Tölvumál - 01.07.1996, Page 31
Júlí 1996
Frá orðanefnd
Eftir Stefán Briem
Um heimasíðu Tölvuorðasafns
er nú hægt að komast í ensk-
íslenskan lista yfir heiti á hugtök-
um er varða gluggaumhverfi. Fleiri
slíkum listum verður bætt við
síðar. Veffang heimasíðunnar er
http://www. ismal.hi is/to
Hugtök er varða Inter-
net og Veraldarvef
Það hefur ekki farið fram hjá
mörgum að mikil gróska er um
þessar mundir í notkun Intemetsins
og Veraldarvefsins, ekki aðeins á
íslandi heldur einnig í öðrum ríkj-
um þar sem þjóðartekjur eru mikl-
ar og menntun á háu stigi. Þessari
grósku fylgir holskefla af nýjum
hugtökum sem berast til íslands í
flestum tilvikum undir enskum
heitum.
Islenskir tölvuáhugamenn hafa
tekið þessari grósku fagnandi og
greinilegt er að meðal þeirra er það
viðhorf orðið ríkjandi að finna beri
sem allra fyrst íslensk heiti á hug-
tökin. Tölvuorðanefnd hyggst á
næstunni beina kröftum sínum að
heitum á þessu sviði, bera þau
saman við skilgreiningar hugtak-
anna og koma þannig á þau bönd-
um til að velja úr þau heiti sem
best eiga við og ef til vill búa til
ný. Eins og endranær verða það
þó notendur heitanna sem skera úr
um hvaða heiti verða ofan á að
lokum.
Forliðirnirtölvu-, net-
og vef-
Á fjöldamörgum hugtökum eru
nú til heiti sem voru ekki til í
íslensku máli fyrir hálfri öld og
hefjast á forliðnum tölvu-. Sam-
svarandi ensk heiti hefjast oft á
orðinu computer. Einnig hefur
bæst við fjöldi hugtaka með heiti
sem hefjast á forliðnum net- en
hann samsvarar oft enska orðinu
network eða net. Oftast varða
þessi hugtök tölvunet almennt en
stundum eru þau bundin við Inter-
netið. Á allra síðustu árum hefur
skotið upp orðum sem hefjast á
forliðnum vef- og vísa til hugtaka
er varða þann hluta Internets sem
Frh.á næstu síðu
Frh.af fyrri síðu
MS námið má ekki verða til þess
að hefta nemendur í að fara í fram-
haldsnám erlendis.
Námsfyrirkomulag
Lagt er til að námið verði 60e
og þar af að jafnaði 30e í MS verk-
efni (ritgerð). Námið verði skipu-
lagt með tilliti til þess að nemendur
geti verið í hálfu starfi með námi
(7-8 misseri) fyrir utan þann
möguleika að vera í fullu námi (4
misseri). Tölvunetið verði notað
við kennsluna eins og kostur er.
Þeir sem hafa unnið við hug-
búnaðargerð í a.m.k. eitt ár og hafa
gott próf úr BS tölvunarfræði eða
sambærilegt háskólapróf hafi for-
gang í innritun.
Tryggja verður að námið stand-
ist alþjóðlegar gæðakröfur og veiti
möguleikar á framhaldi í doktors-
námi erlendis. Leita þarf samstarfs
við erlenda háskóla um að nemend-
ur geti verið t.d. eitt misseri við
nám erlendis.
Reiknað er með að a.m.k. 10
manns muni vilja innritast í námið
árlega um ófyrirséða framtíð.
Miðað verði við takmarkaðan
fjölda.
Efnistök
Af 30e vegna MS námskeiða
gætu 21e verið kjarni í tölvunar-
fræði og 9e val í tilteknum nám-
skeiðum. Ný námskeið í tölvunar-
fræði gætu heitið:
1. Formlegar aðferðir í hug-
búnaðargerð
2. Háhraðanet
3. Gæðastjórnun í hugbúnaðar-
gerð
4. Dreifð upplýsingakerfi
5. Notendaviðmót tölvukerfa
6. Algóriþmar
7. Stærðfræðileg tölvugraffk
8. Tölvuarkitektúr og samhliða
vinnsla.
Önnur námskeið sem koma til
greina: Stærðfræðilíkön í tölvu-
kerfum; Rauntímakerfi; Marg-
miðlun. Einnig tiltekið val úr verk-
stærð- eða eðlisfræði eða öðrum
greinum.
MS verkefnin gætu tengst hug-
búnaðarþróunarvinnu í fyrirtækj-
um - nýjar slóðir. Einnig gætu þau
tengst rannsóknastyrkjum og rann-
sóknum í háskóla eða fyrirtækjum
og stofnunum.
Oddur Benediktsson er
prófessor í tölvunar-
frœði við HÍ
Tölvumál - 31