Tölvumál - 01.02.2000, Side 10

Tölvumál - 01.02.2000, Side 10
Myntkort KLINK - Kjartan Jóhannesson /Vleð vorinu taka ör- gjörvar að vera á nýjum eða endurnýj- uðum debetkortum, sem koma úr kort- sláttu Reiknistofu bankanna Ofannefnd Debetkort með örgjörva og Klink-forritslausninni, eru svokölluð reikn- ingstengd myntkort myntkort banka og sparisjóða s slenskir bankar og sparisjóðir hafa ákveðið að taka upp myntkortakerfi að þýskri fyrirmynd. Stuðst er við þýskan staðal Geldkarte 3.0 fyrir kort, hleðslutæki og afgreiðslutæki. Orgjörvi á kortið Með vorinu taka örgjörvar að vera á nýj- um eða endumýjuðum debetkortum, sem koma úr kortsláttu Reiknistofu bankanna. Kort með slíkan örgjörva hafa verið nefnd smartkort eða snjallkort, enda komið nokkurt vit í kortið, sem segja má að sé í raun lítil tölva, sem býður upp á mjög víð- tæka notkun og möguleika á ýmsum svið- um. Að hafa svona örgjörva á plastkortum er orðið býsna algengt og nægir að nefna svokölluð SIM-kort í GSM-símum sem dæmi um það. Örgjörvinn, sem verður á debetkortun- um er með 16K vinnsluminni og á honum verða forsniðnar ákveðnar forritslausnir og skráaruppbygging þegar kortin koma úr kortsláttunni. Klink Myntkortalausnin sem verður á kortinu hefur fengið nafnið Klink. I áhugaverðri skýrslu sem Seðlabanki Islands gaf út í september 1996 er slík lausn kölluð raf- eyrir. Ég leyfi mér að vitna í þá skýrslu og er fyrirbærinu lýst á eftirfarandi hátt: „Greiðslukortafyrirtækin hafa því ákveðið eftir áralangar rannsóknir að gefa út nýja gerð greiðslukorta sem hafa innbyggðan örgjörva. í þeim verður innbyggt minnis- spjald með flóknum öryggisbúnaði ásamt upplýsingum um korthafa og útgefenda korts sem talið er ógerlegt að falsa. Af þessum örgjörvakortum hafa síðan sprott- ið svonefnd rafeyriskort þar sem ígildi peninga, rafeyri, er hlaðið í kortin fyrir milligöngu fjármálstofnunar." Hleðsla Fljótlega í framhaldi af útgáfu fyrstu kort- anna verður hægt að hlaða Klink kortin með rafeyri í mönnuðum og ómönnuðum hleðslutækjum í eigu íslenskra banka og sparisjóða. Mönnuðu hleðslutækin verða í gjaldkerastúkum og þar verður unnt að hlaða kortin gegn greiðslu í reiðufé eða með öðrum greiðsluformum. Þar er einnig núllstilltur teljari sem telur tilraunir með röngu pin-númeri og geymdur er í ör- gjörvanum. Það þarf nefnilega að gefa upp pin-númer þegar kortið er hlaðið í ómönn- uðu hleðslutæki eins og hraðbanka. Franr hafa komið hugmyndir um að geta hlaðið Klink kortið í gegnum netlausnir bank- anna á Internetinu, með svokölluðum FIBCI-staðli en þegar þetta er ritað er ekki ljóst hvort af verður. Venjuleg hleðsla fer þannig fram að Klink-korti er stungið í hleðslutæki. Eins og fyrr segir þarf að slá inn pin-númer (það sama og notað er við úttektir af debetkortinu) og upphæð. Ef pin-númer er rétt og innstæða fyrir hendi, þá fer fram millifærsla af debetkortareikningnunr inn á teljara örgjörvans og þar með getur kort- hafinn farið að nota Klink við greiðslu á ýmsu því sem hann notaði smámynt við áður. Handhafakort Ofannefnd debetkort, með örgjörva og Klink-forritslausninni, eru svokölluð reikningstengd myntkort. Aformað er einnig að gefa út óreikningstengd kort, sem við kjósum að kalla handhafakort. Þau eru hugsuð til dæmis handa börnum og erlendum ferðamönnum sem að jafnaði ganga ekki með debetkort upp á vasann. Þegar hefur verið kynnt sanrbærileg Iausn þar sem Smartkort hf. hafa hrint af stað snjallkortakerfi í Kópavogi, þar sem börn og unglingar greiða fyrir þjónustu í og við skóla með snjallkorti. Veit ég fyrir víst að margir foreldrar hugsa til þess með til- hlökkun að geta hlaðið ígildi eins skanrmts af Kókómjólkurmiðum á hand- hafakort með Klink lausninni og þurfa ekki að hafa frekari áhyggjur af snrápen- ingunr né miðum. Erlendir ferðamenn sem þekkja sam- bærileg kerfi á heimaslóðum, munu einnig 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.