Tölvumál - 01.07.1996, Side 7

Tölvumál - 01.07.1996, Side 7
Júlí 1996 MODE - Music On Demand Eftir Heiðar Jón Hannesson Eitt af nýju viðfangsefnum Skýrr hf. er verkefni sem kallast MODE eða Music On Demand. Um er að ræða samstarfsverkefni sjö aðila frá sex löndum sem snýst um að koma upp rafrænni versl- unarkeðju með tónlist. Verkefnið er styrkt af IMPACT áætlun ESB og RANNÍS. Meginaðgangur að verslunarkeðjunni verður í gegnum samnet en að auki verður boðið upp á takmarkaðri aðgang frá Intemetinu. Verslunarkeðja Hugmyndin að baki MODE er að nýta upplýsingatækni til að auðvelda aðgengi að tónlist og upplýsingum um hana. Gert er ráð fyrir að komið verði upp verslun- um sem hver um sig sérhæfir sig í tónlist frá heimamarkaði. Versl- anirnar verða samtengdar þannig að viðskiptavinir munu upplifa alla keðjuna sem eina verslun. Með þessu móti er hægt að skipta því mikla magni upplýsinga, sem slfkri þjónustu fylgir, niður í viðráðan- legri einingar en samtímis haft opið fyrir aðgang að öllu vöruiírvalinu. Vara sem sett er upp í einni verslun verður samstundis aðgengileg frá þeim öllum. Vara í nýrri verslun, sem bætist í keðjuna, verður einnig samstundis aðgengileg frá þeim sem fyrir eru. Viðskiptavinir MODE munu fá beinlínuaðgang að tónlist og ýmsum upplýsingum um hana. Þannig geta notendur einmennings- tölva leitað að tónlist eftir ýmsum leitarskilyrðum, s.s. höfundum, flytjendum, útgefendum og heiti laga. Einnig geta þeir hlustað á tóndæmi af því sem í boði er. Kaupin fara fram með tvennum hætti. Annars vegar verður hægt að panta geisladiska og þeir afgreiddir í gegnum póst. Hins vegar verður boðið upp á kaup á hljómlist á tölvutæku formi. Kaupendur munu þá annað hvort kaupa einstök lög til vistunar á einmenningstölvum sínum eða kaupa spilun á hljómlistinni í gegnum þjónustuna. Högun MODE Innri högun MODE mun grundvallast á dreifðum miðlurum sem verða samtengdir með breiðbandstækni (ATM). Tónlistin verður vistuð á stafrænu og þjöppuðu formi, skv. „MPEG Layer 3“ staðli. Innviðir miðlar- anna verður eðlilega nokkuð flókin. Þannig verður sérstakt kerfi til að halda utan um eignar- og höfundarrétt allra eininga sem notast í kerfinu (hljóð, myndir, texti o.s.frv.). Slíkt er nauðsynlegt til að tryggja hlutaðeigandi eig- endum/höfundum greiðslur fyrir notkun á hugverkum sínum. Ytri högun, þ.e. sá hluti er snýr að notendum, verður byggð á tækni veraldarvefsins. Aðgangur að þjónustunni verður í gegnum samnet (ISDN) og að hluta frá Intemetinu. Til að geta nýtt sér þjónustu MODE þurfa notendur að hafa yfir að ráða nokkuð öflugri ein- menningstölvu (Pentium), sam- netsspjaldi, aðgangi að samneti, flettara fyrir veraldarvefinn, s.s. Netscape og sérstakan „MPEG Layer 3“ spilara Winplay3 sem notast sem hjálparviðfang í flett- aranum. Rauntímaspilun á CD tóngæðum Sem fyrr segir verður tónlistin vistuð á stafrænu þjöppuðu formi skv. MPEG L3 staðli. Gert er ráð fyrir að notast verið við þjöpp- unina 12,6 og söfnunartíðni 44,1 khz. Með því móti næst rauntíma- spilun yfir 128 kbit/sek flutnings- línu, en það er sú flutningsgeta sem grunntenging við samnet býður upp á. Hljómgæðin á slíku formi eru nánast þau sömu og beint af geisladiski. Endanlegu hljómgæðin ráðast af gæðum hljóðkorts og hátalara. Notendur MODE munu þurfa að huga að gæðum hljóðkorta sinna og hátalara. Einnig er mikil- vægt að hafa í huga að tónlist á þessu formi er nokkuð frek á diska- rými (1 Mbæti fyrir hverja mínútu lags). Tónlistarunnendur þurfa því að gera ráð fyrir stórum diskum í framtíðinni. Á nœstu síðu er skjámynd með Netscape með heimasíðu MODE (www.mode.net) í bakgrunni og WinPlay3 íforgrunni. Tölvumál - 7

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.