Dagur - 20.11.1999, Blaðsíða 10
/ // IP / l/\NPINU B.
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999
„Viö erum alveg eins og
fávitar þarna..." voru viö-
brögö þeirra nú, 14
árum síðar, þegar þau
rýndu í giftingarmyndina
sína.
Það var ekkert verið að
„tvínóna á beljunni“ þegar
þeim Dunu og Halldóri, sem
standa á bak við fimmföldu
Edduverðiaunamyndina Ung-
frúin góða og húsið, laust fýrst
saman. Eftir rúmt ár voru þau
búin að byggja, eignast barn,
gifta sig og byrjuð á bíómynd...
Þegar blm. mætti upp í Melkot til þeirra
Guðnýjar Halldórsdóttur (ellegar Dunu
eins og hún er kölluð þar á bæ) og Hall-
dórs Þorgeirssonar sl. miðvikudag riíj'að-
ist upp fyrir þeim skötuhjúum að þau
ættu brúðkaupsafmæli. Þau hefðu víst
gift sig þann 17. nóv. fyrir einhverjum
árum. Meðan bóndinn skrapp yfir til
tengdamömmu á Gljúfrasteini til að ná í
giftingarmyndina af þeim - mynd sem
þau flika sum sé ekki á eigin heimili -
stóð Guðný og reyndi að muna hvort það
hefði verið 1985 eða árið 1986 sem þau
giftu sig. Þegar Halldór sneri aftur með
myndina tók hann af skarið, það mun
hafa verið árið 1985 sem þau létu pússa
sig saman í heimahúsi og héldu svo dá-
litla brúðkaupsveislu á Naustinu þar sem
þau dönsuðu brúðardansinn við Ijúfa
tóna Hauks Morthens, nánar tiltekið lag-
ið: „Til eru fræ.“
Tóku þetta
með trukki
Það var enginn hnapphelduótti að þvæl-
ast fyrir Guðnýju og Halldóri eftir að þau
kynntust við gerð Gullsands, bíómyndar
Agústs Guðmundssonar, árið 1984 þar
sem hún var framkvæmdastjóri en hann
gerði leikmynd heldur tóku þau sam-
bandið með trukki. Strax vorið 1985 byrj-
uðu þau nefnilega að byggja Melkot sem
stendur við hliðina á Gljúfrasteini í Mos-
fellsdalnum - og fluttu inn í júní ‘85.
Sonurinn var þá nýfæddur og skömmu
síðar Kófst vinna við kvikmyndina Stella í
Orlofi.
- Þið hafið varla verið komung þegar
þið kynntust?
GUÐNY (kom sér fyrir í hægindastól
og svaraði tinandi röddu): „Nei, ég man
að ég var nú komin af léttasta skeiði..."
og Halldór minnti hana á að hún hefði þá
þegar verið búin að fá hrukkukremið frá
vinkonum sínum í afmælisgjöf. Þau voru
reyndar ekki komin að fótum fram. Guð-
ný var rétt um þrítugt, Halldór sex árum
yngri, og hún var þá nýlega búin að
stofna kvikmyndaíyrirtækið Umba ásamt
fjórum konum. Konurnar duttu smám
saman út en Halldór gekk inn í fyrirtækið
og nú standa þau tvö á bak við Umba
sem hefur gert sex bíómyndir í fullri
lengd.
- Og hverjir voru framtt'ðardraumar fyr-
irtækisins?
„Að gera óskarsverðlaunamynd með
Dustin Hoffman og íslensku tali um ís-
lenskan veruleika," svarar Guðný, „neiiii,
mann hefur bara langað til að reka heið-
arlegt kvikmyndafyrirtæki, geta gert eina
mynd á 2-3ja ára fresti án þess að þurfa
að vera alltaf á síðustu blóðdropunum.
En ég er efins um að það sé hægt.“ Þau
hafa, eins og annað íslenskt kvikmynda-
gerðarfólk, lagt allt sitt að veði fyrir bíó-
myndirnar og Guðný bendir á að húsið
sem við sitjum í og bollarnir sem við
drekkum kaffið úr séu eins og annað eign
bankanna. Halldór tekur þó fram að þau
geti nú ekki kvartað, hafi í raun verið
fremur heppin, fengið fína aðsókn á sum-
ar myndirnar og tekist að halda sér á
floti. Og aldrei þurft að skella sér á sjóinn
eða í akkorðsvinnu í byggingarbransanum
til að komast upp úr skuldafeninu.
Hvar eru
Bjartsýnisverðlaunin?
höndunum ú Edduverðlaununum, Ung-
frúin góða fékk 5 verðlaun alls, finnst
ykkur framleiðslan hér nóg til að halda
úti svona keppni A hverju ári?
„Já,“ svarar Halldór, „en til að svona
keppni sé skemmtileg þarf að framleiða
4-5 bíómyndir. Núna er Kvikmyndasjóð-
ur orðinn það stór og verður stærri að
hér verða gerðar allt að fimm myndir á
ári. Þetta er það sem við erum búin að
berjast fyrir lengi og maður sem heitir
Björn Bjarnason gerði...“
GUÐNY: Kvikmyndir voru einu sinni
litnar hornauga og það var litið svo á að
maður væri á hreppnum ef maður var
að gera kvikmyndir en milljónirnar sem
við erum búin að setja inn í landið eru
þvílíkar að ég skil ekki f því að við séum
ekki búin að fá Bjartsýnisverðlaun
Bröstes.11
Helvíti heppin
Halldór á tvær stelpur af fyrra hjóna-
bandi en sonur þeirra Guðnýjar er nú
orðinn 14 ára og „heitir Halldór, þeir
heita allir Halldór,“ sagði Halldór og
brosti breitt. Kvikmyndabransinn er
ennþá barningur, segja þau, en eru til-
tölulega sátt meðan áhorfendur nenna
að mæta á myndirnar. Enda Iangt síðan
þau kolféllu bæði fyrir kvikmyndagerð
og Halldór, sem var innritaður f sagn-
fræði á sínum tíma, smitaðist svo ræki-
lega að honum fannst allt annað en
kvikmyndagerð orðið Ieiðinlegt. Breytt-
ist svo smám saman í tatara því kvik-
myndagerðin er hálfgert tataralíf. Þó er
Guðný meiri húsmóðir en margir halda,
segir Halldór og lítur á konu sína.
„Ha? Hver?“ spyr Guðný og lítur for-
viða í kringum sig.
„Já, það er að vísu mjög sjaldan bakað
hérna,“ segir Halldór, „en mamma
hennar bætir það upp.“
— Þið hafið i dag [sl. miðvikudag] ver-
ið 14 ár í hjónabandi - mynduð segja að
þetta væri gott hjónaband?
„Ja, miðað við þann djöfulskap sem cr
allt í kringum mann þá myndi ég segja
að við værum bara helvíti heppin...“
LÓA
- Og nú stóðuð þið uppi með pálmann í
Þau kynntust sumarið 1984 þegar hún var framkvæmdastjóri og hann gerði leikmynd við Gullsand.
Hvað dró þau hvort að öðru? Hann var svo fíjótur að hugsa, sjarmerandi og fyndinn. Honum finnst svar-
ið liggja í augum uppi fyrir hvern þann sem hittir Dunu: „Hún er bara svo skemmtileg."