Dagur - 20.11.1999, Page 11
Xfc^iir
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 - 27
MATARGATIÐ
Aðventan er á næsta leiti
og hugurínn hvarflar til
notalegra kvöldstunda
yfir jólaglögg og pipar-
kökum. En eftir allmörg
símtöl á kaffi- og veit-
ingahús út um borg og
bý kom í Ijós að
jólaglöggin hefur dalað í
vinsældum. Á endanum
tókst að grafa upp einn
þjón, á Kaffl Reykjavík,
sem var til í að rífja upp
með lesendum hvernig
setja á saman jólaglögg
svo úr verði indælis jóla-
diykkur.
Allir þeir þjónar sem blaðið hafði
samband við til að forvitnast um
hver galdurinn væri við að setja
saman gómsæta jólaglögg voru á
einu máli um að glöggdrykkja
hefði snarminnkað á síðustu fjór-
um til fimm árum og Beaujoulais
Nouveau komið að nokkru leyti í
staðinn. Fyrir nokkrum árum var
nefnilega rekinn talsverður áróð-
ur gegn jólaglögginu, einkum
vegna þess hve Islendingar voru
fljótir til að grípa tilefnið og taka
að halda vinnustaðapartý þar sem
menn sötruðu á vel styrktu
jólaglöggi þar til þeir urðu reglu-
lega ölvaðir líkt og þeir væru að
þamba bjór eða annað áfengi.
Jólaglögg er hins vegar illa fallin
til fylleríis og getur farið öfugt
ofan í meltingarkerfið og upp úr
því aftur sé hennar neytt í óhófi.
Ekki blanda of sterkt!
Inga Hafsteinsdóttir veitingastjóri
á Kaffi Reylgavík segir staðinn þó
ætíð bjóða upp á jólaglögg í des-
ember og menn biðja enn um
glögg þótt í minni mæli sé. Þegar
blanda skal glögg þarf íyrst að
kaupa grunninn, sem fæst í
mörgum matvöruverslunum, og
einnig má hafa í huga að glöggin
verður þeim mun betri sem betra
rauðvín er notað. „En aðalatriðið
er að nota réttu hlutföllin, það
má alls ekki eyðileggja glöggina
með því að blanda hana of sterkt.
Þegar jólaglöggin kom fyrst hing-
að þá byijaði þetta vel en svo eru
Islendingar svo gráðugir að þeir
ætluðu að fara að drekka þetta
eins og áfengi. Maður á bara að
drekka 1 -2 glös af jólaglöggi með
góðum piparkökum og í góðum
félagsskap."
Hér að neðan gefur Inga okkur
grunnuppskrift að jólaglöggi en
auðvitað má gera tilraunir með
glöggina til að ná fram nýju og
nýju bragði. Inga segir þó fátt
annað krydd en kanill og negul-
nagla passa vel við glöggina en
hins vegar megi skvetta ýmsum
áfengistegundum ofan í glöggina
til að gefa fyllra bragð, t.d. Galli-
ano, DOM, Drambuie og Grand
Marnier. „Cointreau gæti líka far-
ið vel með þessu og jafnvel
skvetta af Amaretto möndlu-
líkjömum. Það má líka alveg nota
koníak, það væri mjög gott en það
Inga tíndi til nokkrar afþeim áfengistegundum sem má skvetta ofan I glöggina
til að gefa henni fyllra bragð, m.a. Galliano, konalk, DOM, Cointreau, Drambuie,
Grand Marnier og Amaretto.
verður alltaf að passa hlutföllin
vel. Setja bara skvettu og smakka
til. Því um leið og það er komið
of mikið og maður fer að finna
sterkt vínbragð þá er þetta bara
orðið vont. Þá ertu bara búinn að
eyðileggja jólaglöggina," segir
Inga og bætir því við að sumir
setji jafnvel skvettu af brennivíni í
glöggina en það gefur eilítið kúm-
enbragð sem passar mjög vel við
glöggina, segir Inga sem ætlar
ekki að gefast upp íyrir dalandi
vinsældum glöggsins. „Við ætlum
að selja glögg, það þýðir ekkert að
gefast upp. Það er ekki til róman-
tískara en að setjast hérna niður
með vini eða vinkonu yfir
jólaglöggi þegar það er farið að
rökkva, að mínu mati. Nei, við
gefúmst ekki upp,“ sagði Inga
ákveðin og tók svo að sinna gest-
um á Kaffi Reykjavík.
