Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 5
Ávarp formanns
/ /
Avarp formanns Sl á UT99,
ráðstefnu um upplýsingatækni í
skólastarfi 26. febrúar 1999
Óskar B. Hauksson
Hagnýting upplýs-
ingatækni í
skólastarfi
Menntamálaráðherra, ágætu
ráðstefnugestir.
Ég vil bjóða ykkur öll velkomin á þessa
ráðstefnu og sýningu um upplýsingatækni
í skólastarfi. Eins og við munum væntan-
lega kynnast í dag og á morgun hefur
verið ráðist í mjög metnaðarfullt
ráðstefnuhald sem er samvinnuverkefni
Menntamálaráðuneytisins og Skýrslu-
tæknifélagsins.
Skýrslutæknifélagið fagnaði á síðasta
ári 30 ára afmæli sínu en félagið er fyrst
og fremst félag fagfólks í upplýsinga-
tækni. Félagið hefur frá upphafi kapp-
kostað að eiga gott samstarf við skólafólk
enda er menntun ein helsta undirstaða
upplýsingasamfélagsins. Við sem störfum
á þessu sviði fmnum tilfinnanlega fyrir
skorti á vel menntuðu starfsfólki sem tek-
ist getur á við þau vandasömu verkefni
sem fram undan eru í fyrirtækjum og
stofnunum landsins. Segja má að þetta
stefni í að vera hvað mest hamlandi þáttur
í þróun upplýsingatækninnar hér á landi
og þeirri útrás sem íslensk fyrirtæki
stunda nú um þessar mundir. Margt gott
hefur verið gert í þessum efnum á undan-
förnum árum en við verðum að gera enn
betur til að vera í takt við þróunina á þessu
sviði.
Skýrslutæknifélagið hefur frá árinu
1984 haldið sérstakar ráðstefnur um
upplýsingatækni í skólastarfi, en síðast
hélt félagið slíka ráðstefnu árið 1996.
Þessar ráðstefnur hafa verið mikilvægar
fyrir bæði tölvufólk og kennara til að bera
saman bækur sínar og fylgjast með
nýjungum. Þær hafa verið án efa hvatning
fyrir þá sem rutt hafa brautina fyrir hag-
nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
Arið 1989 var haldin alþjóðleg ráðstefna í
samvinnu við Kennaraháskóla íslands og
bar hún yfirskriftina „Educational
Software at Secondary Level“. Þessi
ráðstefna var á vegum IFIP sem eru
alþjóðasamtök á sviði upplýsingatækni en
Skýrslutæknifélagið er aðili að þeim
samtökum. Allar hafa þessar ráðstefnur
tekist vel þó að markið hafi aldrei verið
sett eins hátt og nú er gert með ráð-
stefnunni UT99.
Starfsemi Skýrslutæknifélagsins hefur á
undanförnum árum beinst mjög að
ráðstefnuhaldi og fræðslufundum fyrir
félagsmenn. Á síðasta ári var metaðsókn á
ráðstefnur félagsins en alls komu 1230
manns á þá atburði sem Skýrslutækni-
félagið stóð fyrir. Félagið gefur einnig úl
tímaritið Tölvumál þar sem birtar eru
faglegar greinar um upplýsingatækni.
Um þessar mundir er félagið að fara inn á
nýjar brautir með útgáfu á svokölluðu
tölvuökuskírteini eða European Computer
Driving Licence en með aðild félagsins að
samtökum evrópskra skýrslutæknifélaga
opnuðust möguleikar á því að bjóða
skírteinið hér á landi. Um er að ræða
hæfnisvottorð fyrir almenna tölvu-
notendur sem skiptist í 7 stig. Tekin eru
samræmd próf til að ljúka hverju stigi og
þegar búið er að ljúka öllum prófunum sjö
er tölvuökuskírteinið gefið út. Vottuð er
hæfni og þekking í grunnatriðum
upplýsingatækninnar, ritvinnslu,
töflureiknum og vefnotkun svo að nokkuð
sé nefnt. Að þessu samstarfi standa 14
Evrópulönd og hefur tölvuökuskírteinið
öðlast mikila viðurkenningu þar sem það
hefur verið tekið upp. Með slíkt skírteini
upp á vasann geta einstaklingar sannað
hæfni sína í tölvunotkun á evrópska efna-
hagssvæðinu.
Skýrslutæknifélagið vinnur nú að
undirbúningi þessa máls og hefur ma.
leitað eftir samvinnu við Mennta-
Tölvumál
5