Dagur - 20.11.1999, Blaðsíða 19

Dagur - 20.11.1999, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 - 35 Drengurinn var magur og vesældarlegur og varþegar háttaður ofaní rúm. Léttadreng misþyrmt Um 20. ágúst 1924 var níu ára gamall drengur frá Sauð- árkróki lánaður sem léttadrengur að bæ í Skagafirði og bar kunnugum saman um að þangað hefði drengurinn farið að öllu leyti heill heilsu, vel til fara og óskemmdur á fótum, í góðum holdum og í fullu Qörí. En næstu fimm vikumar upplifði drengur- inn ungi sannkallaða martröð. Á bænum bjuggu hjón, sem við köllum Guðberg og Jóhönnu, hann 30 ára en hún 24 ára og vanfær af öðru bami þeirra, en fyrir var á heimilinu þriggja ára bam þeirra. Það var hart í ári, kuldatíð og annir miklar. Drengurinn skyldi létta hjónunum verkin. Fimm vikum eftir komu drengsins var nágrannastúlka að nafni Margrét á ferð á hesti sínum nálægt bænum og rakst á drenginn, sem við köllum Jónas, þar sem hann lá á grúfu við þúfu út á víðavangi, rænulítill og illa á sig kominn. Vildi hann ekld fara heim til sín en samþykkti að fara heim með stúlkunni. Heimilisfólk stúlkunnar sá þegar að ekki væri allt með felldu. Drengurinn var þrátt fyrir kuidakast illa klæddur að utanhafhar- fötum; í einni pijónapeysu og utanhafnar- brókum sem gengnar voru af öðrum lær- saumi, með prjónahúfu á höfði. Drengur- inn var blár í andliti af kulda, berhentur og bólginn á höndum, votur uppfyrir hné og skalf mjög. Hann var magur og vesældar- legur og var þegar háttaður ofaní rúm. Missti allar tær á báðum fótum Þegar Jónas var afklæddur varð fólkinu starsýnt á fætur hans, sem voru mjög skemmdir; bólgnir uppfyrir öklda og settir kuldapollum og svörtum drepblettum. Tærnar á báðum fótum voru svartar, harð- ar og alveg dauðar, og lagði fljótlega af þeim ýldulykt. Þarna var drengnum hjúkrað í tæpa viku og var hann framan af varla með réttu ráði. Hann komst í læknishendur í nokkra daga áður en hann var fluttur með strandferða- skipi á sjúkrahús, þar sem hann dvaldi í nokkra mánuði undir stöðugu eftirliti. Ekki var hægt að bjarga miklu; leysti af allar tær á báðum fótum og varð að taka af fremsta hluta nokkurra ristarbeinanna. Mál var höfðað gegn hjónunum Guð- bergi og Jóhönnu vegna misþyrmingarinn- ar. Báru læknar að ekkert hefði getað or- sakað ásigkomulag drengsins nema kuldi, vosbúð og illur aðbúnaður. Berðu á þær smjör drengur Við rannsókn málsins kom fram sá fram- burður drengsins, að hjónin hefðu verið vond við hann og barið hann, þó fremur Guðbergur en Jóhanna. I eitt skipti hefði hann og verið sveltur, en almennt verið svangur á þeim fimm vikum sem hann dvaldi hjá hjónunum. Hjónin voru hneppt í gæsluvarðhald og lágu fljótlega fyrir játningar þeirra um meg- inatriði. Sögðust þau ekki hafa veitt því at- hygli hvort drengurinn væri heill á fótum fyrr en hálfum mánuði eftir að hann kom til þeirra, en þá varð konan þess vör að drengnum væri illt í fótunum. Skoðuðu þau hjónin fæturna og sögðu að þá hafi tærnar á báðum fótum verið orðnar bláleit- ar og svartar og harðar viðkomu. Prófaði Guðbergur hvort drengurinn fyndi til í tán- um með því að klípa í þær, en drengurinn kvaðst ekkert finna til. Sögðust þau þá hafa íhugað að leita ráða hjá hreppstjóra um lækningar, en úr því varð samt aldrei. Þcim duldist næstu daga ekki að drengnum versnaði; varð sjá- anlega