BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 34

BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 34
Stjórntækin í Volvo 360 GLE. 6000 km á hraðbrautum IJvrópu í Volvo 360 Eins og fram hefur komið í grein um Ökuleikn- ina þá útveguðu umboðsmenn Volvo á íslandi Bindindisfélagi ökumanna tvo nýja Volvo 360 bíla til afnota vegna Norrænu ökuleikninnar í Vín í Austurríki í lok október s.l. Þar sem BFÖ varð alfarið að sjá um kostnað vegna fararinnar, en Opel GM umboðin á hinum Norðurlöndunum sáu um fararkostnað keppenda hinna bindindisfélaganna, var valin ódýrasta leiðin. Sú var að fljúga til Amsterdam í Hollandi og aka þaðan til Austurríkis. Flogið var með Arnarflugi hf. til Amsterdam og ferðaðist fararstjóri hópsins frítt í boði Arnar- flugs. Þegar lent var á Schipool flugvelli biðu hópsins tveir nýir Volvo bílar annar 360 GLE og hinn 360 GLT. Þessi lína hefur nýlega verið kynnt hér á landi. Umboðsmaður Veltis hf. hafði séð fyrir öllu sem til þurfti. Gefið upp nöfn á hinum ýmsu umboðs- mönnum Volvo í Hollandi, Þýskalandi og Austur- ríki ef eitthvað óvænt kæmi upp. Einnig hafði hann boðið hópnum að skoða Volvo verksmiðjurnar í Born í Hollandi, en því miður gat hópurinn ekki þegið það vegna tímaskorts. Meira að segja útvegaði hann hópnum vegakort af Hollandi, Þýskalandi og Austurríki. Fyrir hópnum lá að aka sem leið lá frá Hollandi 34 til Vínar á rúmlega einum sólarhring. Því gafst gott tækifæri til að reyna hina nýju bíla frá Volvo. Annar bíllinn var 4 dyra GLE sedan en hinn 3 dyra GLT hatchback. Báðir hafa þeir 115 hestafla, 2ja lítra vélar með LE-jetronic beinni innspýtingu, þ.e. rafeindastýrðri blöndun á lofti og bensíni, sem gerir þá einkar sparneytna. Vélarnar eru tengdar við 5 gíra gírkassa, sem eru staðsettir við afturhásingu. Ekki ósvipað og bílareins og Ferrari og Porsche hafa. Fimmti gírinn er yfirgír sem kemur bílnum upp í 185 km/klst. Miðað við hve bíllinn er þungur, 1210 kg með 4 cyl. vél þá er hann mjög snöggur og tekur aðeins 10.5 sekúnd- ur að aka frá 0-100 km/klst. Það segir sig líka sjálft að bíll með yfirgír er mjög sparneytinn og er GLE bíllinn með aðeins 6.8 lítra pr. 100 km og GLT bíllinn með 7.1 lítra úti á vegi. Á hraðbrautarkeyrslu með bílana full- hlaðna og meðalhraða milli 130-150 km/klst. var eyðslan 8.2 lítrar á GLE bílnum og 8.4 lítrar á GLT bílnum. Það reyndi mjög á sætagerð og alla innréttingu bílsins í svo langri ferð. Sæti voru mjög þægileg og féllu vel að líkamanum. Þó hefði mátt vera hærra undir toppinn fyrir aftursætisfarþega. öll innrétting bílanna er mjög vönduð eins og gerist í öllum Volvo bílum í dag. Meira er lagt í

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.