Tölvumál - 01.03.1998, Blaðsíða 18
T 0
L V U M Á
L
Útgáfa Tölvuorðasafns
Nú er komin á markað þriðja
útgáfa Tölvuorðasafns. Útgefandi
er Islensk málnefnd og er Tölvu-
orðasafnið 10. ritið í ritröð mál-
nefndarinnar. í tilefni af útkomu
bókarinnar bauð Skýrslutæknifé-
lagið til móttöku 4. febrúar sl.
Formaður Skýrslutæknifélags-
ins flutti ávarp ásamt formanni
orðanefndar, menntamálaráð-
herra og formanni Islenskrar mál-
nefndar. Formaður orðanefndar
afhenti menntamálaráðherra ein-
tak af bókinni. í dagbók mennta-
málaráðherra á heimasíðu hans á
veraldarvefnum fer hann mjög
lofsamlegum orðum um framtak
okkar. Þar segir hann m.a.: „Verð-
ur það ekki fullþakkað, að menn
skuli leggja jafn hart að sér og gert
hefur verið við þessa miklu vinnu
að þýða tækniorð og hugtök á ís-
lensku. I ræðum manna við at-
höfnina kom fram eindreginn
vilji til að beita sér fyrir því, að
stýrikerfi í tölvum verði íslensk-
að.“ Það er orðanefndinni mikil
hvatning að fá þessi hlýlegu orð.
Sigrún Helgadóttir var við
þetta tækifæri gerð að heiðursfé-
laga í Skýrslutæknifélagi Islands.
í móttöku félagsins var henni af-
hent heiðursskjal því til staðfest-
ingar og þökkuð mikil og afar vel
unnin störf í þágu félagsins og
upplýsingatækni í landinu.
Mánudaginn 9. febrúar var
orðanefndinni ásamt fulltrúum
Islenskrar málnefndar og Skýrslu-
tæknifélagsins boðið til Bessa-
staða þar sem forseta íslands,
herra Ólafi Ragnari Grímssyni,
var afhent eintak af Tölvuorða-
safninu. Ritstjórinn var staddur í
Danmörku þennan dag en orða-
nefndarmenn fóru allir ásamt fjöl-
mennu liði úr stjórn Skýrslu-
tæknifélagsins með formanninn,
Hauk Oddsson, sem fyrirliða og
formanni Islenskrar málnefndar
og forstöðumanni fslenskrar mál-
stöðvar. Haukur Oddsson hafði
orð fyrir hópnum. Þegar bókin
hafði verið afhent var hópnum
boðið til bókhlöðu þar sem forset-
inn ræddi við okkur í um klukku-
stund. Er skemmst frá því að segja
að forsvarsmenn málnefndarinn-
ar og Skýrslutæknifélags fóru af
fundi forsetans með ýmsar hug-
myndir sem vonandi verður unn-
ið frekar úr á næstunni.
Forseti Islands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, tók við Tölvuorðasafninu úr
hendi Sigrúnar Helgadóttur, formanns
orðanefndar
18- MARS 1998