Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 11
Desember 1 990
endursala á línunum eða hluta úr
þeim.
Þess ber að gæta, að í fjar-
skiptalögunum er ekki tekið íram
að skoða eigi virðisaukandi
þjónustu með öðrum hætti en
fjarskipti almennt. Þvert á móti
gefur orðalagið "hvers konar
fjarskipti" í 2.grein laganna til
kynna að ekki hafí verið ætlunin
að hafa neinar undantekningar á
einkarétti ríkisins.
Póstur og sími taldi hins vegar
að svo ffamarlega sem ijarskipta-
virki ríkisins, þ.m.t. leigulínur,
væru notuð sem grunnsamband,
bryti það ekki í bága við anda
laganna að leyfa einkafyrirtækjum
að selja virðisaukandi fjarskipta-
þjónustu. Þar að auki verða
mörkin milli íjarskipta og
tölvuvinnslu stöðugt ógreinilegri.
Samgönguráðuneytið hefur lýst
sig sammála þessari túlkun og
gefið grænt ljós fyrir þeim
breytingum á gjaldskrá og reglum,
sem gefnar voru út á síðastliðnu
sumri. Samkvæmt reglunum eru
leigulínur greindar í þrjá flokka
Erfitt er að finna formúlu,
sem leiðir til jafnhárra
gjalda fyrir gagna-
flutningsnetið og
leigulínur.
eftir umfangi samtengingar. í
fyrsta flokki eru þær línur, sem
eingöngu tengja saman mis-
munandi starfsstöðvar sama
fyrirtækis og njóta þær sem fyrr
sérstakra kjara. í öðrum flokki
eru þær línur, sem tengja saman
tvö óskyld fyrirtæki og eru
notaðar af öðru fyrirtækinu til að
veita hinu tölvuþjónustu í
einhverju formi. Þessari notkun
hefur verið lýsthér að framan og
er ekki um að ræða neinar
breytingar á þeim reglum og
gjöldum, sem gilt hafa fyrir þær.
í hinum nýja þriðja flokki eru
síðan línur, sem hægt er að nota
til að samtengja fleiri en tvo
aðila svo framarlega sem fram
fari sala á virðisaukandi þjónustu.
Við ákvörðun á gjöldum fyrir
leigulínur í þriðja flokki vildi
Póstur og sími hafa að leiðarljósi
að ekki skyldi vera áberandi
munur á gjöldum fyrir gagna-
flutning hvort sem hann fer fram
í almenna gagnaflutningsnetinu
eða á leigulfnum. Samanburður
á gjöldum fyrir leigulínur í
2.flokki og í gagnaflutningsnetinu
er hinu síðarnefnda mjög í óhag
þrátt fyrir það að íslenska
gagnaflutningsnetið sé rekið með
lægri afnotagjöldum en í
nágrannalöndum okkar. Póstur
og sími óskaði að fá að taka
magngjald af leigulínum í 3.flokki
á svipaðan hátt og gert er í
gagnaflutningsnetinu, en þar sem
mæling getur ekki auðveldlega
farið fram á leigulínunum, var
gert ráð fyrir að reikna með 8
mínútna notkun á dag á þeim
bitahraða, sem línan er leigð
fyrir. Fordæmi eru fyrir gjaldtöku
af þessu tagi á leigulínum fyrir
talsíma.
Þar sem ljóst var að þessi gjaldtaka
mundi alls ekki duga til að skapa
jöfnuð milli leigulínanna og
almenna gagnaflutningsnetsins
var jafnframt lagt til að lækka
gjöld í hinu síðarnefhda. Tillögur
Pósts og síma voru þær að lækka
föst afhotagjöld um 25% og lækka
gjaldið fyrir hverja gagnasneið
úr 1,7 eyri í 1,1 eyri innan sama
hnúts í netinu og úr 2,4 aurum í
2,2 milli hnúta. Þetta samsvarar
35 og 8,5% lækkun á gagna-
sneiðargjaldinu. Sérstök áhersla
var lögð á lækkun innan sama
hnúts, vegna þess að þar var að
finna mest ósamræmi við
leigulínur.
Erfitt er að fmna formúlu, sem
leiðir til jafnhárra gjalda fyrir
gagnaflutningsnetið og leigulínur
í öllum tilvikum og ef til vill ekki
óeðlilegt að gjöld í hinu fyrrnefnda
séu eitthvað hærri með hliðsjón
afþvíaðþaðnærtil allslandsins.
Með hinum nýju reglum hefur
náðst eftirtalinn árangur:
1. Viðurkennt er að virðisaukandi
þjónusta brjóti ekki í bága við
jjarskiptalögin, en víða erleruiis hejur
reynst nauðsynlegt að breyta
jjarskiptalögum eða setja ný lög til
þess að innleiða slíkar þjónustur.
Viðurkenningin skapar grundvöll
jyrir aukna starjsemi einkajyritœkja
á sviði upplýsingatœkni.
2. Komist er hjá því að hajna leigu
á línum hjá aðilum, sem haja í
hyggju að nota þær umjram það,
sem tíðkast hejur.
3. Gjaldskrá og reglur um leigulínur
eru nú skýrari en áður.
4. Viðurkennt er það sjónarmið að
jyrir gagnajlutning skuli gilda gjöld
cjsömu stærðargráðu óháð því hvaða
leiðir eru valdar íjjarskiptavirkjum
ríkisins. Þannig má œtla að auð-
veldara verði jyrir Pósti og síma að
uppjylla ájram þœr kröjur, sem til
stojnunarinnar eru gerðar um að
veita sömu jjarskiptaþjónuslu um
allt land.
Miklar umræður hafa á síðustu
árum farið ffam erlendis um þróun
fjarskipta, ekki hvað síst í
Efnahagsbandalaginu. Þær
ákvarðanir, sem þar eru teknar,
munu hugsanlega hafa áhrif á
framvindu mála hér á landi.
Nýmælin í gjaldskrá Pósts og
síma eru á ýmsan hátt í takt við
það sem er að gerast í Evrópu og
býr okkur undir hugsanlegar
breytingar á fjarskiptastarfsemi.
Pósti og síma er engu að síður
ljóst, að breytingar eru nú svo
örar á fjarskiptasviðinu að líklega
þarf að endurskoða reglur um
leigulínur aftur eftir stuttan tíma
og þá með hliðsjón af þeirri
reynslu sem fæst af núverandi
gjaldskrá.
11 - Tölvumál