Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Side 35

Tölvumál - 01.05.1999, Side 35
Fjarnám Fjarnám með Lotus LearningSpace Fjalar Sigurðarson Einkageiri atvinnulífsins sér hag í allri tækni sem spara tíma og pen- inga og fjarnám getur komið í stað margra kostnaðarsamra aðferða við sí- og endurmenntun starfsmanna. Menntageir- inn er undir nokkrum þrýstingi að skapa sér sína eigin tekjustofna og/eða að vinna náið með atvinnulífinu, auk þess sem menn þar leita að sjálfsögðu allra leiða til að gera sem flestum kleift að nýta sér námsframboðið. Fjarnám getur Það er því óhætt að fullyrða að hags- komið í stað margra munir menntageirans og atvinnulífsins liggi þétt sarnan í málefnum endurmennt- unar, símenntunar og fjarnáms. Vandlega er því fylgst með þróun fjamámshugbún- aðar úr báðum þessum áttum um þessar mundir. Eitt af þeim fyrirtækjum sem hefur verið í fararbroddi í öllum lausnum skrifstofunn- ar og fyrirtækisins á sviði upplýsingatækni I einkageiranum hefur er Lotus og þeir sáu snemma fyrir þá þróun þörfin verið meiri fyrir sem var að verða í menntamálum. Lotus sjálfstýrt nám hefur undanfarin ár unnið að þróun fjar- námskerfis til að mæta þessum kröfum og notið fulltingis fyrirtækja úr einkageiranum og völdum menntastofnunum. Niðurstaðan af þeirri vinnu liggur nú fyrir og hefur hlotið nafnið LearningSpace. kostnaðarsamra aðferða við sí- og endurmenntun starfsmanna Hvaða kröfur á að gera til fjarnámskerfa? Fjarnámskerfi verða að mæta kröfum um þrennskonar aðferðir við fjarnám. I fyrsta lagi rauntímakennslu (synchronous), í öðru lagi tímaóháða samkennslu og í þriðja lagi sjálfsnám. Rauntímakennslan hefur verið mest áberandi hérlendis undanfarið og það hefur reyndar gengið svo langt að menn hafa fest kaup á sjónvarpstækjum og upp- tökutækjum og tilkynnt að nu væru þeir albúnir til fjarkennslu. Og það er reyndar alveg rétt, en fjarkennsla er hinsvegar ekki nema einn hluti af því sem við nefnum fjarnám, og kannski sá minnst mikilvægi. Óháð stund og stað Flestir nemendur í fjarnámi þarnast þess nefnilega ekki að safnast sarnan á ákveðn- um stað á ákveðnum tíma til að hlusta á fyrirlestur, heldur hefur þörfin verið brýnust fyrir nám sem er óháð tíma og staðsetningu og þar hefur Internetið kornið sterkt inn. Kennarinn hefur afgreitt efni út á Netið eða sent það til nemenda í tölvu- pósti, nemendur fá eða sækja verkefnin og senda síðan lausnimar í tölvupósti. Kennarinn hefur síðan þurft að halda utan um innsend verkefni, nemendur og einkunnir með sínum hætti með mis- jöfnum árangri og skilvirkni. Vandamálin við það hafa reyndar gengið svo langt að margir tala hikstalaust um töluvpósts- martröðina, þegar verkefnin streyma inn undir ýmsum nöfnum, frá ýmsum send- endum og á öllum tímum. Úr þessari flækju reynir kennarinn síðan að greiða svo námskeiðið megi leiða til lykta með eðlilegum hætti. I einkageiranum hefur þörfin verið meiri fyrir sjálfstýrt nám sem þó lýtur að mestu leyti sömu lögmálum og nám óháð stað og stund. Bandvídd Internetsins gerir það ekki hagkvæmt að sinna rauntímakennslu þá leiðina, þannig að þótt tæknin sé fyrir hendi í LearningSpace (Sametime) þá er ekki lögð rnikil áhersla á þann hluta að svo komnu máli en kerfið mun halda í við allar tæknibreytingar í þessum efnum. Hér er því aðallega verið að ræða um fjar- námshluta LearningSpace, þ.e. þann hluta sem snýr að fjarnámi óháð stað og stund annarsvegar og sjálfsnámi hinsvegar, En hvað er þá LearningSpace? LearningSpace er safn hugbúnaðar og sniðmóta sem sarnan mynda samvinnu- umhverfi fyrir hönnun og uppsetning námskeiða, á vegum eins eða fleiri leiðbeinenda, fyrir marga og misjafna hópa nemenda. I raun er LeamingSpace einfaldur pakki með geisladiski sem settur er inn á vef- miðlarann. Lotus Notes notendahugbúnað þarf síðan til að vinna með hann sem leið- beinandi en nemendur þurfa einungis Internettengingu og vefskoðara. Það er því Tölvumól 35

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.