Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 63

Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 63
EIMREIÐINI RITSJÁ 127 Eg geymi ennþá eldinn og æskudagsins þrótt. Með gullinhyrndum hreinum að heiman ek í nótt. Með gullinhyrndum hreinum og hratt mig yfir ber. — í sálu minni er söngur, til Sólheima eg fer. Hér fanst mér anda móti mér einhverjum tárhreinum himin- svala, alls óskyldum rykinu á Reykjavíkur götunum. Það er enginn efi, að Stefán frá Hvitadal er skáld, hver sem hann er. Ef hann er að tala út frá eigin hjarta í Ijóðunum, þá sýnist hann vera maður hneigður til naulna og lífsgleði, en þjak- aður af heilsuleysi. Af því að hann nú auk þessa er skáld, og sér þvi skarpar inn í fylgsni sálarinnar en venja er, kemur þetta svo átakanlega i Ijós. Pegar syrtir að, leiftrar trúin upp og leggur »brú til fegri landa«. En sú brú reynist honum haldlaus þegar um hægist. Pó sér hann, að hún ein muni nægja um síðir, svo að loks biður hann guð, að láta ekki -----skammær skin skekkja úr lagi brúna. Hreinskilni hans og dirfska er aðdáanleg, en þó verður hann aldrei að jarðvöðli, eins og oft vill verða um slíka menn. Skáld- gyðjan gefur honum einhverja silkiglófa, sem gera öll handtök mjúk og alt hreint, sem liann tekur á. Hann elskar lika skáldadísina og veit vel, að hann nýtur holl- ustu henöar. Verði hann snöggvast hræddur um að hafa brotið af sér hylli hennar, hrekur viðmót hennar þann ótta óðar á brott. Annars skal eg ekki tala um ákveðin kvæði i bókinni, enda hefir það verið gert svo víða. Mér finst bókin öll vera skáld- skapur, spjaldanna milli, þótt ekki sé hún ávalt jafngóð. Það er laglega af stað farið og ættu fleiri slíkar að fara á eftir. Pá getur Stefán frá Hvitadal lagt laglegan skerf í guðskistuna. M. J.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.