Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 38

Tölvumál - 01.05.1999, Blaðsíða 38
Hjallaskólavefurinn Afar mikilvægt er að vel takist til með skipulag vefseturs þannig að vefarar velkisf ekki í vafa hvar hin ýmsu skjöl eiga heima en ekki síður vegna þess að notendum þarf sam- stundis að verða Ijóst hvar upplýsingar er að finna I mars s.l. var svo hleypt af stokkunum póstlista Hjallaskóla, Netpósfinum Um 25% heimila sem tengjast Hjallaskóla eru áskrifendur að póstlistanum Von okkar í Hjallaskóla er að geta haldið áfram að bæta vef skólans þannig að hann þjóni enn betur hlutverki sínu sem er að efla samskipti heimila og skóla og opna betur fyrir upplýsingastreymi til foreldra og gera það skilvirkara lega hugsuð til notkunar á vefnum. Evrópusambandið hefur styrkt umrædd verkefni en þau hafa sinn geymslustað á vef Hjallaskóla. Loks ber að geta skólanámskrár skólans og myndasíðna úr skólalífinu. Frá upphafi var stefnt að því að vefur- inn yrði uppfærður reglulega og reynslan sýnir að það gerist að meðaltali tvisvar til þrisvar í viku hverri. Þetta er gert m.a. með því að skrifa reglulega fréttir úr skólalífinu, bæta inn verkum nemenda og birta fjölda mynda beint úr hringiðu skólalífsins. Afar mikilvægt er að notend- ur hafi tilfmningu fyrir því að vefurinn sé lifandi þannig að þeir verði líklegri til að koma aftur í heimsókn og fylgjast með því sem er að gerast. Vefurinn hefur hlotið góðar viðtökur hjá foreldrum og nemend- um sem geta á auðveldan hátt nálgast þessa upplýsingalind sem vefurinn er. Heimsóknir á vefsíðu Hjallaskóla frá opnun hans nálgast nú, í byrjun apríl, sjötta þúsundið. I mars s.l. var svo hleypt af stokkunum póstlista Hjallaskóla, Netpóstinum. Hann er aðeins ætlaður starfsmönnum og foreldrum nemenda sem eru í skólanum. Um 25% heimila sem tengjast Hjallaskóla eru áskrifendur að póstlistanum. Ætlunin er að senda ýmsar upplýsingar og tilkynn- ingar inn á listann en einnig stendur til að reyna að skapa vettvang fyrir umræðu um fræðslu- og uppeldismál. Foreldrar geta þannig lagt sitt af mörkum til að bæta skólastarfið, hvort heldur er með gagnrýni eða lofi. Umræður á listanum hafa farið hægt af stað en vonir standa til að smám saman færist líf í þær þó reikna megi með að það gerist í lotum eins og títt er með póstlista af þessu tagi. ] vor er stefnt að því að gera könnun meðal notenda urn vefínn og það sem á honum er. Samkvæmt könnunum hafa 40-60% heimila aðgang að Internetinu og líklegt má teljast að það taki enn nokkur ár a.m.k. að aðgangur að Internetinu þyki sjálf- sagður á hverju heimili. Skólar þurfa því, um ófyrirséða framtíð, að senda upplýs- ingar um starf sitt á prenti inn á heimili nemenda. Hugsanlega kemur þó senn að því að foreldrar geti valið hvort upplýsing- ar berist þeim í rafpósti og um vefmn eða bréfleiðis. Þeir foreldrar sem hafa aðgang að Interetinu geta þá fengið upplýsingar um ýmsa viðburði í starfsemi skólans fyrr en þeir sem ekki hafa aðgang og þurfa að bíða eftir bréfi sama efnis. En hvað ber framtíðin í skauti sér? Von okkar í Hjallaskóla er að geta haldið áfram að bæta vef skólans þannig að hann þjóni enn betur hlutverki sínu sem er að efla samskipti heimila og skóla og opna betur fyrir upplýsingastreymi til foreldra og gera það skilvirkara. Þá er væntanlega styttra í það en margan grunar að foreldrar fái beinan aðgang að námsframvindu barna sinna með tengingu við gagnagrunn skólanna. Stundvísi, skólahaldsfoiTÍt flestra grunnskóla, mun væntanlega innan eins til tveggja ára bjóða upp á sendingu gagna um skólasókn nemenda og athugasemda sem kennarar skrá í dagbók nemandans beint í pósthólf foreldra þeirra. Möguleikar upplýsingatækninnar á þessu sviði eru ótal margir. Skólar þurfa að fylgjast vel með framvindu mála og gæta þess að nýta þessa tækni sér í hag. Hlutirnir gerast hratt og hætta er á að skólarnir verði skildir eftir í rykmekki tölvutækninnar ef þeir sýna ekki frum- kvæði á þessu sviði, sér og öðrum til hags- bóta. Sigurður Davíðsson, aðstoðarskólastjóri í Hjallaskóla 38 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.