Jólaglögg
1 1 jólaglögg (grunnur)
2 1 rauðvín
Grand Marnier ef vill
vodka eða romm ef vill
50 gr rúsínur
50 gr möndlur
Inga ersjálfmjög hrifin afjólaglöggi
og ætlar sko ekki að gefast upp við
að bjóða upp á jólaglögg þótt salan
hafi snarminnkað síðustu 4-5 árín.
myndir: eól
Byijað er á að blanda saman
grunni og rauðvíni og hellt í
pott. Vilji fólk nota líkjör, sem
gefur góða fyllingu og bragð,
eða styrkja glöggina með vodka
eða rommi er það einnig sett í
pottinn ásamt rúsínum og
möndlum. Blandan er hituð var-
lega (ekki sjóða).
Sé notað sterkt vín eða líkjör
er best að setja smá skvettu og
smakka glöggina til. Þeir sem
vilja geta látið rúsínurnar liggja í
líkjöri eða rommi í nokkra
klukkutíma áður en glöggin er
hituð. Sumir kjósa að setja app-
elsínusneiðar í glöggina til að
gefa henni kraft og sleppa þá
jafnvel Iíkjörnum.
Óáfeng jólaglögg
I I jólaglögg (grunnur)
1,5 1 eplasafni
1 1 vatn
Jólaglöggin dalað
í vinsældum
Úr Dýrunum í Hálsaskógi.
Piparkökur
Piparkökur leika menningar-
sögulegu hlutverki, en þær
koma fyrir f mörgum ævintýr-
um og er þar skemmst að
minnast nornarinnar í sög-
unni um Hans og Grétu, en
hún bjó í piparkökuhúsi sem
var skreytt með allskonar sæt-
indum og súkkulaði.
Piparkökur eru nauðsynleg-
ar í jólaveislunni - þegar að
hópar koma saman í glögg-
partíum nú eða á jólahlað-
borðum. Það eru engin jól án
þess að þeim fylgi piparkökur.
Það er margt hægt að gera til
þess að leika sér að deiginu.
Það má til að mynda móta
kökurnar á ýmsan hátt.
Þegar piparköktir bakast,
kökugerðannaður tekur, fyrst
af öllu steikarpottinn ...
Margir kannst við pipar-
kökusöng Héraðstubbs bak-
ara þar sem hann notaði að-
eins eina teskeið af pipar en
bakaradrengurinn endurbætti
þá uppskrift þannig að pipar-
kökurnar stóðu undir nafni.
„Afí minn sagði alltaf að góð-
ar piparkökur væru keyptar
piparkökur, en vondar pipar-
kökur væru stolnar piparkök-
ur.“
Það er frekar auðvelt að
baka piparkökur og hér er
uppskrift af súkkulaðihúðuð-
um kökum sem minnstu fjöl-
skyldumeðlimirnir verða ör-
ugglega hrifnir af.
Efni:
650 g hveiti
500 g púðursykur
200 g smjörlíki
1 dl síróp
2 dl mjólk
2 tsk. kanill
2 tsk. negull
2 tsk. engifer
2 tsk. matarsódi (natron)
1/2 tsk. pipar
1 egg
Skreyting:
100 g suðusúkkulaði (kons-
um), brætt
1 poki hlaup-fígúrur
Aðferð:
Setjið hveitið og sykurinn í
skál, og myljið smjörííkið ofan
í.
Hitið mjólkina og sírópið
saman í potti og kælið lítil-
lega.
Setjið eggið og mjólkur-
blönduna saman við þurrefn-
in og hnoðið.
Kælið yfir nótt.
Fletjið degið út og mótið
karla og kerlingar úr deginu.
Bakið við 180°C í 8-10 mín.
Skreyting:
Bræðið súkkulaðið í vatns-
baði, smyrjið því á kökurnar
og setjið svo hlaupdýrin á til
skrauts.