Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Qupperneq 57

Eimreiðin - 01.04.1919, Qupperneq 57
EIMREIÐIN] FRESKÓ 121 Eða þá hvernig þessir ensku há-aðalsmenn hegða sér. Þegar þeir komu inn, fleygði eg þegar í stað frá mér vindli, sem eg var með. En þeir reyktu í sífellu, allir karlmennirnir og ein af konunum. Teið var borið inn, og karlmennirnir drukku eitthvert ógeðslegt skólp, sem þeir brugguðu úr sódavatni og einhverju sterku víni, en kon- urnar átu dómadags kynstur af allskonar kökum, heitum og sætum, ávexti með einhverju kryddi, súkkulaði og allskonar góðgæti, og rélt á eftir átti svo að fara að eta kvöldverðinn. Að það skuli ekki eta sig í hel! Loksins var eins og það tæki eftir þvi, að eg var inni, og fór að tala frönsku. Þá verð eg að játa það, að hé- gómagirndin kviknaði hjá mér. Eg varð þess var, að þetta fólk leit á mig alveg sömu augum og einhverja af mynd- unum á veggnum, og þá sagði eg við sjálfan mig: Leónis Renzo! Þegar þú varst í París, þá hafðir þú orð á þér fyrir að geta haldið uppi samræðum með fjöri nokkru. Reyndu nú, karl minn, hvort þú gelur ekki látið þessa vínsvelgi vita, að þú ert undir sama þaki og þeir. Og eg reyndi það. Pað skildi alt vel frönsku, nema einfeldningur einn, sem heitir Colchester lávarður, og hefir altaf gler fyrir öðru auganu. Eg gerði alt, sem eg gat, til þess að skemta því, og mér tókst það. Brátt hættu kökuæturnar með öllu að líta við vínsvelgjunum. Eg sagði þeim sögur og söng fyrir þær þjóðlög. Eg hafði mandólínið mitt hjá mér, og lék á það nokkur lög eftir Schubert. Svo gaf eg þeim smá ákúrur, en það versta var það, að þær voru of einfaldar til þess að skilja, hvað eg fór. Nema greifinnan — húsmóðir mín — hún tók strax upp þykkjuna og varði sig og þetta líf, sem hún og hennar líkar lifa. En hvernig á maður að verjast þeirri hugsun, að þetta sé gerspilt líf, þegar þess er gælt, hvaða möguleika það felur í sér. Nú, jæja. — Eg náði tilgangi mínum. Þær sátu þarna þar til hringt var til merkis um, að timi væri kominn til að klæða sig fyrir kvöldverðinn, og þær litu ekki lengur á mig eins og eg væri köld og dauð veggmynd. Skömmu áður en þær fóru, átti eg alllangt samtal við stúdent einn,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.