Tölvumál - 01.12.1990, Blaðsíða 22
Desember 1 990
Inni f hverri tölvu er tengibraut
sem tengir saman mismunandi
hluta tölvunnar. Skoða má
hraðvirkan netbúnað sem beina
framlengingu tengibrautarinnar
og verður þá ekki mikill munur
á hraða, hvort sem seguldiskur
er hluti af tölvunni eða tengdur
henni yfir hraðvikt net.
Samnýting er lykilhugtak í
hagræðingu á vélbúnaði. Sam-
starf og sjálfstæði eru hins vegar
lykilhugtök þegar horft er til
hagræðingar á vinnu fólks.
Sjálfstæði við öflun gagna,
sjálfvirkni þar sem henni verður
við komið, samstarf um nýtingu
gagnanna, sjálfstæði við
úrvinnslu, samstarf um viðbrögð
við niðurstöðum.
Ef litað er sterkum litum má
segja að fjölnotendatölvur séu
tœki miðstýringar, einmennings-
tölvur tceki til sjálfstœðis og
tölvunet tceki til samvinnu.
Gagnasöfn
Verkefni sem nota sameiginleg
gögn tengjast betur, breytast og
renna jaíhvel saman í eitt verkefiú.
Það verður að gera ráð fýrir að
úttak úr einu verki verði notað
sem inntak í annað. Markmið
tölvuvinnslunnar á ekki að vera
Hugbúnaður sem sér um
skilgreiningu og viðhald
gagna, samtengingu skráa
yfir net, fyrirspurnir og
skýrslugerð er flökinn
og dýr.
að framleiða útprentanir, hvorki
meðtaladálkumnétexta. Þóttsú
hafi verið runin undanfarin ár og
verði eitthvað áíram, þá er eðlilegt
að líta áþað sem ákveðinn áfanga
íþrónuninni. Ég er ekki að lofa
því að pappíshaugarnir hverfi,
heldur breytist eðli þeirra og
markmið. Þeir munu sennilega
vaxa næstu árin.
Gagnasafn á einni fjöl-
notendatölvu er nokkuð með-
færilegt fyrir forritarann.
Hugbúnaðurinn er til og er
notaður sem grunnur að
hugbúnaði sem margir fram-
leiðendur eru með f þróun til
þess að vinna með dreifð
gagnasöfn. En fjölnotendatölvan
er á ýmsan hátt óhentugt verkfæri
fyrir notendur sem þurfa að geta
notað búnaðinn eftir eigin höfði.
Það er grundvallarsjónarmið í
skipulagningu margra verkefna
á tölvum að þau séu á þeirri tölvu
sem notandinn notar daglega,
annars verður tölvuvinnslan
óaðgengileg.
Ef gögn eru geymd í dreifðu
gagnasafni passar hver og einn
sína skrá á sinni tölvu, hann einn
getur breytt, en margir geta lesið
skrána yfir tölvunetið. Hug-
búnaður sem sér um skilgreiningu
og viðhald gagna, samtengingu
skráa yfír net, fyrirspurnir og
skýrslugerð er flókinn og dýr.
Hannerígeysilegriþrónun. Ein
krafan sem gerð er til slíks
hugbúnaðar er að hann nýti sér
venjulegan netbúnað þannig að
þetta verið eðlilegur hluti af
tölvunetinu en ekki annað net til
hliðar við hitt. Svo mikið gengur
á að markaðsmenn, tölvu-
blaðamenn og aðrir áhugamenn
mega ekki vera að því að bíða
eftir raunveruleikanum. Það getur
kostað eftirgangsmuni að fá að
vita að ekki séu einu sinni búið
að ákveða útgáfudag hugbúnaðar
sem auglýstur hefur verið og
kannski kemur ekki fram fyrr en
í svari við formlegri pöntun að
hugbúnaður sem búið er að gefa
út sé ekki til nema fyrir ákveðin
afbrigði af stýrikerfí og geri
óvenju stífar kröfur um netbúnað.
Tölvupóstur
Tölvupóstur er þjónusta sem
öðlast nýja vídd á tölvuneti.
Notandi getur sent öðrum
notendum skilaboð eða skrár, sá
sem fær tölvupóst getur svarað,
sent póstinn áfram til annars eða
afritað dagsetningar inn í dagbók.
Með tölvunetunum stækkar sá
hópur sem unnt er að eiga
samskipti við með þessum hætti,
en tölvupóstur á sér nokkra sögu
á fjölnotendatölvum. Þegar ég
sendi manni í næsta herbergi
tölvupóst er nóg að gefa upp
notendanafn hans, rétt eins og ég
væri að senda honum umslag í
innanhússpósti. Ef ég ætla að
senda tölvupóst til manns í
útlöndum lengist tölvupóstfangið
eins og um utanáskrift á venjulegt
bréf. Að öðru leiti er
póstsendingin eins, alþjóðlega
tölvunetið er útvíkkun á því sem
ég vinn með daglega.
Nýir notendur tölvupósts eru
nokkurn tíma að læra að hafa full
notafhonum. Fyrst í stað senda
menn skilaboð eins og "viltu
hringja í mig", seinna fara þeir
að senda nokkrum notendum
samtímis boð eins og "fundur á
morgun -> 5.okt. kl. 14 hjá
mér. Gengur það ?" og loks
verður pósturinn vettvangur fýrir
efnislegar umræður líka.
Hópurinn sem maður hefur dagleg
samskipti við breytist, hann er
ekki lengur takmarkaður við þá
sem eru mest á skrifstofunni eða
þá sem eru á ferli hjá
kaffíkönnunni á sama tíma. I
símaskráHáskóla íslands sem út
kom í febrúar 1990 eru talin upp
64 tölvupóstföng, í nýrri útgáfu
verða þau fleiri.
Tilbrigði við tölvupóst eru
ráðstefnur, eins konar
tölvupóstur sem ekki er sendur
neinum manni, heldur er
22 - Tölvumál