Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Page 31

Eimreiðin - 01.04.1919, Page 31
EIMREIÐIN] MOLD 95 2. nóv. í kvöld hafa verið óslitin eldslog og öskumökkur mikill. Virðist drífa mest úr honum niður á jökulinn. X nóv. Nú er að mestu heiðskírt veður, og sést allur jökullinn. Er nú mökkur sem enginn. Þó þeytast upp gufuílókar öðruhvoru, sem brátt verða sundurlausir. Er sama hægð á i allan dag. A. rióv. Fyrst í morgun sjást örlítil ský læðast upp úr gígnum, en síðan alls ekki neitt. Er nú bjart og létt yfir jöklinuin. Sést nú gerla héðan, að mikil breyting er orðin á honutn. Skerast upp í hann tvö gljúfur og bæði mikil. Annað er upp undan Sandfelli, en hitt fyrir vestan Haf- ursey. Þó er umbreytingin allramest á jöklinum milli há- bungnanna, kringum gíginn. Einnig virðist skriðjökullinn milli Hafurseyjar og Sandfells hafa lækkað að miklum mun. Noróurhjáleigu, 5. nóv. 1918. Gísli Magnússon. Mold. Þú dökka, raka, mjúka mold, sem mildi sólar hefir þítt; hve ann eg þér, hve óska’ eg mér að um þig streymi sumar nýtt. Þú varma, þögla, máttka mold, hve mildur stígur ilmur þinn til himins upp, er árdags blær þér úðann strýkur hægt af kinn. Þú vagga blóma vær og hlý, sem vefst um stein og saltan ós, við daggarbrjóst þín dafnar vel og drekkur fegurð sérhver rós.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.