Tölvumál - 01.05.1999, Qupperneq 31
Kidlink
Kidlink
Hilda Torfadóttir og Eygló Björnsdóttir
Á rúmum 8 árum
hafa á armað
hundrað þúsund börn
og unglingar frá á
annað hundrað lön-
dum tekið þátt í
Kidlink
Kidlink hefur sínar
eigin lokuðu spjall-
rásir
Kidlink byggir
aðallega á
áhugasömum
kennurum
Hjá Kidlink er mikill
stuðningur við
kennara sem vilja
nota tölvusam-
skiptaverkefni
í kennslunni
„Fjöldi sjálfboðaliða hefur unnið hörðum
höndum við að brúa bil milli ólíkra
tungumála og menningarheima, á sama
tíma og reynt er að halda í sérkennin. Öll
Kidlink tengsl s.s. póstlistar, vefsíður,
spjallrásir, sköpun, verkefni og
umræðuhópar eru hluti afeinni heild. “
(Odd de Presno 31.12.96)
Heiðruðu lesendur. í þessari grein kynn-
um við fyrir ykkur alþjóðlega
tölvusamskiptaverkefnið Kidlink sem er
ætlað börnum og unglingum að 16 ára
aldri. En hvað er Kidlink og hvernig varð
það til?
Mjór er mikils vísir
Upphafsmaður Kidlink var Norðmaðurinn
Odd de Presno.
í apríllok 1990 sá eiginkona Odds um
menningarhátíð barna í Suður-Noregi og
bað hann að leggja eitthvað til málanna.
Hann fékk þá hugmynd að koma norskum
krökkum í tölvusamband við börn í öðrum
löndum og stóð fyrir tölvusamskiptum
milli 260 barna í Noregi, Kanada og
Bandaríkjunum. Viku síðar var grunnurinn
lagður að Kidlink.
Kidlink hefur náð mikilli útbreiðslu. Á
rúmum 8 árum hafa á annað hundrað
þúsund börn og unglingar frá á annað
hundrað löndum tekið þátt í Kidlink.
Lára Stefánsdóttir, kcnnari í
Menntaskólanum á Akureyri og aðstoðar-
stjórnandi Kidlink, er í framkvæmda-
stjórninni og Tryggvi Rúnar Jónsson sál-
fræðinemi frá Akureyri er í stjóm Kidlink.
Tryggvi kynntist Kidlink í Gagnfræði-
skóla Akureyrar 1993 er hann tók ásamt
félögum sínum þátt í Kidlink-afmælis-
hátíðinni, sem fram fer í maí ár hvert.
Að lófa gott af sér leiða
Öll vinna í Kidlink er sjálfboðavinna.
Umsjónarmenn hjá Kidlink hafa sitt
umráðasvið og mikið sjálfstæði.
Upphaflega fóru samskiptin nær eingöngu
fram á póstlistum, en seinna færðust sam-
skiptin yftr á veftnn og spjallrásirnar, en
Kidlink hefur si'nar eigin lokuðu spjall-
rásir.
Kidlink greiðir engin laun til þeirra sem
starfa að Kidlink en margir þeirra eru á
launum hjá stofnunum í eigin landi. f
Danmörku er verkefninu stýrt frá mennta-
málaráðuneytinu og styrkir það nokkra
kennara til að vinna að Kidlink á dönsku. í
öðrum löndum t.d. Brasilíu er verkefnis-
stjóm Kidlink styrkt af opinberum aðilum.
Hér á landi er öll vinna í þágu Kidlink
sjálfboðavinna. Tveir styrkir hafa þó feng-
ist til uppbyggingar íslenska svæðisins.
Menningarsjóður menntamálaráðuneytis-
ins styrkti uppbyggingu á listasafni og
ráðuneytið styrkti þýðingu á hluta af einu
verkefni af ensku yfir á íslensku.
Kidlink byggir aðallega á áhugasömum
kennurum. Kennarar sem vilja nota tölvu-
samskipti í skólastofunni hafa í Kidlink
nánast ótæmandi uppsprettu verkefna.
Verkefni bjóðast á mörgum tungumálum. í
Kidlink er „kennarastofa", Kidleader-
póstlistinn, þar sem kennarar ræða um
skipulag og uppbygginu. Hjá Kidlink er
mikill stuðningur við kennara sem vilja
nota tölvusamskiptaverkefiii í kennslunni.
Kennarar og aðrir sjálfboðaliðar hjá
Kidlink vilja láta gott af sér leiða, þ.e.
stuðla að því að börn og unglingar í heim-
inum kynnist og tali saman. Við teljum að
krakkarnir muni skilja hvert annað betur
og verða umburðarlyndari með því að
kynnast umheiminum og ólíkum viðhorf-
um fólks sem býr við mismunandi
aðstæður. Hver veit nema í framtíðinni
komi það í veg fyrir deilur milli menn-
ingarsvæða.
Fullt hús matar -
finnast margar dyr á
Kidlink samskiptaverkefnið er stórt og
auðvelt að tapa áttum þegar það er skoðað.
Bestu yfirsýn yfir Kidlink er sennilega að
finna á yfirlitssíðunni „Kidlink í skóla-
stofunni" (http://www.ismennt.is/vefir/
kidlink/kidproj-íslenska/namskr.html).
Þessa síðu gerði Patty Weeg mjög fær
bandarískur tölvukennari sem hefur fengið
Tölvumál
31