Tölvumál - 01.05.1999, Síða 33
Kidlink
Verkefnið „My fel-
lows" hefur einnig
verið þýft á íslensku,
en það byggist á því
að finna einhvern
sem hefur haft áhrif til
góða á sögu lands
Ef einhver lendir í
vandræðum og lætur
vita af þeim er
örugglega einhver í
hópnum sem býður
fram aðstoð sína
berast og gildir það um öll Kidlink-
verkefni.
I sambandi við farandsýningu á lífi og
list danska ævintýraskáldsins H.C.
Andersen í Norræna húsinu dagana 20.
febrúar til 2. mars 1999, var í samráði við
samvinnuhóp um H.C. Andersen í skólurn
útbúið verkefni í Kidproj sem heitir
„Ævintýrin heilla“.
Fleiri verkefni eru til sem hafa verið
þýdd á íslensku og má þar nefna verkefni
sem nefnist „Hver er ég?“ Það er ólíkt
öðrum Kidlink-verkefnum þar sem Kid-
link Institute of Education fékk sérstaka
fjárveitingu frá Nasjonelt
læremiddelsenter í Noregi, Skolverket í
Svíþjóð, menntamálaráðuneyti Dana og
Microsoft á Norðurlöndum til þess að
keyra verkefnið í Evrópu. Vegna þessara
styrkja gafst Kidlink-fólki kostur á að
leggja meiri vinnu í verkefnin og gefa
þeim fyllri framsetningu heldur en oft er
mögulegt þegar öll vinna er sjálfboða-
vinna. Verkefnið skiptist í marga þætti og
er gaman að geta þess hér að síðasti
þátturinn „Virtual Vacation“ eða fmynd-
unarferðalag er saminn af umsjónarmönn-
um Kidproj á íslensku, Hildu og Eygló.
Verkefnið „My fellows“ hefur einnig
verið þýtt á íslensku, en það byggist á því
aðfmna einhvern sem hefur haft áhriftil
góða á sögu lands og segja sögu hans í
stuttu máli. Verkefnið er upprunnið í
Kidforum og stýrt af David Mc Ardle frá
Ástralíu. Verkefnið er gott dæmi um sam-
starf milli málasvæða, en íslenska
málsvæðið hefur heimild til að þýða og
nota öll verkefni sem hafa verið samin
fyrir Kidlink..
Að lokum má nefna verkefnið Lestrar-
hestinn sem er ætlað að örva bóklestur og
fá börn og unglinga til að segja frá og gera
grein fyrir bókum sem þeir lesa.
Flestum verkefnum fylgja ábendingar
um það hvernig þau geta tengst ýmsum
námsgreinum auk þess sem þeim fylgja
hugmyndir að umræðuefni tengd verkefn-
unum. Það verður raunar að viðurkenna að
nokkuð skortir á að þetta eigi við íslensku
verkefnin ennþá, en það stendur allt til
bóta.
Að taka þótt í Kidlink
Hvað þarf að gera til þess að geta tekið
þátt í Kidlink? Allir krakkar sem vilja taka
þátt í Kidlink verða að svara fjórum
spurningum, en þær eru:
1. Hver er ég?
2. Hvað vil ég vera þegar ég verð stór?
3. Hvemig vil ég að heimurinn verði
þegar ég verð stór?
4. Hvað get ég gert núna til að þetta
geti orðið?
Svörin eru send inn á Response-póst-
listann, en í gagnasafni hans má finna svör
krakka við spurningunum, en stundum
getur verið gott að lesa nokkur svör fyrir
nemendur áður en þeir svara
spurningunum.
Þegar nemendur hafa lokið að svara
spurningunum og sent þau á Response er
hægt að velja verkefni í Kidlink hvort sem
það er á eigin málasvæði eða annan-a. Það
verður að sækja um áskrift að viðkomandi
póstlistum frá þeim netföngum sem nota á
til samskiptanna og svo er hægt að hefjast
handa. Kennarar geta fundið upplýsingar
um hvernig á að standa að þessu í verk-
efnunum og einnig geta þeir (eftir að hafa
gerst áskrifendur að Kidleader, sem er
eins konar kennarastofa Kidlink) leitað
aðstoðar og þuifa ekki að efast um að þeir
fá hana fljótt og skilmerkilega.
Gott er að eiga góða að
Eitt af því sem er einkennandi fyrir fólk
sem vinnur í Kidlink hvar sem er í
heiminum er hjálpsemin. Ef einhver lendir
í vandræðum og lætur vita af þeim er
örugglega einhver í hópnum sem býður
fram aðstoð sína og í Kidlink er að finna
hóp af góðu, skemmtilegu og afar færu
fólki sem allt er tilbúið að miðla af
kunnáttu sinni. Það er beinlínis mann-
bætandi að taka þátt í þessu starfi.
Að lokum
í skýrslu menntamálaráðuneytisins, í
krafti upplýsinga, í kafla 12. Erlent sam-
starf stendur m.a. í kaflanum Markmið:
„Nýttir verði eftir föngum þeir möguleikar
sem bjóðast í erlendu samst'arfi varðandi
notkun upplýsingatækni á sviði mennta-
mála. Þekkingu erlendra aðila og almenn-
um upplýsingum um erlent samstarf verði
miðlað til skóla og menntastofnana innan-
lands þannig að sem flestir hafi aðgang að
þeim.
Tölvumál
33