Tölvumál - 01.07.1996, Qupperneq 25

Tölvumál - 01.07.1996, Qupperneq 25
Júlí 1996 Verkstjórn við gerð biðlara/miðlara kerfis Eftir Þorlák Þorláksson og Agnar Björnsson Formáli Okkur langar til að segja frá hvernig verkstjórnun hefur verið við gerð á mjög stóru biðlara/miðl- ara kerfi á íslenskan mælikvarða. Umrætt kerfi mun taka við af kerfi sem er orðið 16 ára gamalt og var eitt af fyrstu beinlínukerfum lands- ins. í dag er það notað af 800 til 1000 notendum um allt land og eru aðgerðir kerfisins 1200 þúsund á mánuði, það eru um það bil 28 milljón aðgerðir á ári, eða 240 að- gerðir á mínútu miðað við 8 stunda vinnudag. Núverandi kerfi er mið- lægt stórtölvukerfi og tekin var sú ákvörðun að nýja kerfið yrði biðl- ara/miðlara kerfi með Windows framsetningu. Samskipti kerfisins við önnur kerfi eru flókin. Ein aðalkrafan sem gerð var til kerf- isins voru að það væri sveigjan- legt og auðvelt væri að bæta inní það nýjum gjöldum sem stjórn- málamenn framtíðarinnar létu sér detta í hug. Auk þess átti að vera hægt að nýta kerfið með öðrum kerfum. Ákveðið var að skipta kerfinu í þrjú lög: gagnalag, vinnslulag og framsetningu. Með því að skipta hönnun kerfisins í þessi lög er auðveldara að skipta t.d. um útlit, án þess að eiga við gögnin. Verkefnið Byrjað var að greina verkefnið á árinu 1991 og var lögð mikil vinna við að skilgreina núverandi kerfi (TBI eins og núverandi kerfi heitir og er innheimtukerfi rík- isins). Við þessa afmörkun á verk- efninu kom í ljós að núverandi kerfi er í raun mörg kerfi og varð niðurstaðan að skipta nýja kerfinu í 7 sjálfstæð kerfi, sem gætu tengst öðrum kerfum (sjá mynd 1). Þessi kerfieru: 1 Álagningarkerfi TBR. (TBR-Á) Hlutverk þessa kerfis er að sjá um álagningu innan TBR og var lagt upp með að auðvelt yrði að bæta við nýju gjaldi. 2 Bókhaldskerfi TBR. (TBR-B) Hlutverk þessa kerfis er að sjá um afstemmingar á milli kerfana og skilabókhaldsgögnum til BÁR. (bókhalds og áætlanakerfí ríkisins) 3 Vanskilakerfi TBR (TBR-VA) Hlutverk þessa kerfis er að sjá um vanskila eftirrekstur. Tölvumál - 25

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.