Tölvumál


Tölvumál - 01.05.1999, Page 34

Tölvumál - 01.05.1999, Page 34
Kidlink Kennarar í fámennum skólum geta slegið tvær flugur í einu höggi Efld verði miðlun íslenskrar þekkingar til annarra landa sérstaklega norrænna og evrópskra. Stefnt verði að því að auka hagræði í erlendu samstarfi með því að nýta samskiptatækni t.d. Internet og myndráðstefnur. “ í kaflanum Leiðir að markmiðum segir m.a.í 1 .grein: „íslendingar taki virkan þátt í erlendum verkefnum. Samstarfsverkefni milli íslenskra og erlendra skóla á grunn- og framhaldsskólastigi verði eðlilegur þáttur í skólastarfi.“ Við í Kidlink teljum Kidlink kjörleið að þessum markmiðum. Tölvutæknin og þeir möguleikar, sem hún býður upp á mun væntanlega hafa mikil áhrif á skólastarf í framtíðinni. Kennarar í fámennum skólum geta slegið tvær flugur í einu höggi, komið nemendum í samband við nemendur annars staðar og sjálfir tekið þátt í faglegri umræðu á Kidleader. Islenskumælandi böm og unglingar í útlöndum gætu haldið íslenskunni við með þátttöku í Kidlink á íslensku og einnig er hægt að þjálfa sig í erlendum tungumálum með bréfavið- skiptum. Hafi einhverjar spurningar vaknað við lestur þessarar greinar er sjálfsagt að hafa samband við undirritaðar. Hilda Torfadóttir (hilda@ismennt.is), kennari á Akureyri, er stjórnandi Kidproj á íslensku. Eygló Björnsdóttir (eyglob@ismennt.is), kennari í Vestmannaeyjum, er aðstoðarstjórnandi Kidproj á íslensku. Heimildarskrá: Odd de Presno: Tölvupóstur á Kidleader. 1996. Lára Stefánsdóttir. Akureyri. Munnleg heimild. 1999. Salvör Gissurardóttir. Kidlink-islenska -uppkast. 1997. http://www.khi.is/~salvor/kidlink/uml.htm Patricia Ann Weeg. Who am I. Kidlinksamskiptaverkefni á netinu. 1998. http://www.globalclassroom.org/vita.html Nini Ebeltoft. Overalt og ingen steder. 1997, http://www.uio.no/~ninie/overalt-0.html I krafti upplýsinga. Reykjavík. Menntamálaráðuneytið. 1996. Endurskoðun aðalnámskrár. Reykjavík. Menntamálaráðuneytið 1998. Kidlink-vefurinn. 1996-8. http://www.kidlink.org 34 Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.