Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Side 46

Eimreiðin - 01.04.1919, Side 46
110 TÖFRARRÚ OG GALDRAOFSÓKNIR [EIMREIEIN sem skírsluna tók að bera hann níu skref. Þá var bundifr um, og síðan leyst til eftir nokkra daga. Skar prestur þá úr bvort skir væri. — Vatnsdómurinn var aftur á móti- þannig, að sá er í hlut átti var bundinn (stundum á höndum og fótum, stundum aftur á móti hægri þumal- fingur bundinn við vinstri stóru tá) og kastað í vatn, Vatnið hafði áður verið vígt. Ef maðurinn var saklausr tók vatnið við honum og hann sökk, en væri hann sekur, flaut hann. Þessi vatnsdómur mun þó naumast hafa verið notaður nema við galdrakærur. Svona hélt kirkjan á margvíslegan hátt við töfratrúnni, enda þótt hún sjálf bannaði að hegna galdramönnum, og neitaði því, að þeir væru yfirleitt til. Liðu svo nokkrar aldir að við sama stóð, og Canon episcopi kom i veg fyrir galdraofsóknir, þegar á þurfti að halda, og hjátrúin, ætlaði að sprengja af sér öll hönd. Nú víkur sögunni aftur til Alexandríu. Sambandið millr hennar og Evrópu slitnar, og Evrópa er sokkin í styrjaldir öldum saman. En á sama tíma halda vísindalegu töfr- arnir áfram þar í hér um bil 5 aldir. Múhameðstrúar- menn leggja því næst borgina undir sig, og bráðlega fara Márarnir að kynnasl þessum vísindum, og leggja afar- mikla stund á þau. Á tólftu og þrettándu öldinni eru þeir orðnir svo lærðir í því, að engir slíkir töframenn aðrir hafa til verið. Á þrettándu öld komast- svo töfravísindin til Evrópu. Márar eru fengnir til þess að kenna við háskólann, sem Friðrik keisari II. af Hohenstaufen stofnaði í Neapel snemma á öldinni. Vísindamenn Evrópu gleypa við þessir og nú breiðast töfrakúnstirnar út. Kirkjan leit illu auga til þessara vísinda, og þótti með þessu gengið inn á það svið, sem hún ein átti að fást við. En þó lenti þeim aldrei verulega saman. En kirkjan varð auðvitað fyrir stórmiklum áhrifum frá jiessum töfravísindum, og tók þau upp að mestu, og klæddi í kirkjulegan búning. Til þess að skilja hvernig galdra- og djöflatrúin gat hlaupið í þann fjarskalega algleyming, sem raun varð á,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.