Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Tkypir
POPPLÍFIÐ í LANDINU
Svelmandi,
dreymandl
Helga Björnsson þarf ekki að kynna. Hann
hefur getið sér slíkt orðspor sem söiigvari
SSSólar og sem leikari, að um hann þarf ekki að
fjölyrða. Helgi hefur í seinni tíð dvalist á Italíu
þar sem eiginkona hans hefur stundað nám
meðan hann sjálfur hefur gætt bús og barna. En
í dvölinni á Appiníuskaganum gerði sönggoðið
ýmislegt fleira, t.d. dundaði við að semja lög og
texta, sem nú eru komin út á hans fyrstu ein-
herjaplötu, er kallast einfaldlega Helgi Björns.
Fyrirfram hefðu einhverjir átt von á rokki í þeim
anda sem Helgi hefur verið að skapa með Sól-
inni, einfalda og góða rokkið í anda Stones og
fleiri góðra krafta. En það fer hins vegar lítið fyr-
ir slíku á nýju plötunni. Með Valgeir Sigurðsson
sem einn af sínum helstu hjálparkokkum (var
m.a. í Birthmark) hefur Helgi skapað seiðmagn-
aða poppplötu, þar sem hann fer um, ljúfsár á
öldum söngsins, ýmist dreymandi eða sveim-
andi. Til að byrja með var þessi breytti, en jafn-
framt fastmótaði svipur hjá Helga framandi
áheyrnar, en með ítarlegri hlustun gegnum
plötuna varð hún sífellt ásættanlegri. Mörg
býsna sterk Iög eru á plötunni og við þau ágætir
textar. Má þar t.d. nefna, Bleikur, (sem aðeins
minnir reyndar á Sólina) Dauðinn táknar líf, Ég
skrifa þér ljóð á kampavínstappa, Ég er að bíða
og Mamma. Tvö þau síðastnefndu minna reynar
Helgi Björnsson skilur sig frá SSSól med plötunni.
nokkuð á „Bubbann" eins og þau hljóma og svo
sem ekkert sérstakt út á það að setja. I heild má
semsagt segja að Helga hafi tekist vel upp með
þessari plötu og náð að skilja sig vel frá fyrri
verkum með SSSól. Það eitt út af fyrir sig að
Helgi er ekki að reyna að endurtaka fyrri formúl-
ur sem reynst hafa vel, er honum til hróss.
Rokk 09 rólegheít
Það var eflaust mörgum ánægjuefni á síð-
asta ári, að sjá „Eilífðarrokkara íslands
númer eitt“ Rúnar Júlíusson standa keikan að
nýju eftir erfið veikindi og senda svo frá sér
plötuna með táknræna heitinu, Með stuð í
hjarta. Þar var á ferðinni hin þægilegasta
plata, sem Rúnar gerði með aðstoð kappa á
borð við Bubba, KK o.fl. A nýju plötunni nú
gerir hann svo enn betur, með fleiri og betri
lögum, sem eru í senn kraftmikil og hrá í
mörgum tilfellum. Heiti plötunnar er áfram
táknrænt fyrir Rúnar, er blandað grípandi
sveita- og poppnótum ásamt blúsuðu roldd á
þann hátt sem einna best verður kosið. Þá
segir þetta heiti margt um Rúnar sjálfan.
Hann er kappsfullur og kraftmikill á sviðinu,
en hvers manns hugljúfi og rólegheitamaður
„utan vallar" og eins og áður eru svo ýmsir
aðrir kallaðir til aðstoðar, m.a. Ieggja sitt að
mörkum, Sverrir Stormsker, Jóhann Helgason
og synir Rúnars, Júlíus og Baldur, en sá fyrr-
nefndi tók plötuna einnig upp. Fastir menn t
liðinu eru svo á sínum stað, Asgeir Oskarsson
á trommum og Tryggvi Hubner á gítar.
Tryggvi, vinur og félagi Rúnars til margra ára,
stelur reyndar senunni að stórum hluta á
plötunni með hráum og firnagóðum leik sín-
um. Niðurstaðan er því, að enginn bílbugur
er á rokkaranum Rúnna Júl og hann gerir
hlutina nú sem aldrei fyrr af hjartans list. Svo
má sérstaklega hrósa myndinni sem prýðir
plötuna. Sýnir hún Rúnar sannarlega í sínu
rétta „gullna" ljósi.
Afhjartans list á vel viö Rúnar Júlíusson á nýjustu
plötunni hans.
