BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 32

BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 32
míjr' f K/É"4m mm l J j 'I® . . ■ Sj| % 1 ■ :í|| ■ !;J Frá úrstitakeppni í vélhjólaakstri Einar Guðmundsson. Eins og kunnugt er hefur Bindindisfélag öku- manna staðið fyrir aksturkeppnum í Ökuleikni, þar sem öryggi, þekking og leikni í akstri eru höfð í öndvegi. Síðastliðið sumar var sjötta sumarið sem keppnir þessar eru haldnar í því formi sem þær eru nú. Áður var BFÖ með svokallaða góðakstra eingöngu og eru þeir haldnir alltaf öðru hverju. Kepþnirnar eins og þær eru nú Uþpbyggðar eru haldnar á milli 20-30 stöðum víðsvegar um landið. Eins gott að vanda sig. Hefur starfsmaður félagsins ferðast um landið á bíl félagsins með öll tæki og pappíra og haldið keppnir á hinum ýmsu stöðum. BFÖ befur notið góðs samstarfs við aðstoðarmenn úti á landi, er hafa séð um undirbúning keppnanna á hverjum stað. Allir ökumenn er hafa skoðunarhæfan bíl eru gjaldgengir í keppnina. Hún hefst með krossaprófi um umferðarmál og reglur, því næst er ekið í gegnum þrautaþlan og reynir þar á þekkingu og leikni ökumanns. Tímataka er í brautinni, svo ekki er nóg að geta bakkað í stæði, heldur gildir einnig að vera snöggur við það. í fyrra var keþþt í fyrsta sinn í karla- og kvennariðli og mæltist það vel fyrir. Sigurvegarar í hvorum riðli hafa svo möguleika á að taka þátt í (slandsmeistarakeþpni ökuleikninnar. Þar hafa ætíð verið vegleg verðlaun í boði og hafa það verið utanlandsferðir sigurvegara sem kepþa fyrir (slands hönd í Norrænni Ökuleikni. Af þeim 6 skiptum sem íslendingar hafa sent keppendur, höfum við fjórum sinnum orðið Norðurlandameistarar í landskeppni og tvisvar átt sjálfan Norðurlandameistarann. í fyrra skiptið var 32

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.