Tölvumál - 01.05.2002, Blaðsíða 6
Skýrsla stjórnar
í janúar var haldinn áhugaverður hádeg-
isverðarfundur um vefteljara þar sem
m.a. var fjallað um mikilvægi samræm-
ingar á þessu sviði.
I febrúar var haldinn fjölmennur hádeg-
isverðarfundur um öryggismál. Þar sagði
erlendur sérfræðingur m.a. frá BS7799
sem nú hefur verið þýddur á íslensku og
tók gildi sem íslensku staðlarnir ÍST
ISOAEC 17799-1 og ÍST BS 7799-2 þann
1. desember 2001 og hefur þegar haft um-
talsverð áhrif á stjómun upplýsingaörygg-
is hér á landi.
Reglur um netnotkun voru á dagskrá
þriðja hádegisverðarfundar ársins í byrjun
mars. Þar skiptust tveir lögfræðingar, full-
trúar atvinnulífsins og verkalýðssamtaka
og stjórnandi tölvudeildar, m.a. á skoðun-
um um það hver ætti tölvupóstinn. Þetta
var fjölsóttur fundur og ég held að hann
hafi haft umtalsverð áhrif á þá sem hann
sátu.
Fjórði atburður ársins, einnig haldinn í
mars, var önnur ráðstefna félagsins um
stýrikerfíð Linux og frjálsan hugbúnað.
Við fengum tvo helstu gúrúa heimsins til
liðs við okkur á þessari ráðstefnu en hana
sóttu 283 og er þetta líklega fjölmennasta
hefðbundna ráðstefna félagsins frá upp-
hafi.
Otakmörkuð bandbreidd var viðfangs-
efni hádegisverðarfundar í apríl. Auk full-
trúa Landssímans og Línu.Nets fengum
við kunnan fjölmiðlamann til að varpa
ljósi á þessi mál.
I maí var haldin athyglisverð ráðstefna í
samstarfi við ICEPRO um altækt tungu-
mál viðskipta. Þar var einkum fjallað um
hlutverk og mikilvægi XML í tengslum
við rafræn samskipti og viðskipti fyrir-
tækja. Það er vissulega athyglisvert hve
mikilli fótfestu þessi tækni hefur náð.
Sjöundi og síðasti atburður fyrri hluta
ársins var haldinn í lok maí í samvinnu við
Nýsköpunarsjóð og Utflutningsráð og
fjallaði um útflutning á hugbúnaði. Þar
var þekktur erlendur ráðgjafi lykilfyrirles-
ari, en auk hans sögðu fimm íslenskir
framkvæmdastjórar frá sinni reynslu og
var m.a. áhugavert að heyra hve þolin-
mæði og úthald skiptir miklu máli á þessu
sviði.
Fyrsti atburður haustsins var hádegis-
verðarfundur um netþjónabú. Á fundin-
um komu m.a. fram áhugaverðar upplýs-
ingar um orkunotkun og uppbyggingu net-
þjónabúa.
Haustráðstefna félagsins, Rafræn
framtíð, var mjög vegleg, tæplega heils
dags ráðstefna sem iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra setti. Fyrirlesarar voru 12talsins,
þar af tveir erlendir og boðið var upp á
tvær samhliða fyrirlestralínur. Umfjöllun-
arefnið var mjög fjölbreytt og snerist m.a.
um rafrænar kosningar, rafræna stjórn-
sýslu, framtíð sjónvarpsins og tilfinninga-
greind, svo dæmi séu tekin.
I lok september var haldinn hádegis-
verðarfundur um notendaleyfamál
Microsoft. Fyrirtækið hafði þá nýlega
boðað breytta stefnu í þessum málum og
var ljóst að ýmsir höfðu áhyggjur af
hækkandi hugbúnaðarkostnaði samfara
þessum breytingum.
Léttbiðlarar (e. Thin Client) var heiti
og umfjöllunarefni áhugaverðrar ráðstefnu
á tæknilegum nótum sem var m.a. undir-
búin af stjórnarmönnum í DECUS. Þama
voru kynntar flestar léttbiðlaralausnir sem
notaðar eru hér á landi og jafnframt var
borin saman hefðbundin biðlara-miðlara-
högun og léttbiðlarahögun út frá tækni,
kostnaði og ýmsum huglægum þáttum.
Tólfti og síðasti atburður ársins 2001
var svo hugbúnaðarráðstefna í lok nóvem-
ber sem nefnd var Hugbúnaðarflóran.
Þama kom fjölmargt nýtt fram, en það
sem var þó e.t.v. athyglisverðast við þessa
ráðstefnu var óvenju fjörugt pallborð, þar
sem mönnum var svo heitt í hamsi að lá
við handalögmálum, enda skiptust menn í
tvær fylkingar, þ.e. annars vegar voru þeir
sem stóðu með Microsoft og hins vegar
þeir sem stóðu með öllum hinum.
Af þessari upptalningu má sjá að boðið
var upp á óvenju marga atburði á síðasta
ári, enda var heildaraðsóknin nánast sú
sama og á metárinu 2000.
Tímaritið Tölvumál
Könnun sem gerð var meðal félagsmanna
fyrir nokkrum misserum sýndi að flestir
lesa blaðið og líta á það sem mikilvægan
þátt í starfsemi félagsins. Á síðasta ári
kom blaðið út þrisvar sinnum, samtals 116
blaðsíður með 24 greinum. Þetta er nokk-
ur fækkun frá árinu áður, en þá komu út 5
blöð með 37 greinum. Auglýsingatekjur
Ó
Tölvumái