Tölvumál - 01.07.1996, Page 29
Júlí 1996
Hvert er vægi verkefnastjórnunar í
hugbúnaðargerð?
Eftir Laufeyju Erlu Jóhannesdóttur
Inngangur
Hlutverk og vægi verkefna-
stjómunar í hugbúnaðarverkefnum
hafa hingað til verið talin lítil.
Megináhersla hefur verið lögð á
tæki og tól á meðan þættir eins og
samskipti, miðlun upplýsinga og
stjómun verkefna hafa verið álitin
minni háttar. Þetta er að breytast,
meðal annars vegna áhrifa frá
kröfum gæðastaðla eins og ISO
9001 og líkana eins og CMM. Þær
breytingar sem eru að eiga sér stað
nú, munu halda áfram eftir því sem
fleiri fyrirtæki koma sér upp
gæðakerfi og fara í endurbætur
ferla með CMM eða sambærileg
líkön að leiðarljósi.
Breytt mynd af
hugbúnaðargerð
Það orð fór af hugbúnaðargerð
að þetta væri listgrein en ekki vís-
indi. Við slfka listsköpun væri ekki
viðeigandi að beita formlegri að-
ferðafræði eða verkefnastýringu.
Forritun var álitin list og lausnir
urðu til vegna mikilfenglegra hæfi-
leika þeirra sem komu að verkinu.
Annað viðhoif er að hugbúnað-
argerð sé vísindagrein eða fram-
leiðslugrein. Það geti allir ski'ifað
góð forrit og kerfi, hafi þeir réttu
verkfærin og hafi fengið viðeigandi
þjálfun. Rétt og formleg aðferða-
fræði eða þróunarferli (life cycle
model) sé svo punkturinn yfirl-ið.
Síðastnefnda lýsingin á við um
stóran hluta fagsins. Gallinn við
hana er þó að í henni er hætta á að
of mikil áhersla getur verið lögð á
tæki og tól og fólkinu gleymt, bæði
kerfissmiðum og notendum. Þetta
getur leitt til þess að sama aðferða-
fræðin sé notuð á allar gerðir verk-
efna og sífellt sé verið að skipta
um verkfæri. Skipt er um verkfæri
áður en raunveruleg notkun getur
leitt í ljós galla þeirra eða kosti.
Eftir því sem hugbúnaðar-
iðnaðurinn hefur þroskast hafa
þessar sveiflur farið minnkandi.
Með aukinni reynslu þeirra sem
starfa við hugbúnaðargerð verður
erfiðara að selja töfraverkfæri sem
öllu eiga að bjarga.
Engar töfralausnir
Mörg hugbúnaðarfyrirtæki
hafa gert sér grein fyrir því að
töfralausnir er hvergi að finna. Til
að bæta afköst og gæði í hugbún-
aðarframleiðslu og tryggja að
verkefnum ljúki með tilætluðum
árangri verður að leita langtíma
lausna.
Viðbrögð margra hugbúnaðar-
fyrirtækja hafa verið þau að fara
út í endurskipulagningu vinnu-
ferla, tækjakaup og þjálfun. Mörg
fyrirtæki sérstaklega í Évrópu hafa
farið út í gæðastarf í anda ISO-
9001 og fengið vottun. í Banda-
ríkjunum hafa fyrirtæki verið hvött
til að fara í endurbætur og endur-
skipulagningu vinnuferla. Þar hafa
menn stuðst við CMM (1) líkanið
frá SEI (2). í þessu líkani er tekið
á hinum ýmsu verkferlum innan
fyrirtækjanna og þáttum í rekstri
og stjórnun þeirra. Líkanið er
síðan notað til að meta stöðu hvers
einstaks fyrirtækis og gera þær
endurbætur sem þarf. Sambærileg
evrópsk og alþjóðleg verkfæri eru
Bootstrap (3) og SPICE (4).
Einn þáttur, sem ISO9001,
CMM og SPICE koma öll inn á,
er verkefnastjórnun. Reynslan
hefur sýnt að til þess að verkefnum
ljúki með tilætluðum árangri, á til-
skildum tíma og innan fjárhags-
áætlunar þarf verkefnastjórnun að
vera í lagi. Það er því meira en
tækin, tólin og þróunarferlin sem
skipta máli.
RAD
Gott dæmi um þær breyttu
áherslur sem orðið hafa er RAD
eða Rapid Application Develop-
ment sem mætti þýða sem Fljótlega
Hugbúnaðargerð. Tilgangur með
CMM (1)
Líkan sem notað er til að endurbæta ferla við gerð og viðhald
hugbúnaðar með aðferðum gæðastjórnunar. Líkanið inniheldur
aðferðir til að meta stöðu og getu fyrirtækisins og leiðbeiningar
um hvaða ferla og verkþætti þarf að bæta til að bæta stöðu þess.
Eftir því sem fyrirtækið endurbætir ferla og aðferðir eykst geta
þess til að ljúka verkefnum með tilætluðum árangri
Sjá einnig: http://stfc.comp.polyu.edu.hk/STFC/SoftFactory/
docINDEX.html.
Tölvumál - 29