Tölvumál - 01.07.1996, Side 20

Tölvumál - 01.07.1996, Side 20
Júlí 1996 Delphi 2.0 Eftir Björn R. Sveinbjörnsson Inngangur Fyrir nokkrum árum birtist grein í tímaritinu Dr. Dobb’s Jour- nal eftir Jeff Duntemann. Dálka- höfundur þessi skrifaði um ýmis málefni er tengjast forritun og var hann í miklu uppnámi út af þróun- arpakkanum Visual Basic. Dunte- mann forritaði sjálfur í Turbo Pas- cal en hélt varla vatni yfir þessu nýja undri frá Microsoft. Hann lauk greininni á þann veg að ef forritunarmálið væri Pascal og ef þetta væri þýðandi en ekki túlkur þá væri verkfærið fullkomið. Einhver hjá Borland hefur greini- lega lesið greinina og tekið þetta til sín, því nokkrum árum seinna kom þessi pakki sem Duntemann var að óska eftir og var hann kallaður Delphi. Borland hefur nú sent frá sér útgáfu 2.0 af Delphi fyrir Win- dows 95 og Windows NT. Pakkinn er fáanlegur í þremur útgáfum en þær heita Desktop, Developer og Client/Server. Desktop útgáfan er ódýrust og er hún hugsuð fyrir einstaklinga sem vilja kynnast umhverfinu. Client/Server útgáfan er dýrust en í henni er t.d. gagna- þjónninn InterBase frá Borland fyrir Windows NT. í Developer útgáfunni er lítill InterBase þjónn en hann er hægt að nota í þróunar- ferlinu til að líkja eftir biðlara miðlara umhverfi. Undirritaður hefur eingöngu notað Developer útgáfuna en það sem á eftir fer í þessari grein á við um allar út- gáfurnar. Þróunarferli Að vinna í Delphi umhverfinu er tvíþætt. Annars vegar er á ferð- inni myndræn hönnun eins og í Visual Basic þar sem stýringar eru settar á form og sumum einkennum þeirra gefin gildi. Það er gert í sér- stökum glugga sem nefnist Object Inspector en þar er hægt að skoða og breyta einkennum hluta. Þegar viðmótið hefur fengið það útlit sem því er ætlað er ráðist í næsta þátt en það er viðbragðsstýrð forritun. Valdir eru spennandi atburðir úr atburðalista hlutanna í Object In- spector og aðgerðir hlutanna út- færðar. Hér fyrir ofan má sjá Ob- ject Inspector. Hægt er að geyma hluti eins og form í hlutageymslu eða Object Repository. Þessa hlutageymslu er síðan hægt að nota þegar búnir eru til nýir hlutir. Þá er einfaldlega valið úr hlutageymslunni og skil- greint hvort um afritun, erfðir eða notkun er að ræða. Hlutageymslan getur sparað tíma þegar viðmótið er staðlað og hægt er að hafa hluta- geymsluna á netþjóni til að fleiri forritarar geti notað hlutina. Bor- land talar um sýnilegar erfðir í þessu sambandi eða „Visual inher- iting“ til að aðgreina það frá hefð- bundnum erfðum í kóda. Þegar forritun er lokið er hægt að þýða og keyra forritið. Afurðin sem verður til er oftast nær EXE skrá en einnig er hægt að búa til DLL skrár í Delphi. Lág- marksstærð á Windows forriti sem notar form er u.þ.b. 150 KB. Ef forritið notar gagnagrunn hækkar lágmarksstærðin í 450 KB en líta má á þetta sem stofnkostnað for- rita. Ekkert keyrsluumhverfi þarf til að keyra Delphi fomt að und- anskildu Borland Database Engine sem þarf að vera uppsett á vél not- anda ef um gagnavinnslu er að ræða. Þetta er ekki mikið mál þar sem þessi þáttur er ókeypis og upp- setningarforrit fylgir með Delphi. Forritunarmál Object Pascal er notað sem for- ritunarmál í Delphi. Borland hefur farið frekar frjálslega með málið og breytt því eftir þörfum. Málið er auðlært og hægt er að nota það án þess að kunna það til hlítar. Þetta á sérstaklega við um verkefni 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.