Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Síða 59

Eimreiðin - 01.04.1919, Síða 59
EIMREIÐIN] FRESKÓ 123 um? Tók hann eitur í örvæntingu sinni og er grafinn undir skuggasælum eikum á Milton Ernest? — —■ Ef þér ekki svarið mér upp á þetta, þá verð eg neyddur til þess að snúa mér bréflega til ömmu yðar um þessi mál. Hún segir mér áreiðanlega vægðarlaust sannleikann«. Charterys greifinna, Milton Ernest til hr. Hollys, Róm: »Eg er fús að segja yður sannleikann, kæri Harry minn, þó að þér eigið það naumast skilið fyrir afskiftasemina. Sendimanni yðar líður ágætlega. Veggirnir þekjast m}md- um smátt og smátt, frumdráttum, sem hann kallar svo. En það er samt nú þegar snildar fallegt, og verður víst afbragð. Söngpallinn vill hann mála »Sgraffito«, hvað sem það nú er, ekki veit eg það. En eg fylgi ráðum yðar út i æsar og Iæt hann alveg ráða. Hann getur elt allar sínar kenjar. Hann telur knaltleik Ijótan og vitlausan og fæst ekki til að taka þátt í honum. Við og við, svona einu sinni í viku, komum við í danssalinn. f*á syngur hann fyrir okkur, eða les ítölsk kvæði, einstaklega vel. Hann hefir ágæta söngrödd og eg er undrandi, að hann skyldi ekki verða leikari eins og Capoul. Vic. er hrifinn af honum, ■en það er neyðarlegast, að þeir geta varla neitt talað saman. Rér þekkið það, hvernig Vic. talar frönsku. Hann þykist tala hana vel, en það er nú öðru nær. Frönsku- kunnátta hans er rétt mátuleg til þess, að hann getur fylgst með í dansauglýsingum og matarseðlum. Við höfðum ekki hugmynd um það, að hann kynni að silja á hesti. En hvað skeður? Souchong slítur sig lausan þegar átti að fara að flytja hestana (þér kannist við Sou- ■chong). Hann var staddur niðri í garðinum, þegar Souchong kom í spretti. Hann vindur sér að honum og stekkur á bak, og með það þaut Souchong yfir gryfjur og garða vist einar þrjár milur. En að því loknu náði hann fullu valdi á honum og kom með hann spakan eins og lamb heim. Okkur datt ekki annað i hug, en hann lægi hálsbrotinn í ■einhverri gryfjunni«.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.