Tölvumál - 01.05.2002, Side 12
Sími — nýir möguleikar
Sími-
Björn Jónsson
Nú er leitað er eftir
næstu lausnum sem
munu slá í gegn,
enda leit fjarskipta-
fyrirtækja að nýjum
tekjumöguleikum
grimm.
nýir möguleikar
Sími er órjúfanlegur hluti af tilveru
flestra okkar og í raun þekkjum við
vart annað. Notkun hans hefur verið
vel skilgreind og lengst af takmarkast við
símtöl milli manna. Þetta eins og svo
margt annað hefur verið að breytast og
mun klárlega halda því áfram því smám
saman eru að skapast ný tækifæri með
nýrri tækni sem ekki voru til staðar áður.
Umræður um svokallaða 3ju kynslóðar
farsíma, hefur nánast alfarið fjallað um
hugsanlega nýtingu símanna til gagna-
samskipta, til dærnis með því að vafra á
netinu, hlusta á tónlist, skoða Ijósmyndir
eða jafnvel lifandi myndir, kaupa hluta-
bréf og nota sem greiðslumáta. Vissulega
hafa margir farið fram úr sér og fyrirtæki
sem hafa ætlað að þróa slíkar lausnir hafa
mörg farið illa út úr fjaðrafokinu og vænt-
ingum sem á engan hátt stóðust þegar á
reyndi. Fjarskiptafyrirtækin sjálf hafa á
sama tíma verið mörg hver hálflömuð
vegna kostnaðar við leyfi á farsímaleyf-
um. Flestum ber saman um að þessi tækni
muni koma, en hversu hratt það gerist og
hvað af þessari þjónustu mun verða arð-
bært er erfiðara að meta. Sígilt er að
benda á vinsældir SMS, sem fáir bundu
miklar vonir við í upphafi. Nú er leitað er
eftir næstu lausnum sem munu slá í gegn,
enda leit fjarskiptafyrirtækja að nýjum
tekjumöguleikum grimm. Þessi áhersla á
gagnalausnir hefur gengið svo langt að
stundum hefur gleymst að tal er eðlileg-
asta form samskipta og hægt að útbúa
fjölmargar virðisaukandi lausnir þar ofan
á. Lausnir sem byggja á slíkri tækni höf-
um við kosið að kalla tallausnir. Flér verð-
ur fjallað um hver þróunin er í slíkum
lausnum og nokkrar slíkar lausnir út-
skýrðar.
Samruni síma og tölvutækni hefur verið
í gangi í töluverðan tíma. Eins og svo oft
hafa menn ofmetið hraða breytinganna til
skemmri tíma, því þarna er frekar um þró-
un en byltingu að ræða. Það er hins vegar
staðreynd að skilin milli þessara tveggja
heima verða sífellt óljósari þegar tal og
gögn fara um sömu miðlana og nútíma
símstöðvar eru þjónustur keyrandi á Unix
netþjónum. Símtölvun, sem eru hugbún-
aðarlausnir sem byggja á samþættingu
síma og tölvutækni, er heldur ekki nýtt
fyrirbrigði. Flins vegar hefur áðurnefnd
tæknibreyting ýtt mjög undir þá mögu-
leika sem nú standa til boða.
Nútíminn
Símtæki nútímans hvort heldur um er að
ræða farsíma eða borðsíma bjóða upp á sí-
fellt fleiri möguleika og því eðlilegt að
nýta þennan búnað í fleira en bara að tala
í. Fyrir utan að almennu símkerfin eru
ákaflega traust samskiptaleið er það aug-
ljós staðreynd að allir hafa aðgang að síma
á nánast öllum tírnum. A sama hátt og
símtæki er staðalbúnaður sem allir munu
nota í fyrirsjáanlegri framtíð til að tala í,
er vefurinn sá samskiptamiðill sem óum-
deilanlega mun verðandi ráðandi varðandi
gagnasamskipti og viðmót. Vefurinn hefur
þann sama kost og síminn að hægt er að
nota hann hvar sem er til að komast í sam-
band við kerfi hvar sem er í heiminum.
Með því að blanda þessu tvennu saman er
verið að búa til lausnir sem ekki krefjast
neins viðbótarbúnaðar fram yfir það sem
venjulegir notendur eru þegar með í dag.
Þessu til viðbótar fylgir sá kostur að slík
kerfi má hýsa hvar sem er án þess að not-
endur sjái nokkum mun þar á. Síðast en
ekki síst hefur hin almenna notkun far-
síma gert það að verkum að farsímanúmer
er orðið hægt að nota sem einkennisnúmer
viðkomandi sem enn frekar eykur nota-
gildi þessara lausna, því hægt er að nýta
símanúmerið sem hringt er úr sem að-
gangsstjórnun sem og til skilaboða svo
dæmi séu nefnd.
Hefðbundin svarkerfi, sem eru dæmi
um símtölvunarlausnir, hafa þekkst lengi,
þar sem notendur geta hringt inn í sérstök
númer og fengið upplýsingar um stöðu á
bankareikningi, upplýsingar um komur og
brottfarir flugvéla, veður og færð svo
dæmi séu nefnd. Hægt er að ganga mun
lengra í þessu sambandi og þá sérstaklega
með áðurnefndri samþættingu síma og
12
Tölvumál