Tölvumál - 01.12.1990, Síða 4
Desember 1990
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaður Sl
Árshátíð SÍ Félags
tölvunarfræðinga og
KERFÍS 25. janúar
í fyrra var haldin fyrsta árshátið
Skýrslutæknifélagsins og var hiín
haldin í samvinnu við ofangreind
félög. Er skemmst frá því að
segja að frábærlega tókst til og
hefur verið ákveðið að efna til
samstarfs á ný um árshátíð.
Verður hún haldin föstudaginn
25. janúar næstkomandi. Er mjög
ánægjulegt að áframhald skuli
verða á þessu samstarfi.
Mjög er vandað til dagskrár og
hefúr undirbúningsnefndin lagt
mikla áherslu á að árshátíðin geti
oroið sem glæsilegust og
eftirminnilegust fyrir þá sem þátt
taka án þess þó að verðið verði of
háu. Það er mat mitt að allur
undirbúningur gefi tileíhi til þess
að þessi markmið muni nást.
Ársfundur SÍ -
25. janúar
Nú, eins og síðastliðið vetur,
verður Ársíundur SÍ haldinn sama
dag og árshátíðin. Stefnt er að
fjölbreyttri dagskrá á fundinum
sem verður í ráðstefnuformi.
Ársfundurinn er haldinn í
tengslum við aðalfund félagsins
sem er í beinu ffamhaldi af honum.
Með því að hafa Ársfundinn,
aðalfundinn og árshátíð félagsins
sama daginn er stefnt að því að
gera þennan dag að sannkölluðum
Upplýsingatæknidegi SÍ.
Láttu þig ekki vanta!!!
ET dagur SÍ
7. desember fjölsóttur
Þátttakendur á jólaráðstefnu SÍ
voru 155 en hún fjallaði um
myndræna framtíð einmennings-
tölva. Haldin voru sjö fróðleg
erindi um einmenningstölvur og
notkun þeirra og var góður rómur
gerður að þeim. Er ljóst að þessi
viðburður hefur skipað sér í fast
sæti í hugum félagsmanna því
hún var jafn fjölsótt árið 1989.
Hins vegar má húsnæðið ekki
vera minna og kann að vera að
ástæða sé til þess að leita annað
á næsta ári.
Tveir fjölsóttir fundir í
nóvember
Tveir hádegisverðarfundir voru
haldnir í nóvember og fjallaði
annar þeirra um nýja gjaldskrá
Póst- og símamálastofhunar fyrir
gagnatengingar. Fundurinn, sem
haldinn var 13. nóvember og
sóttur af 63 félagsmönnum, var
Qörugur og þurfti að framlengja
hann um 15 mfnútur.
Hinn fundurinn, sem haldinn var
27. nóvember, fjallaði um málefhi
RUT nefndarinnar og sóttu hann
85 manns.
Aðalfundur - 25. janúar
1990
Aðalfundur félagsins verður
haldinn 25. janúar næstkomandi.
Þá skal, auk hefðbundinna
aðalfundarstarfa, kjósa formann,
meðstjómanda og skjalavörð auk
varamanna. Á liðnum árum hefur
aðsókn að aðalfundi verið afar
dræm og sum árin aðeins
stjómarmenn mætt. Er það miður
því marg fróðlegt um starf
félagsins má sækja á fundinn
m.a. er þar flutt skýrsla stjórnar
og gerð grein fyrir fjármálum
félagsins. Em því þeir sem áhuga
hafa á málefnum félagsins hvattir
til þess að mæta á fundinn, en
hann verður haldinn að loknum
ársfundi félagsins!
Gleðileg jól!
Fyrir hönd stjórnar og
framkvæmdastjóra vil ég ljúka
þessum pistli með því að óska
félagsmönnum SÍ, fjölskyldum
þeirra og samstarfsmönnum
gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs og þakka fyrir liðið ár.
4 - Tölvumál