötluhlaup þetta. 13. okt. í dag er að mestu heiðskírt veður. Sést Mýr- dalsjökull að neðanverðu og er mjög umbreyttur frá því, sem hann var áður. Ekki sést hann að ofan fyr en um dag- setur. Virðist þá Jóni Brynjólfssyni, bónda á Pykkvabæj- arklaustri, sem eldsglóð sé ofan á jöklinum, og eru sifeld- ir blossar upp af. AUan daginn eru þungir dynkir. í morg- un fara þeir heim, sem flúið höfðu bæi sína og ætlar hver að vera heima hjá sér í nótt. li. okt. í nótt sofa menn vel og vakna hressir að morgni. Enn er sömu dynki að heyra sem áður. Nú sést ekki bæja á milli fyrir jökulmóðu og mistri. Fellur nú smá- gerður vikur og verður jörð mósvört. En laus er þessi salli ofan á og fer lítið ofan í rótina. Nú eru allir að leita uppi fénað sinn, sem tvístrast hefir í ýmsar áttir. Bjugg- ust menn við miklu fénaðartapi, því margir sáu kinda- hópa þar, sem flóðið beljaði yfir litlu siðar. Að vísu finna menn allmikið dautt af fénaði, en alls ekki eins og við var búist. Hinn 13. sáu menn til Meðallandsins, og sýndust þá

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.