Tölvumál - 01.12.1990, Side 25
Desember 1 990
var að flýta fyrir ákvörðunartöku
og þar með skilvirkni fyrir-
tækisins.
Þetta nýja tölvukerfi saman-
stendur af einmenningstölvum
tengdum saman með nærnetum.
Frá hverju nærneti var Eicon
gátt sem tengdi nærnetið inn á
X.25 net. í gegnum X.25 netið
gátu notendur síðan komist inn á
hvaða auðlind sem var til að
sinna störfum sínum á sem áhrifa-
ríkastan hátt.
Einmenningstölvurnar voru allar
386 og/eða 386SX með örgjörva
frálntel. Myndræn framsetning
var sett upp hjá öllum notendum.
Hvert nærnet hafði ritvinnslu,
töflureikni, spjaldskrá og tölvu-
póst.
Með uppsetningu sem þessari
gátu starfsmennirnir unnið að
ritvinnslu, töflureiknum eða verið
tengdir við Sabre eða einhverja
aðra auðlind fyrirtækisins.
Aðgangur að öllum þessum
forritum í netunum svo og að
stórtölvum var f gegnum
myndrænaframsetningu. Áskjá
hjá hveijum og einum var ákveðin
mynd fyrir ritvinnslu, önnur fyrir
tölvupóst og síðan önnur fyrir
aðgang að Sabre.
Á þennan hátt gat hver og einn
notandi verið samtímis með
ritvinnslu í gangi töflureikni og
tengingu við allt að níu
mismunandi stórtölvur. Hann gat
hoppað á milli forritanna og
stórtölvanna að vild. Afritað
gögn frá einu kerfi og yfir í
annað og þar með unnið úr
gögnum þar sem það var
auðveldast.
Notandinn vissi ekkert um það
hvernig hann komst í samband
við þessar auðlindir hann bara
komst í samband.
Starfsmenn American Airlines
Inc, hafa fylgst náið með fram-
gangi þessa átaks. Meðframmi-
stöðumælingum hafa þeir komist
að því að með uppsetningu sem
þessari þá hafi þeim tekist að
auka framleiðni um 7 % til 9 %.
Lykilinn að þessum árangri er
samspil milli einmennings-
tölvunar, nærnets, gátta og X.25
annars vegar og auðlinda á
nærnetum og stórtölvum hins
vegar.
Mynd 1
Færum okkur nú um set og
skoðum hvað hefur verið
framkvæmthérheima. Þóokkar
dæmi séu kanski smærri f sniðum
þá eru þau samt sem áður
sambærileg við dæmið hér að
undan.
Eimskipsdæmiö
Hjá Eimskip hefur verið sett upp
nærnet ígámadeild fyrirtækisins
að Vatnagörðurm 26. Frá þessu
nærneti er gátt sem tengir netið
við AS/400 tölvu Eimskip f
Pósthússtræti. í dag er þessi
tenging eftir SDLC ljarvinnslu-
staðli við tölvuna en fyrirhugað
er að breyta yfir í X.25 samskipta-
staðalinn.
Hver og einn notandi hefur
einmenningstölvu sem hefur
myndræna framsetningu þar sem
smámyndir gefa til kynna hvaða
forrit eða tenging stendur á bak
við smámyndina.
í gegnum netið geta starfs-
mennirnir komist í ritvinnslu,
töflureikna, spjaldskrá, tölvupóst,
sameiginlegar dagbækur, sam-
einginlegar símaskrár og
tengingar við stórtölvuna. Á
þennan hátt geta þeir samnýtt
forrit, gögn, prentara, upp-
lýsingar um tímabókanir hvers
og eins, símaskrár og aðgang að
stórtölvu fyrirtækisina.
Með þessum aðgangi í gegnum
nærnetið þá getur hver og einn
Amerúan integrates old with new
Int&rAAct
Commerclal Systems Netvrork
25 - Tölvumál