Magniís Geir
Guðmundsson
skrifar
UTOAFU
FRETDR
þá eru tvö af vinsælli lögum
landsins um þessar mundir, Flíkið einfalt, með Vínil og Hæð í húsi
með hinum bráðskemmtilegu 200.000 naglbítum frá Akureyri, að
finna á hinni mjög svo spennandi og góðu
safnplötu, Spírur, sem kom út fyrir stuttu.
Auk þessara tveggja eiga svo fimm aðrar
sveitir lög, Port, Emmet, Tristian, Stjörnu-
kisi (sigurvegarar Músíktilrauna 1996 og .. . .
eina sveitin sem eitthvað annað hefur gef- ■ | I
ið út) og Bang gang. Samtals eru lögin 14,
tvö með hverri sveit. Hinar fimm fyrst-
töldu eru allar á hinum fjölbreytilegustu
brautum rokksins, þar sem pönk og nýbylgja blandast saman við
popp með ótvíræðum árangri. Hjá hinum tveimur, Stjörnukisa og
Bang Bang er Iíka rokk í spilunum, en með dans/hip hop blæ. Sýn-
ir þessi plata berlega, að íslenskt tónlistarlíf er orðið fyllilega sam-
bærilegt við það sem best gerist erlendis og fái þessar sveitir og
fleiri tækifæri til að vaxa og dafna virðist framtíðin í meira lagi
björt. Gildir þetta raunar um margt fleira af því sem er að koma út
nú t.a.m. Súrefni, Maus og Woofer.
Eskimó Jóhanns H.
Eftir að hafa látið lítið á sér kræla í mörg ár, sendi söngvarinn og
lagasmiðurinn með meiru, Jóhann Helgason, frá sér plötuna Kef
fyrir síðustu jól. Þar var á ferðinni nokkuð svo vönduð poppplata
sem m.a. innhélt lagið Bid me to love er náði miklum vinsældum.
Jóhann er svo aftur á ferðinni nú með nýja
plötu, sem hann nefnir Eskimó. Inniheld-
ur hún tíu lög, níu glæný, en svo einnig
útgáfu af gamla laginu hans, Baby Jane.
Allt er með miklum atvinnumannsbrag
hér eins og á Kef. Einhverslags „Síð-Bítla-
popp“ einkenndi Kef og áfram er það
„fullorðinspopp" sem svo er stundum
nefnt, sem er á dagskrá. (Tilbrigði við
Elton John, Supertramp o.fl. svo eitthvað
sé nefnt). Þeir sem una slíkri tónlist verða örugglega ekki fyrir von-
brigðum, því Jóhanni tekst vel sem fyrr að hnýta saman grípandi
laglínur í áðurnefndum stíl. Kappinn verður þó seint sakaður um
að vera frumlegur, enda e.t.v. ekld að reyna að vera það. Eskimo; er
fimmta einheijaplata Jóhanns, þær þrjár fyrstu, Tass, Einn og Ast-
in, verða að líkindum endurútgefnar á næsta ári.
■tntkNiF
| Saxadjass
Hinn liðlega tvítugi saxafónleikari, Óskar
Guðjónsson, vakti mikla athygli á síðasta
ári er hann kom fram sem nýr meðlimur í
Mezzoforte á plötunni, Monkey fields.
Óskar hefur nú stigið annað skref á ferlin-
um með því að senda frá sér plötu undir
eigin nafni sem kallast Far. Hrár og lífleg-
ur djass, sannkallaður Saxadjass, er þar á
boðstólnum og verða unnendur djass
ásamt fleirum áreiðanlega hinir ánægðustu með gripinn. Upptöku-
maður á plötunni var Skúli Sverrison bassaleikari, sem einnig spil-
ar á henni ásamt Hilmari Jenssyni gítarleikara og Matthíasi Hem-
stock trommara. Skúli er sem kunnugt er starfandi í New York og
fór vinnsla plötunnar einmitt að nokkru fram þar í borg.
Vænnskammtur
. Tvöföld geislaplata með 40 lögum hefur
Iitið dagsins ljós undir nafninu, Óskalög-
in. Þar er á ferðinni safn laga frá sjötta og
sjöunda áratugnum, sem átt hafa það
sameiginlegt að hafa notið mikilla vin-
sælda í óskalagaþáttum Ríldsútvarpsins á
þessum tíma og síðar, sjómanna og
sjúldinga. Þarna er margt gullkornið (sem
reyndar margt hvert hefur komið út áður)
en meðal margra góðra flytjenda eru, Ragnar Bjarnason, Sigurður
Ólafsson, Erla Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Smith, Sigríður Jónsdóttir
og Sigurdór nokkur Sigurdórsson, sem einhverjir í blaðaheiminum
ættu að þekkja.