Tölvumál - 01.03.1998, Síða 28

Tölvumál - 01.03.1998, Síða 28
T 0 L V U Á L ReykjaviR *He|singborg ópenhagen itdam Luxembou Madrid Helsinki/Finnet Helsinki/Telecom Finland Athens Tel-Aviv, Israel Mynd 5. fames netið ýmis fjarskiptaefni og birtir mjög mikið á Internetinu. A heimasíðu verkefnisins er að finna gagnlegar upplýsingar um fjarskiptamál og tengingar við aðrar síður, tafla 1. ATM rannsóknarnet á íslandi Hér er um að ræða íslenskt verkefni sem hefur það markmið að sýna fram á kosti bandvíðra stafrænna fjarskipta á margs kon- ar notkunarsviðum. Ætlunin er að setja upp sýniverkefni á tveim- ur notkunarsviðum, við fjar- menntun og fjarlækningar. Fram- kvæmd fjarmenntunarþáttarins verður með því móti að fyrirlestr- ar sem fluttir eru við Viðskipta- deild HI verða fluttir í rauntíma til Háskólans á Akureyri þar sem nemendur eiga þess kost að spyr- ja fýrirlesara eins og hann væri staddur í þeirra sal. I fjarlækn- ingaþættinum verður Landsspít- alinn í Reykjavík tengdur Sjúkra- húsinu á Selfossi og Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Hreyfi- mynd úr ómskoðun á meðgöngu (sónarmynd) verður send frá Sel- fossi yfir netið þannig að sérfræð- ingur á Landspítala geti aðstoðað við greiningu og framkvæmd skoðunar. Samskipti sérfræðings- ins og starfsmanna á Selfossi fara fram gegnum fjarfundabúnað. Jafnframt verður netið notað fyrir rauntímasendingar á margvíslegu myndefni á milli röntgendeilda Landspítala og Fjórðungsjúkra- hússins á Akureyri. Með slíku neti er hægt að senda röntgen- myndir á fáum sekúndum en með samnetstækninni sem hefur verið notuð hingað til tekur það tugi mínútna. ATM fjarskipti yfir breiðbandskerfi Landssímans verða notuð í þessu verkefni. Lokaorð Með þátttöku í nokkrum sam- evrópskum rannsóknarverkefn- um hefur Landssíminn fengið að- gang að mikilli þekkingu sem reynast mun drjúg við áframhald- andi uppbyggingu fjarskiptakerfis landsmanna. Framþróun upplýs- ingatækninnar hér á landi á mik- ið undir því að boðið verði upp á greið fjarskipti sem standast kröf- ur nýrrar aldar. Islendingar ætla sér stóra hluti við uppbyggingu upplýsingasamfélagsins. Fjar- skiptatæknin er ein af megin und- irstöðum þess og þess vegna er nauðsynlegt að halda uppi öflugri rannsóknarstarfsemi jafnt á inn- lendum vettvangi sem og í sam- starfi við útlendinga. Rannsókn- arvinnan stuðlar að því að kynna notkunarsvið fjarskiptanna og breiða þannig út notkun þeirra. Með því næst mikil hagræðing og lífskjör batna. Sæmundur Þorsteinsson er deildarstjóri rannsóknardeildar Landssíma íslands hf. 28 - MARS 1998

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.