Tölvumál - 01.12.1990, Side 29
Desember 1 990
Tölvunet "Opinna" kerfa -
OSI
Open Sytems Interconnect
Ragnar Marteinsson, HP í Danmörku
Staðlar
í heimi alþjóðaviðskipta, eru góð
samskipti orðin lykill að vel-
gengni. Nútímaviðskipti kreíjast
mikils og nákvæms upplýsinga-
flæðis á sem skemstum tíma.
Gríðarlegt magn af gögnum þarf
að fullvinna og senda milli staða,
deilda, fyrirtækja og landa.
Enginn einn tölvuframleiðandi
getur fullnægt þörfum mark-
aðarins í heild. Þannig geta þeir,
sem þurfa að koma á dreifðri
gagnavinnslu, þurft að blanda
saman búnaði frá ólíkum
framleiðendum.
Þegar notendur komast slðan loks
að raun um ósamhæfni hug- og
vélbúnaðar, myndast fljótt þörfm
á einhverri stöðlun í net- og sam-
skiptabúnaði.
Það má segja að stöðlun netkerfa
geti verið þrennskonar:
1) Lokað netkerfi þar sem einn
framleiðandi er allsráöandi.
2) Viðurkenndur en samt lokaður
staðall valinn (de facto).
3) Viðurkenndur alþjóðastaðall
valinn.
í númer eitt mun sá framleiðandi
sem hefur náð mestri útbreiðslu
hagnast á meðan aðrir
framleiðendur neyðast til þess
að elta. í númer tvö er farin
millileið, þar sem oftast fáir
framleiðendur geta uppfyllt öll
skilyrði, sérstaklega hvað varðar
nauðsynlegt viðhald og stækkanir
á netinu. í númer þrjú er
viðurkenndur alþjóðastaðall
valinn sem er óháður fram-
Ieiðanda. Hér er í raun dæmi um
samtengingu "opinna kerfa"
(OSI).
Hvað er OSI og hvað býður þessi
staðall notendum upp á ? Tökum
dæmi um alþjóðlegt fyrirtæki
sem starfar í mörgum löndum:
Fyrirtækið skiptist í fímm deildir:
Verksmiðju sem framleiðir
fullunnar vörur, lager sem sér
um birgðir og dreyfingu,
söluskrifstofu, hráefnisdeild og
fjármáladeild.
Þróuð hefur verið ný vörutegund,
XYZ, og er nú verið að leita að
kaupendum út um allan heim.
Samskipti milli deilda
Söluskrifstofa fær fyrirspurn um
vöruna frá stórum kaupanda.
Sumar upplýsingar er þegar fyrir
hendi en eitt af aðalatriðunum
vantar, verðið! Söluskrifstofan
sendir strax beiðni til verk-
smiðjunnar og biður um nýjan
verðlista.
Verksmiðjan heldur utan um allar
vöruupplýsingar í miðlægu
gagnasafni. Þetta er stór skrá
með verðum, samsetningar-
möguleikum og magnafsláttar-
reglum. Til að svara
fyrirspurninni frá söluskrif-
stofunni, er skráin send yfir OSI
netkerfi lyrirtækisins með FTAM
samskiptamáta (File Transfer and
Access Method protocol).
Þar sem eftirspurn eftir vöru
XYZ hefur aukist mikið, er
ákveðið í verksmiðjunni, að
tryggja söluskrifstofunni nægjan-
legt magn í framtíðinni. Send er
fyrirspurn til þess lagers, sem
sér um viðkomandi söluskrifstofu
og spurt hve mikið sé til af
vörunni. Lagerinn svarar fyrir-
spurninni með tölvupósti
(eletronic mail). Fyrir þessi
einföldu samskipti þarf ekki að
Enginn einn
tölvuframleiðandi getur
fullnægt þörfum
markaðarins í heild.
senda stóra gagnaskrá heldur
nægja einföld gagnasamskipti.
Hér er notaður samskiptamátinn
CCITT X.400, sem er hluti af
OSI staðlinum. (CCITT, The
International Telegraph and
Telephone Cunsultative
Commitee)
Ekki er til nægjanlegt magn af
vörunni á lager, þannig að í
verksmiðjunni er ákveðið að auka
framleiðsluna til þess að mæta
eftirspurn. Hráefnisdeildin þarf
að útvega verksmiðjunni hráefni.
Taka þarf á móti pöntunum, panta
nauðsynlegt hráefni á þar til
gerðum eyðublöðum, senda út
reikninga og borga reikninga.
Pantana- og reikningagerð er
yfirleitt flóknari en svo að hægt
sé að notast við skráarflutning
eða tölvupóst.
Hér er notast við túlk sem kallaður
er EDI (Eletronic Data
Interchange) og sér hann um útlit
gagna. EDI túlkur notar X.400
samskiptamátann. I kjölfar EDI
hefur annar staðall, öllu víðtækari,
náð mikilli útbreiðslu en það er
29 - Tölvumál