haltur og bjagaður í göngulagi. Hlífðist hann við að stíga í fæturna en beitti fýrir sig jörkunum utanfótar og hæl- unum. Síðustu vikuna kvartaði drengurinn mjög yfir ástandi sfnu, en ráð Guðbergs var þá að drengurinn skyldi bera nýtt smjör á fæt- urna, það hefði dugað sér vel gegn sprung- um í iljum. Frúin sagði honum hins vegar að sækja hreint vatn í koppinn sinn til að þvo fæturna uppúr. Duldist það hjónunum þó ekki að ástand fótanna fór æ versnandi. Skömmu áður en drengurinn var tekinn frá þeim ræddu þau aftur um að koma drengnum til læknis, en ekkert varð úr framkvæmdinni frekar en áður. Sveltur, barínn og sviptur sængum Hjónin játuðu á sig sakarefnin í megin- atriðum, þótt afar treglega hafi gengið að fá þau til að upplýsa nokkuð. Þau viðurkenndu að þrátt fyrir ástand drengsins hefði honum í engu verið hlíft við vosbúð eða útivist og að hann muni daglega hafa verið votur í fæt- urna. Jóhanna taldi þó að hún hefði fært drengnum þurra sokka á hverjum morgni. Guðbergur játaði að hann hefði hýtt drenginn tvisvar með hrfsvendi á berar lendar og barið hann einu sinni í höfuð- ið með hendinni. Var það á þriðju viku dvalartíma drengsins og gert í refsingar- skyni, þar eð drengurinn hefði verið ódyggur og óhlýðinn. Ekki var þó talið sannað að nokkuð líkamstjón hefði leitt af þessari harðneskju. Jóhanna játaði að hún hefði í eitt sinn, að undirlagi bóndans, svelt dreng- inn í refsingarskyni með því að gefa honum ekki mat eitt kvöldið. Hafði drengurinn þá ekki komið með hest sem hann var sendur eftir. Hann hafi að öðru Ieyti alltaf fengið nægan mat. Loks þótti það sannað með játningu Jóhönnu að rúmri viku fyrir brottför drengsins hafi hún tekið sængurfatnað allan úr rúmi drengsins (tvær hlýjar sængur sem hann kom með), en látið hann sofa á heydýnu með tvær einfaldar ábreiður ofaná sér. Sagðist hún hafa gert þetta af þvf drengurinn hefði vætt rúmið að nóttunni. Engar bætur fyrir örkuml Sök hjónanna þótti sönnuð og til þess tekið hve illa þau bjuggu að drengnum, þótt óvenjuleg kuldatíð ríkti og svo kalt „að kúm varð ekki alltaf beitt en jörð gránaði af jeljagangi". Hið megna skeyt- ingarleysi var túlkað sem vísvitandi mis- þyrming. Undirréttardómari taldi samt duga að dæma hjónin í fimm daga fang- elsi við vatn og brauð (þau höfðu þá setið í gæsluvarðhaldi í hálfan mánuð) og greiða sjúkrahúslegukostnað drengs- ins og málskostnað. Hæstiréttur herti refsinguna upp í 10 daga fangelsi við vatn og brauð. Athyglis- vert er að drengnum voru engar örkumla- bætur dæmdar; krafa um slíkt var ekki tekin til greina þar eð drengurinn hefði „not beggja fóta sinna þrátt fyrir missi tánna, svo að hann er sæmilega fær til gangs og hefir lestingin á fótum hans ekki spilt heilsu hans eða kröftum svo séð verði eða gert hann óhæfan til að afla sér lífsviðurværis með venjulegri vinnu“! jSÖNIM, DOMSMAL Friönik Þór Guðmundsson skrifar Dagur Jónasar. Víöa gerði fólk sér dagamun sl. þriðjudag, 16. nóvember, á Degi íslenskrar tungu, sem er af- mælisdagur Jónasar Hallgrímssonar. Hvaða ár var þessi ástmögur þjóðar- innar fæddur og hvaða ár lést hann? Óskabarnið. Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur er einn dáðasti sonur (s- lands, gárungarnirsegja að hann hafi tekið við af Eimskipafélaginu sem óskabarn þjóðarinnar. Hvað heitir skáldsagan sem Ólafur er að senda frá sér þessa dagana? Með Steingrími. í þessari viku er að koma út annað bindi ævisögu Stein- gríms Hermannssonar og sést sögu- maður hér með sagnaritara sínum. Hver er hann? Byggðamerkið. „Nafn bæjarfélags- ins tengist myndmálinu mjög," segir í umsögn dómnefndar um byggða- merki það sem Finnur Jh. Malmquist vann til verðlauna fyrir í samkeppni sem efnt var til. Hvert er sveitarfélagió sem efndi til keppni þessarar? Guðjón og Stoke. Nú er Guðjón Þórðarson að taka við sem knatt- spyrnuþjálfari breska liðsins Stoke, en íslendingar hafa keypt meirihluta hlutafjár í félaginu. Þrír (slendingar eru sestir í stjórn félagsins, hverjir eru þeir? LflND 06 ÞJOÐ Sigupöup Bogi Sævarsson skrifar 1. Hver var á dögunum kjörinn formaður Farmanna- og fiskimannasambands ís- lands? 2. Hvar skiptast mörk Mýra- og Borgar- fjarðarsýslna? 3. Spurt er um sveit á Suðurlandi. í frá- söguþætti segir Tómas Guðmundsson skáld að það hafi „...löngum verið af- skekkt byggðarlag, girt á báðar hendur af viðsjálverðum vatnsföilum, en bæjar- stæðin lítið annað en fátæklegar vinjar i gráu sandhafi milli eldhrauns og brim- strandar.“ Hvert er byggðarlagið? 4. Nýlega komst í fréttir að Sigurjón Sighvatsson kvikmyndagerðarmaður sem búsettur er vestanhafs, hefði keypt eyðifjörð fyrir austan. Hver er fjörður- inn? 5. Berghylur, Þórarinsstaðir, Laugar, Túnsberg og Kópsvatn. Hvar á landinu eru þessir bæir? 6. Hver er upplýsingafulltrúi Landsím- ans? 7. Skáldkonan Guðrún Ámadóttir varð þekkt fyrír sveitalífssögur sínar sem út komu um miðja þessa öld. Hvert var skáldanafn þessarar konu og hverjar eru þær sögur hennar sem hér er um spurt? 8. Hverjir vom tveir ráðherrar Sólíalista- flokks íslands í Nýsköpunarstjórninni svonefndu sem var við völd frá 1944 til 1947? 9. Magnað þykir skáldverkið Þrúgur reiðinnar eftir John Steinbeck, sem út kom í íslenskrí þýðingu laust eftir 1940. Hver þýddi? 10. Hvar á landinu er Geirólfsgnúpur? •nisAsjBpjBþesj-jnpjON 6o nisAsspuBjJS >|Jouin|sAs ef66i| pmBÍj ujp 'uinpuojisujoH 9 JBpjBjjBf^Aay Bo uinpugjis e jn>pA -JBUJB[qjBp|B[>|s !II!W J9 ‘gæq b uj zsy jb uias ‘jndnuBsjiojjag 'oi 'pjoq uin6aABq j ja bpja uias 'nBgsp|p>|s Bssacj ippAc) uias UBUUBfg ÚBjajs JBA pBq '6 'BjjaqpBJB|guiBjuuaui uossujBfg jnj|o[uAig 6o BJjaqpBJB|BUinuu!A}B uossqo>|Br !>iy njOA JBjjaqpæ JjaAj Jjssaq '8 'uinpujq uiuiq i B6aqBqddn uio>| jn uias ‘J||B|B(] Bun6os 6o ipunq bjj nunjpng uin pnds ja jag 1 'SUBiujspuBi !ruj||njB6u!sA|ddn ja uasuaqdajs 'q JnjB|Q 'g JddajqBuuBuiBunJH! nja jœq j^ssacj jjnv 'S 'pBjsjB|BApjBuins jbcJ b6!3 6o puB| jbc) BdnEq pB b B6nqB jnjaq !puBp!a|uiBJjBpuAui>|!A>| uossiBAqöis U9þn6!s ua ‘jnpjg[jS!||aH Ja Bjjaq y puB||Bpa|/\| uin jjnds ja J3H 'E '!|>|g!s>jp!3 UBpun jnuiaq uias ‘!Jo(|jb6u!|pjoh \ um b ujs qojddn ua ‘BjjaAS |q uu! 6o jbpjb[j -jBÖJog !ujoq pjj Jn66!| uias 'bjiah uin ddn jsBjdjqs BU|sAsjBpjB[jjB6jog 6o -bjA|/\| >jjoi/\| z '>|!AB|ja>| jn uossugp jbj/\| JBjajg 'j 'uossu!Ain6!s Jjaösy 6o uossu!ajs|Bpy jba|3 ‘uosB|Sjg jpq jsuung jjacj nja aqojs ujpfjs ,i nia jjjsas uias jjujböu! -pua|S|, jBJBSsacj !udda>|uiBs |i) jpuja uias 6joqjy pjöBiajjBjraAS jba psq , uossjja663 jnÖBa Ja uuuBjunögs, 'BUUBpippu ppis J|)!9q JBUossjB|p'suuBqpr sjbiq b6bsp|9>|s b[Au U!H , 'QV8L jsa| 6o /081 Qq? jnppæj jba uossuiu6||bh sBupp, UOAS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.