Tölvumál - 01.07.1996, Síða 9
MODE á Internetinu
Gert er ráð fyrir að hluti þjón-
ustu MODE verði aðgengilegur frá
Internetinu. Þar verður bæði hægt
að fletta upp í listum og leita eftir
því sem hugurinn girnist og hlaða
niður tóndæmum. Fyrst um sinn
er ekki gert ráð fyrir að boðið verði
upp á kaup á tónlist frá Internetinu
og rauntímaspilun er ekki möguleg
vegna ónógrar/óvissrar band-
breiddar. Fræðilega séð gætu þeir
aðilar sem nota samnet til að
tengjast Internetinu fengið raun-
tímaspilun frá MODE þjónustu.
Að því gefnu að næg bandbreidd
verði til staðar milli Internetsveit-
anda og MODE, getur hver not-
andi fengið 128 kbita/sek. flutn-
ing alla leið.
Fyrsti vísir að MODE þjónustu
hefur nú þegar litið dagsins ljós,
en tóndæmi úr lögunum í söngva-
keppni Evrópskra sjónvarpsstöðva
voru aðgengileg á Intemetinu. Það
var gert með stuðningi MODE og
Fraunhofer Institute. (sjá http://
eurosong.nrk.no/).
Samstarfsaðilar
Samstarfsaðilar Skýrr í verk-
efninu eru Sygna í Noregi, sem
jafnframt sér um verkefnisstjórn-
un, TELENOR í Noregi, Albanet
í Skotlandi, RIM í Hollandi,
Fraunhofer Institute í Þýskalandi,
SGAE á Spáni (spánska STEF).
Tæknileg útfærsla MODE er
aðallega í höndum Skýrr, TELE-
NOR, Albanet og Fraunhofer In-
stitute (höfundar MPEG L3
staðalsins). Sygna, RIM og SGAE
auk TELENOR sjá aftur á móti
Tölvumál - 9