BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 27
nokkrum atriðum varðandi ályktanir og reynslu
Andrésar í þessari síðustu bílferð hans.
Það er ákveðið samband milli þunglyndis-
ástands Andrésar og haustdrungans. Haust-
drunginn með myrkri og regni, visnuð lauf, sem
vindurinn feykir, eykur og magnar hjá ökumann-
inum hugarástand felur m.a. í sér óttann við
eithvað, sem hann veit ekki hvað er.
Andrés telur, að sum atvik í lífi hans séu svo
frábrugðin almennri reynslu, að hann vill helzt ekki
ræða þau við aðra. Hann fyrirvarð sig, þegar
vegaeftirlitmaðurinn kom, meðan hann var að þvo
umferðarmerkið.
Skyndilcga birtist vegamerkið i glampa billjósatina.
Á leiðinni gegnum drungalegt skógarsvæðið
skynjar hann myrkrið sem dularfulla ógn að baki
sér. Svæði, þar sem greinilega getur dulizt
eitthvað fjandsamlegt og dularfullt, án þess að
hann viti hvað það er. Taugaspennan eykst
stöðugt. Þessar æstu tilfinningar, geðshræringar,
einkum óttinn, verka á taugakerfið og innkirtlana
og örva vöðvana, unz ekillinn — sjálfrátt eða
ósjálfrátt — skynjar spennuna og hagræðir sér í
sætinu til að draga úr henni. Þessi vöðvaspenna
er nokkurs konar undirbúningur að fyrirvaralausri
athöfn. Án þess að ekillinn geri sér þess grein,
auka spenntir vöðvar áhrif sín á fóta- og leggja-
hreyfingar, og bíllinn þýtur með vaxandi hraða
gegnum skóginn. Þessi ósjálfráði sálræni og
líkamlegi viðbúnaður þarf ekki mikla viðbótar-
hvatningu frá tilfinningalífinu til þess að Andrés
þoli ekki meira og afleiðingin verði skelfingarvið-
brögð (panik).
Sterk rök hníga að því, að kornið, sem fyllti
mælinn, hafi verið hinn dularfulli bíll í skóginum og
sprengingin í útblástursrörinu, sem Andrés hefur
sennilega skynjað sem byssuskot. Sennilega
hefur hann ályktað, að skotinu væri stefnt að sér.
Hugsanir hans og hegðun við aksturinn gegn um
skóginn benda til þess, að hann hafi þjáðst af
ofsóknarhugmyndum. Hann reyndi að aka burt
frá ofsækjendum sínum og afleiðingin varð slysið.
Læknir Andrésar staðfestir síðar, að þessar
ályktanir okkar séu réttar. ( sjúkraskýrslu læknis-
ins finnum við sjúkdómsgreiningu frá taugalækni,
sem Andrés hefur nokkrum sinnum verið sendur
til. Þar stendur: „Vangildur" (subvalid) persónu-
leiki með ákveðnum ofsóknarímyndunum. Mað-
urinn drap sig í akstri sökum ótta við ímyndaða
ofsækjendur. Hinn ímyndaði ofsækjandi er, frá
sálrænu sjónarmiði, jafn raunverulegur þeim
manni sem í hlut á, eins og væri hann til í raun og
veru.
ENGA FÍLA I BÍLA
SITJIR ÞÚ BELTISLAUS í BÍL
OG BIFREIÐAÁREKSTUR VERÐUR
HÖGGÞYNGD JAFNGILDIR HEILUM FÍL
HVERNIG SEM ÞÚ ERT GERÐUR.
Þungi þinn höggþyngd á höggþyngd á gv
20 kg > 1.565 kg 2.057 kg
50 kg > 2.475 kg 3.253 kg
75 kg >3.031 kg 3.984 kg
27