Tölvumál - 01.07.1996, Page 16

Tölvumál - 01.07.1996, Page 16
Júlí 1996 Þarfagreining Þarfalýsing Notendahandbók Hönnun Hönnunarlýsing Hönnunargögn ^ Einingasmíð Yfirtaka \ ) Viðtö ■cupróf .íil argögn Kerfispróf Samþætting Mynd 1 Hugmyndir, tillögur, óskir og kröfur um breytingar á kerfi koma fram sem verkbeiðnir jaínt frá not- endum sem og RB. Við hvert kerfi RB starfar hópur notenda, starfs- menn banka og sparisjóða auk RB, sem kallast ákvarðanahópur kerfisins. Hver verkbeiðni þarf að lokinni forathugun að fá samþykki ákvarðanahóps. Beiðnum er skipt í verkhluta sem ákvarðanahópur forgangsraðar og ákveður þannig hvaða breytingar hver útgáfa kerfis felur í sér. Þannig geta út- gáfur kerfa orðið mjög misjafnar að umfangi og spannað allt frá einni stórri til margra lítilla, oft óskyldra, verkbeiðna. Sumar aðferðir leggja mikla áherslu á að koma brey tingum sem fyrst í gagnið eftir að þeirra er ósk- að, oft á kostnað prófana og oftast á kostnað síðari tíma breytinga þar sem hönnun er gott sem engin. Þá eru frumgerðir3 oft gerðar með þátttöku notanda og þær síðan full- unnar ef hann telur þær leysa þarf- ir sínar. Notandanum verður þá oft starsýnt á mögulegar lausnir frem- ur en vandamálin sem þörf er á að leysa og oftar en ekki þarf lausnin fljótlega breytinga við. Slíkar aðferðir fengu ekki mik- inn hljómgrunn en gáfu þó hug- myndir. Tryggja verður að tíminn sem hver útgáfa tekur sé ekki það langur að þarfir notandans hafi breyst frá því sem var við grein- ingu þarfanna þar til útgáfan er gangsett. Þetta er einn helsti galli margra formlegra aðferða. Annars vegar er reynt að koma í veg fyrir þetta með því að taka tiltölulega fáar beiðnir saman í hverja útgáfu, hins vegar með því að gera líkanið þannig úr garði að einfaldar breyt- ingar séu fljótlegar án þess að það sé sniðgengið, þ.e. Hkanið feli ekki í sér of mikla yfirbyggingu. Einnig voru hugmyndir um frumgerðir teknar upp sem gerðar skyldu fyrir allt notendaviðmót og bomar undir notendur. Náin tengsl RB við notendur sína, auk rekstrarlegs umhverfis gera örar en skipulegar útgáfu- breytingar mögulegar. Verkþættir Ferlinu við gerð hverrar útgáfu er skipt í verkþætti sem rekja sig 3 Prototype 16 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.