Tölvumál - 01.05.2002, Blaðsíða 3
Tímarit Skýrslutæknifélags íslands
M
mrnrn.
• E • F • N • I •
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2001 / Eggert Ólafsson iJ
Alþjóðlegur miðlari með hágæða nómsefni Ebba Þ. Hvannberg, Sigrún Gunnarsd. 0 og Sæmundur E. Þorsteinsson
Sími - nýir möguleikar Björn Jónsson 12
Af CeBit 2002 Einar H. Reynis 16
Nýting ytri auðlinda Michel F. Corbet 19
Langtímavarðveisla rafrænna skjalasafna opinberra aðila Eiríkur G. Guðmundsson 22
Mynstur úr rafhleðslum og eyðum Eyður 24
Ótrúlegar framfarir í skjávarpatækni Nýherji kynnir nýjustu TÆKNI í KYNNINGARBÚNAÐI 26
Ráðstefnur og sýningar 28
Samantekt á birtum greinum í 26. árgangi tölvumála 30
ISSN-NÚMER:
1021-724X
Trúlega myndu flestir nefna
tölvupóstinn sem það mikilvæg-
asta sem er í notkun dags dag-
lega og gildir þá einu hvert er
starf viðkomandi. Tölvupóstur-
inn er til margs gagnlegur en
hans er
það sem kallast ruslpóstur.
Þetta eru fjöldasendingar sem
dreift er um allan heim, þar
sem eitt skeyti verður að millj-
ónum, og lesendur eru efalaust
margir hverjir í þeim flokki að
þurfa hefja vinnudaginn á að hreinsa til og eyða einhverju magni
sem til þeirra berst óumbeðið utan úr heimi.
Mikið af slíkum sendingum eru einföld textaskeyti en það nýjasta
sem sendendur hafa gripið til er að láta lítil forrit fylgja með slíkum
skeytum sem verða þess valdandi að upplýsingar um viðtakandann
eru sendar tilbaka um leið og skeytið er lesið.
Efni skeytanna er litríkt og oft tengt þvi að verða ríkur í einum
grænum, lifa til eilífðar, eitthvað kynlífstengt og svo framvegis. Skeytin
sem fólki berast eru mismörg. Sumir sleppa alveg við þetta en hjá
öðrum verður þetta óviðráðanlegt flóð og sem dæmi má nefna að
blaðamaður nokkur ritaði nýlega að honum bærust að jafnaði 1 30
slík skeyti á dag.
Fyrir netþjónustuaðila og þá sem reka tölvupósthús er þetta ekkert
grín og vandamálið fer stigvaxandi. Ruslpóstur, sem kallast „spam" á
ensku, á eftir að aukast verulega á næstu árum með filheyrandi
bandbreiddarteppum og taka geymslupláss.
Fyrir viðtakendur er þetta hvimleitt, að þurfa að hreinsa burtu
ókjörin öll af óþarfa pósti hvað þá að forða börnum frá því að vera
ginnt á óæskilegar heimasíður fyrir atbeina svona sendinga.
Verið er að taka á þessu vandamáli á mörgum vígstöðvum, með-
al annars með lagasetningum og tæknilegum lausnum á heimavelli.
Hvað síðarnefnda atriðið snertir er vert að benda á afar gagnlegan
eiginleika í mörgum póstforritum. Hann gengur undir nafninu Junk
Filter". Siur þessar, ef þær eru virkar, geta verið ansi skilvirkar og þó
þær eyði ekki öllu rusli er hlutfallið mjög hátt. Mögulegt væri að
eyða póstinum strax eða láta póstinn fara rakleitt í sérstaka möppu
sem síðan er tæmd eftir tilfekinn tíma og því þarf ekkert að eiga við
póstinn, og upplýsingar um móttöku því ekki sendar tilbaka.
Einar H. Reynis
óheppilegur fylgifiskur
Tolvumál
3